Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Guðmundur Felix vongóður að nota fingurna eftir 3 ár: „Fyrstu vikurnar ólýsanlega sársaukafullar“

„Það virðist vera eitthvert alheims­lögmál að spítala­matur eigi að vera vondur, bragðlaus, gufu­soðinn og ókryddaður eins og á elli­heimili. Og sami matseðill viku eftir viku. Jafnvel í Frakk­landi. Frakkarnir mega þó eiga það að það er alltaf góður ostur með öllum mat,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson þegar Mannlíf innti hann eftir hvernig bata­ferlið gangi eftir að hann var heimsins fyrsti maður til að fá á sig ágræddar hendur.

Hefur vakið alheimsathygli

„Mikið er nú gaman að heyra í íslenskum blaða­manni stundum. Það er svo mikið af útlendingum að fylgjast með mér, það er haft samband frá löndum á borð við Egypta­landi, Suður- og Mið-Ameríku, Rússlandi og jafnvel Nepal,“ segir Felix og bætir við að sennilega sé það þörfin fyrir góðar fréttir sem kalli þennan áhuga fram. „Fyrsta var það bara Trump, svo Trump og Covid og núna bara Covid. Hvað maður er búinn að fá leið á þessu!“

Guð­mundur Felix er á fullu í endu­hæf­ingu og er bjart­sýnn á fullan bata.

Aðspurður um hvernig gangi segir Felix allt ganga bara vel. Hann er í stífri endur­hæfingu frá því snemma á morgnana og til kl. 16 á daginn. Fullur vinnu­dagur. „Já þetta tekur á, og eftir klukkan fjögur hefur maður lítið haft annað að gera en góna á loftið og bíða eftir næsta degi. En sem betur fer er ég farinn að fá að fara heim.“

Heima er best

Í fyrsta skiptið sem Felix fór heim sagðist hann hafa fundið fyrir því hvað aðgerðin hefði tekið á. „Mamma og pabbi búa á hæðinni fyrir ofan mig og ég var vanur að hlaupa upp og niður en í fyrsta skiptið gat ég varla staulast en ég verð betri dag frá degi.

Núna fæ ég að fara heim um helgar og vonandi kemur bráðlega að því að ég mæti á morgnana og fari heim að lokinni endur­hæfingu. Bara eins og um venju­legan vinnudag sé að ræða. Þetta er hálftíma akstur og hljóðbók. Ekkert mál,“ segir Felix og það er augljóst að hann hlakkar til.

Felix segir það besta vera að fá að vera heima með fjöl­skyldunni og hundunum sínum tveimur. „Og maturinn er miklu betri!“

Dásamleg tilfinning

Að sögn Felixar er hann byrjaður að fá tilfinningu í aðra öxlina. „Taugarnar eru eins og tré þar sem grein­arnar vaxa út. Það er það sem er að gerast í höndunum á mér. Það er ólýsanlega dásamleg tilfinning að finna að þetta er að ganga upp. Taugarnar vaxa 1 milli­metra á dag svo það er áætlað að ég verði komin með tilfinningu niður í fingur eftir tvö ár. Síðan fer þriðja árið í að þjálfa fingurnar sem auðvitað hafa ekkert verið notaðir svo lengi. Ég er afar vongóður um að sú áætlun standist. Þetta er alveg ótrúlegt fólk hér í endur­hæfingunni, ég er afar þakklátur að það skyldi setjast á skólabekk og læra þetta allt saman,“ segir Felix hlæjandi.

Felix seg­ist vona til að þetta útlit hverfi smám saman.

Á myndum sem Felix deildi sést að annar hand­leggurinn er mun þykkari en hinn en ástæðuna segir Felix að verið sé að sameina tvo vöðva, annan sem hann hafði sjálfur og hinn úr gjafanum. Annar hafði blóðflæði en engar taugar en hinn ekkert blóðflæði en aftur á móti taugar. „Ég man aldrei hvort var hvað, en nei nei, ég verð ekki svona lengi vona ég!“

Leit út eins og kókflaska

Aðspurður um hvað hanni hlakki mest til þegar hann fær tilfinningu í fingurnar segir hann það mikil­vægast af öllu að vera sjálfum sér nægur og vera þakklátur. „Í 23 ár hef ég saknað litlu hlutanna; koma við flík í búð, fá mér að borða, snerta. Þetta daglega stöff. Svo kom strax þessi frábæra tilfinning að vera heill. Þegar maður er búinn að líta út eins og kókflaska í rúma tvo áratugi er ólýsanlegt að líta út heill, eins og manneskja. Og nota ermar. Í hvert skipti sem ég keypti peysu hafði ég aldrei neitt við ermarnar að gera.“

Felix var áður iðnaðar­maður og er það enn í hjarta sínu. „Ég elska verkfæri út af lífinu og hef safnað þeim í gegnum árin þrátt fyrir að geta ekki notað þau. Ég er kominn með prýði­legan lager og hlakka mikið til að geta notað þau.

Ég lifði í búbblu þessi ár, skynjaði bara heiminn í gegnum sjón og heyrn. Snerting er svo óendanlega mikilvæg í lífinu. Kannski fólk sem hefur verið í einangrun í Covid skilji aðeins hvað ég er að tala um.“

Vill að aðrir njóta gervihandanna

Felix átti gervi­hendur sem hann segir hafa verið rosalega óþægilegar. „Maður svitnaði þvílíkt þegar það var heitt, þær voru harðar, fyrir­ferðamiklar og gátu lyktað hræðilega. Ég var orðinn ansi þreyttur á þeim seinni árin“. Þegar forvitnast er hvort Felix langi ekki að henda þeim, hlær hann.  „Þetta er rándýrt dót svo ég held nú ekki. Þótt hver hönd sé sérsmíðuð þá eru ákveðnir partar í gervi­handleggjum alltaf eins, til að mynda olnbogarnir. Maður er nú svo heppinn að hafa verið í kerfi sem gat útvegað manni gervi­hendur frítt en það er fjöldi fólks út um allan heim sem hefur ekki þann lúxus. Svo ég ætla að taka þá í sundur og vona að það sé hægt að nota þetta í einhverju stríðshjáðu þriðja heims landi.“

Enginn nennir vælurum

Guðmundur Felix verður næstu þrjú árin í stífri og erfiðri endur­hæfingu 8 tíma á dag. Samt er Felix alltaf vera jákvæður og skemmtilegur, jafnt núna sem áður. Hvernig fer hann að þessu?

„Þetta er auðvitað ekkert grín. En sársauka­tímabilið er að mestu leyti búið. Fyrstu vikurnar voru ólýsanlega sársauka­fullar, ég var bara með puttann á takkanum að dæla í mig meira morfíni.  En starfs­fólkið var frábært og vel hugsað um mig.

Auðvitað á ég daga sem ég er pirraður en ég er að upplagi mjög jafn­lyndur og það þarf mikið til að koma mér úr jafnvægi. Ég er á miklu magni af sterkum lyfjum, vöðvarnir hafa rýrnað og ég þarf að vera á sýkla­lyfjum næstu 3 mánuði sem auðvitað er erfitt.

Fyrstu vik­urnar voru gíf­ur­lega sárs­auka­fullar hjá Guðmundi.

En það sem er svo mikilvægt er að temja sér samskipta­hæfni. Það nennir enginn að tala við fólk sem sífellt er vælandi yfir einhverju og setur sig í fórnarlambs­hlutverkið. Ég held að við þekkjum öll að minnsta kosti einn svoleiðis einstakling. Svona væl getur verið ávan­bindandi. Maður þarf að vanda sig í samskiptum við aðra og rækta þau, ekki taka út gremju og leiðindi yfir hrak­föllum og óréttlátu lífi.“

Hef upplifað mikla blessun

Felix virðist alltaf líta á björtu hliðarnar.  Hann segir það hafa verið mikið þroska­ferli að fara í gegnum lífið án hand­leggja. „Ég var bara 25 ára gamall, rétt hætttur að vera krakki og nýkominn með eigin krakka. En ég álít mig heppinn. Það er ótrúlegt að ég hafi lifað þetta af, ekki bara rafmagnið heldur líka fallið. Ég hef upplifað mikla blessun í lífinu og á góða fjöl­skyldu og gott bakland.“

Í frístundum frá endur­hæfingunni kýs Felix að taka því rólega með eigin­konunni og hundunum. „Við förum í göngutúra og bíltúra. Það er svo ótrúlega mikið hægt að gera hérna í Frakk­landi. Bæði elskum við strendurnar við Atlantshafið og förum oft til líka til Montpellier. Við kunnum betur við okkur þar en á Ríveríunni, fólk þar er snobbað og allt rándýrt. Svo er ekkert mál að skella sér um Evrópu. Við hjónin höfum farið til Ítalíu, Sviss og Póllands svo fátt eitt sé nefnt.“

Sakna ekki kuldans

Ég fer aldrei neitt norður, var nógu lengi í kuldanum á Íslandi og verð að segja að ég sakna hans ekki. Hér byrjaði að vora í febrúar og hitinn í kringum 20 gráður sem alveg yndislegt. Ég væri þó til í að sjá gosið, finna orkuna. Er örugglega magnað!“ segir Guðmundur Felix kampa­kátur og spenntur fyrir fram­tíðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu