Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi

Í kjöl­farið var haft sam­band við strand­gæslur Banda­ríkj­anna og Mexíkó

Skemmtiferðarskipið Carnival Panorama
Skemmti­ferð­ar­skipið Carnival Panorama Mynd: Jack Adamenko/Wikipedia

Skemmti­ferða­skip á vegum Carnival Cruise Line sneri við undan ströndum Mexíkó á laug­ar­dag eftir að karl­maður stökk fyrir borð. Leit var gerð að mann­inum en ekki liggur fyrir hvort hann hafi fund­ist.

Atvikið átti sér stað um borð í skemmti­ferða­skip­inu Carnival Panorama sem var á leið frá Puerto Vallarta í Mexíkó til Long Beach í Kali­forníu. Skipið sigldi þá með­fram Baja-skag­anum.

Tals­maður Carnival Cruise Line stað­festi við TMZ að karl­kyns far­þegi hefði stokkið fyrir borð. Þegar áhöfn­inni barst til­kynn­ing um að manns­ins væri saknað voru upp­tökur úr örygg­is­mynda­vélum skips­ins skoð­aðar. Í kjöl­farið var haft sam­band við strand­gæslur Banda­ríkj­anna og Mexíkó.

Farþegi um borð sagði við TMZ að fjöl­skyldu­með­limur manns­ins hefði leitað aðstoðar hjá þjón­ustu­borði skips­ins um klukkan 10:30 að morgni eftir að hafa árang­urs­laust leitað hans. Til­kynn­ing var þá lesin upp í hátal­ara­kerfi skips­ins þar sem kallað var eftir mann­inum.

Upptökur úr örygg­is­mynda­vélum munu síðar hafa stað­fest að mað­ur­inn hefði farið fyrir borð. Um klukkan 14 sneri skipið því við og hóf leit á svæð­inu.

Leitin stóð yfir í um tvær og hálfa klukku­stund en um klukkan 16:30 hélt Carnival Panorama áfram för sinni til Long Beach.

Carnival Cruise Line segir fyr­ir­tækið veita fjöl­skyldu manns­ins, sem var með honum í ferð­inni, stuðn­ing vegna atviks­ins.

Þegar TMZ greindi frá mál­inu höfðu hvorki Carnival Cruise Line né banda­ríska strand­gæslan veitt frek­ari upp­lýs­ingar um afdrif manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Mike O'Malley ræddi við Anthony Clark aðeins þremur vikum fyrir andlát hans og minnist hans sem einstaklega fyndins manns.
Heimur

Kynlíf enn eitt öfl­ug­asta vopn leyni­þjón­usta

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt

Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku