Eins og Mannlíf greindi frá fyrr í dag er ástandið á tjaldsvæðinu Lónsá í námunda við Akureyri búið að vera skelfilegt. Ruslamál í ólestri, engin varsla á svæðinu, klósett stífluð og óhrein og svæðið eitt moldarflag. Kvartað hefur verið undan því að ekki hefur náðst í umsjónarmenn svæðisins þó ítrekað hafi fólk reynt að gera svo. Nú hefur fyrirtækið Landamerki ehf. sem hefur umsjón með tjaldsvæðinu stigið fram á Facebook hópnum Tjaldsvæði – umræðuvettvangur. Útilegukortið hefur ekkert með rekstur tjaldsvæðisins að gera eins og kom fram í fyrri frétt. Sífellt fleiri hafa verið að tjá sig um tjaldsvæðið í hópnum og birta myndir af ástandinu.

Landamerki afsaka ástandið
Í tilkynningu þeirra segir Sreten Karimanovic: „Við hjá Landamerki ehf. erum rekstraraðili tjaldsvæðisins við Lónsá á Akureyri sumarið 2021 biðjum ykkur innilegrar afsökunar á aðstöðu tjaldsvæðisins. Starfsmenn sem ráðnir voru til að sjá um tjaldsvæðið hættu störfum fyrirvaralaust. Við höfum lagt alla okkar orku í að finna nýjan starfsmann til að sjá um tjaldsvæðið s.l daga og það tókst að lokum. Nýi starfsmaðurinn okkar byrjar í næstu viku og þá verður vonandi allt eins og það á að vera“.
Fólk er þó ekki parhrifið. Magga skrifar athugasemd sem fær talsverðan stuðning „Hefði þá ekki verið skynsamlegt að loka þessa daga“. Sigurbjörg segir: „En hvers vegna var ekki einu sinni hægt að hafa upp á ykkur?“. Sigþór nokkur kemur með ágætis punkt: „Gátuð þið ekki bara græjað þetta sjálfir?“.

Kristján skrifar ummæli sem útskýra ástandið: „Ástæðan fyrir því að umsjónarmenn hættu, var sú að þeir voru búnir að fá nóg af ruglinu. Ekki var hægt að fá píparann á svæðið þar sem hann hafði ekki fengið greitt fyrir síðasta reikning og greinilegt að eitthvað var fleira í ólagi. Vinnan sem þeir áttu að inna af hendi var klukkutími í hádeginu og klukkutíma um kvöldmat. Þetta var bara mikið meiri vinna heldur en sagt var, og eigendur virtust ekki hafa neinn áhuga á því að bæta úr hlutunum, eins og þetta moldarflag sem er þarna“.
Ljóst er að eitthvað verulega mikið vantar upp á hjá Landamerki ehf. er snýr að rekstri tjaldsvæðisins Lónsá, ástandið er að minnsta kosti ekki eðlilegt svo mikið er víst.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir