Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

„Ég ætla að leyfa mér að efast um að svona „greiðar“ séu rétt skráðir almennt“

„Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að engum verkefnum hafi verið útvistað í kjölfarið, en hún hafi notið aðstoðar félaga síns við að skrifa fréttatilkynningu um málið“
„Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir að engum verk­efnum hafi verið útvi­stað í kjöl­farið, en hún hafi notið aðstoðar félaga síns við að skrifa frétta­til­kynn­ingu um málið“

Björn Leví Gunnarsson, tölvunar­fræðingur og fyrr­verandi alþingis­maður fyrir Pírata bendir borgar­stjóra Reykja­víkur á í opinberri færslu að ekki sé hægt að fá greiða sem aðrir þurfi að borga fyrir án þess að það sé gefið upp sem styrkur.

„Stjórn­málamenn geta ekki fengið "greiða" sem aðrir þurfa almennt að borga fyrir án þess að það sé gefið upp sem styrkur til viðkomandi stjórn­málamanns eða flokks samkvæmt lögum um fjár­mögnun stjórnmála­samtaka.

Ef það er eitthvað greitt fyrir þennan "greiða" þá þarf afsláttur að koma fram - og ef sá afsláttur er umfram það sem aðrir geta fengið, þá verður að skrá mismuninn sem styrk.

Ég ætla að leyfa mér að efast um að svona "greiðar" séu rétt skráðir almennt. Því það var mjög oft sem maður heyrði af því að sumir flokkar fengu ókeypis lögfræði­álit á alls konar málum.

Eins sagan sem maður heyrði var um einhvern ráðgjafa sem skipti yfir í Viðreisn - og var þá spurður hvernig hann myndi fá einhver verkefni.“

Engum samskiptaverkefnum útvistað

Samskipta­stjóra og öllum sex upplýsinga­fulltrúum Reykja­víkurborgar var sagt upp í síðustu viku. Hildur Björns­dóttir borgar­stjóri segir að engum verkefnum hafi verið útvistað í kjölfarið, en hún hafi notið aðstoðar félaga síns við að skrifa frétta­tilkynningu um málið, segir í frétt á RÚV. Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgar­ráði lögðu fram fyrir­spurn á fundi í gær þar sem óskað var eftir svörum um hvernig upplýsinga­málum borgarinnar yrði háttað eftir umfangs­miklar uppsagnir á skrif­stofu samskipta og viðburða. Hildur Björns­dóttir borgar­stjóri viðurkennir að samskipta­málin hafi verið snúin eftir að sex upplýsinga­fulltrúum og samskipta­stjóra var sagt upp. Hún hafi því leitað ráðgjafar í kringum sig.

Ókeypis aðstoð frá varaborgarfulltrúa

Borgar­stjóri naut liðsinnis Más Mássonar við skrif á frétta­tilkynningu um uppsagnirnar. Már er annar eigandi ráðgjafar­skrif­stofunnar Athygli og vara­borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins. Hildur tekur fram að um vina­greiða hafi verið að ræða og ekkert verði greitt fyrir þjónustuna.„Ég hélt á þessum málum í megin­atriðum sjálf. Ég leitaði mér ráðgjafar fólks í kringum mig en það voru bara vina­greiðar og ekkert sem greitt er fyrir,“ segir Hildur og ítrekar að engum verkefnum hafi verið útvistað.Hins vegar hefur verið samið við tvo starfs­menn um að brúa bilið og vinna fram að áramótum á meðan unnið er að nýju fyrir­komulagi. Engir nýir upplýsinga­fulltrúar hafa verið ráðnir.

Framtíðarfyrirkomulag óákveðið

Að sögn Hildar hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort upplýsinga­málum borgarinnar verði útvistað til einka­fyrirtækja í fram­tíðinni. Nýtt fyrir­komulag verði kynnt innan tíðar.Hún bendir á að skrif­stofa borgar­stjóra og borgar­ritara hafi í gegnum árin útvistað ýmsum verkefnum tengdum ráðgjöf og stefnu­mótun. Það hafi forverar hennar gert og eflaust verði það gert að einhverju leyti aftur, en málið sé ekki komið til skoðunar.

Mágkonan starfar hjá Athygli

Spurð að því hvort almanna­tengsla­stofan Athygli komi til greina í fram­haldinu segir Hildur að skoða þurfi hvaða stofur hæfa hverju sinni, en engar ákvarðanir liggi fyrir.Ólöf Skafta­dóttir, mágkona borgar­stjóra, starfar hjá Athygli. Aðspurð hvort þau tengsl kunni að teljast tortryggileg segist Hildur ekki hafa leitt hugann að því, enda hafi viðskipti við fyrir­tækið ekki verið til skoðunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Það er erfitt að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. Þau virðast máttvana.“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“