Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Steinunn Ólína er stolt af Verbúðinni: „Nú verða aðrir að þora og gera líka! Skilum skömminni!“

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir leikkona skrifaði naut­sterka færslu á Facebook sem hefur fengið gríðar­lega góðar undir­tektir en yfir þúsund manns hefur líkað við hana og um 90 skrifað athuga­semdir. Skrifar hún færsluna í tilefni þess að síðasti þáttur Verbúðar var sýndur á Rúv í gærkvöldi en Steinunn leikur einmitt prest í þáttunum vinsælu.

„#verbúðin Nú hafa lista­mennirnir í Vestur­porti gefið okkur Verbúðina. Rifið ofan af því djúpa sári sem kvelur Íslendinga og þeirri sáru skömm sem við berum í hjarta okkar.

Skömm á því fólki sem lét þetta gerast, skömmina yfir því að selja það sem var allra fyrir skyndi­gróða, skömmina yfir því að missa lífs­viðurværi úr sjávar­plássum hringinn í kringum landið, skömmina yfir því að hafa verið plötuð svo rækilega, skömmina yfir því hvernig farið var með foreldra okkar og vini, skömmina yfir því að hafa þegið og þurfa sumstaðar enn á Íslandi að vera með óbragð yfir því að þiggja brauðmola úr vösum land­ráðamanna. Því landráð eru það. Ísland var þessum mönnum ekki nóg, arðrán Samherja heldur áfram en nú hjá fátækum Afríku­þjóðum,“ skrifar Steinunn sem er þekkt fyrir kjarnyrt mál eins og færslan sannar. Hún heldur áfram.

„En hvað svo? Hverjir ætla nú að taka við keflinu? Listamenn hafa nú lagt sitt lóð á vogar­skálina með rækilegri áminningu og ungt fólk á Íslandi spyr nú spurninga sem það hefði ekki gert ella!“

Segir Steinunn ennfremur að sitjandi ríkis­stjórn muni ekkert gera, ofbeldið og arðránið haldi áfram.

„Því eitt er víst að sitjandi ríkis­stjórn mun ekkert gera. Enginn áhugi á stjórnar­skrár­breytingum. Ofbeldið og arðránið heldur áfram. Stór­útgerðin mengar mest, græðir mest en greiðir minnst af gróðanum til samfélagsins. Svandís Svavars­dóttir ætlar nú að herða ennfrekar að strand­veiðinni. Ekki mun þessi ,,græni“ flokkur setja nein viðurlög við mengandi starfsemi íslenskra stór­útgerðar­fyrirtækja sem eru enn með Dalvík og Akureyri í gíslingu. Þar sem skömminn er hvað megnust. Dalvík og Akureyri eru meiddir laxar í kvíum Samherja.“

Aftur kemur Steinunn að skömminni.

„Enn sitjum við uppi með skömmina. Þurfum við ekkert að skila ÞESSARI skömm?Nú þarf íslenska þjóðin að fara að opna munninn, segja frá, segja okkur sögurnar af því hvernig þetta var og er og skila þessari skömm.

Því ofbeldi var það og ofbeldi er það þegar fólk er svift lífs­viðurværi sínu og sameign okkar færð í einkaeign ósvífinna manna sem ALDREI fá nóg og láta sér í léttu rúmi liggja að halda þjóðum í ofbeldis­fullri ánauð.“

Lokaorð Stein­unnar eru einstak­lega sterk.

„Íslenska þjóðin er einstæða móðirin Kristín Þóra Haralds­dóttir sem Harpa Nína Dögg Filippusdóttir bar út í lokaþætti Verbúðarinnar. Og þrællinn sem þiggur út hendi kúgarans. Sverrir Krull. Stórkostleg mynd af vanda­málinu sem hér um ræðir. Listin, krakkar!

P.s Það var heiður að fá að taka þátt í þessu verkefni. Ég er stolt af Vestur­porti fyrir að þora og gera! Nú verða aðrir að þora og gera líka! Skilum skömminni!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu