Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Ragnar hefur staðið sig afburða vel síðustu 6 ár – Gustað um hann í jákvæðri merkingu þess orðs“

Helga Ingólfsdóttir.
Helga Ing­ólfs­dóttir.

Helga Ingólfs­dóttir skrifar grein sem ber yfir­skriftina: Ragnar Þór Ingólfsson er baráttu­maður og hann er okkar maður.

Hefst grein Helgu, sem er fram­bjóðandi til stjórnar VR, svona:

Helga var lengi bæj­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Hafn­ar­firði.

„Frá árinu 2017 hefur Ragnar Þór Ingólfsson verið formaður VR. Öll árin hefur gustað hressilega um Ragnar Þór í jákvæðri merkingu þess orðs en maðurinn er einfald­lega margra manna maki þegar kemur að því að vinna að baráttu­málum félags­fólks og samfélagsins okkar.

VR undir hans forystu hefur beitt sér fyrir fjöl­breyttri fræðslu til félags­manna, stutt við ýmis hagsmuna­samtök og staðið reglulega fyrir ýmsum átaks­verkefnum um fjöl­breytt hagsmunamál á liðnum árum.“

Hún bætir þessu við:

Ragnar Þór Ing­ólfs­son.

„Sem formaður VR, stærsta stéttar­félags landsins hefur hann þó mest beitt sér fyrir kjara­málum félags­manna svo eftir hefur verið tekið. Þar hafa húsnæðis­málin verið áberandi og þótt margt hafi áunnist er enn verk að vinna þannig að launafólk hafi nægilegt aðgengi að húsnæði til leigu eða kaups á viðráðanlegu verði.

Húsnæði er grunnþörf og ástandið er óviðunandi og enn verk að vinna.

Við gerð Lífs­kjara­samningsins árið 2019 stóð Ragnar í stafni ásamt fleiri formönnum stéttar­félaga og sambanda innan ASÍ í kröfugerð gagnvart stjórn­völdum og niður­staðan var að Lífs­kjara­samningurinn fól í sér verulegar umbætur m.a. skattkerfis­breytingar, breytingar á lífeyris­sjóða­kerfinu og frekari uppbyggingu óhagnaðar­drifinna íbúða og hlutdeildar­lána til að styðja við fyrstu kaup.

Í desember 2022 var skrifað undir stuttan kjara­samning umlaunahækkun eða eiginlega leið­réttingu á kaupmætti launa vegna þess hve verðbólga hefur rokið upp og jafnframt eru viðræður um næsta kjara­samning hafnar. Stuttir kjara­samningar hafa nú náðst við allan almenna vinnu­markaðinn. Vonir standa til þess að næsti kjara­samningur verði langtíma­samningur og við undir­búning horfa margir til Lífs­kjara­samningsins til viðmiðunar og það er ljóst að ein af forsendum fyrir þvi að ná fram kröfum á stjórn­völd í langtíma­samningi er að samstaða ríki innan verkalýðs­hreyfingarinnar.“

Helga nefnir að „í miðstjórn ASÍ þar sem ég er verið fulltrúi fyrir VR frá 2018 hefur farið fram vönduð og góð vinna frá frestun þings ASÍ í október til þess að tryggja að hreyfingin fari þétt og sameinuð fram í kröfugerð gagnvart stjórn­völdum í næstu samninga­lotu og sú vinna er að skila góðum árangri.

Ég hef átt því láni að fagna að vera í stjórn VR á liðnum árum og ég hvet félags­menn VR til þess að styðja Ragnar Þór til formennsku næstu tvö árin vegna þess að hann hefur staðið sig afburða vel sem formaður síðustu 6 ár og látið sig varða fjölmörg hagsmunamál félags­fólks og ég veit líka að hann er réttur maður í næstu samninga­viðræður VR við SA sem þegar eru hafnar.

Þar mun reyna á kraft, þor og reynslu það hefur Ragnar Þór. Höfum það alveg á hreinu að Ragnar Þór er baráttu­maður og hann er okkar maður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim