Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Sómalskir hælisleitendur krefjast tafarlausrar afgreiðslu mála

„Við bjugg­umst við að þegar við kæmum til Íslands yrði komið fram við okkur sem mann­eskjur, með sann­girni, rétt­læti og mann­legri reisn“

Útlendingastofnun
Útlend­inga­stofnun Sómölsku hæl­is­leit­end­urnir eru ekki sáttir við með­ferð­ina Mynd: Víkingur

Hópur fimmtán sómal­skra hæl­is­leit­enda á Íslandi hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann lýsir mik­illi óánægju með með­ferð íslenskra yfir­valda á málum sínum og krefst taf­ar­lausrar afgreiðslu. Flestir hóps­ins hafa dvalið hér í meira en þrjú ár án end­an­legrar nið­ur­stöðu í umsóknum sínum um alþjóð­lega vernd.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að margir hafi komið hingað í leit að öryggi undan stríði, ofbeldi og ofsóknum, en upp­lifi sig nú föst í kerfi sem „hefur engan áhuga á þján­ingu okkar“ og brýtur niður mann­lega reisn þeirra.

„Við bjugg­umst við að þegar við kæmum til Íslands yrði komið fram við okkur sem mann­eskjur, með sann­girni, rétt­læti og mann­legri reisn. En í stað­inn finnst okkur við vera föst í kerfi sem hefur engan áhuga á þján­ingu okkar og virð­ist not­færa sér aðstæður okkar. ,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Langvarandi tafir og gagnrýni á Útlendingastofnun

Hæl­is­leit­end­urnir segja mál sín hafa dreg­ist óhóf­lega og að hvorki Útlend­inga­stofnun né kæru­nefnd útlend­inga­mála hafi veitt skýr svör. Þau gagn­rýna einnig við­mót starfs­manna, sem þau telja oft ein­kenn­ast af tor­tryggni og virð­ing­ar­leysi, og segja að kerfið beiti töfum vilj­andi til að knýja þau til að fara sjálf­viljug úr landi.

Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að margir innan hóps­ins hafi ekki glímt við and­leg veik­indi áður en þeir komu til lands­ins, en streita og óvissa síð­ustu ára hafi ýtt þeim út í lyfja­notkun. „Töfin er ekki bara óþægi­leg, hún skaðar líf okkar og heilsu,“ segir þar.

Krefjast fjögurra úrbóta

Hópurinn setur fram fjórar megin kröfur:

  1. Taf­ar­laus afgreiðsla umsókna í sam­ræmi við lög.
  2. Ein­stak­lings­bundin og gagnsæ með­ferð kæru­nefndar útlend­inga­mála.
  3. Réttlát og virð­ing­ar­full máls­með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun.
  4. Að mann­leg reisn og geð­heilsa hæl­is­leit­enda sé virt og vernduð.

Hópurinn ítrekar að hann leiti aðeins rétt­látrar máls­með­ferðar og sann­gjarnrar verndar. „Við erum ekki hér til að nýta okkur kerfið, heldur vegna þess að við höfðum enga aðra mögu­leika,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Aðeins um 150 þúsund af tveimur milljónum ólífutrjáa sem stóðu á Gaza fyrir stríðið eru enn eftir, samkvæmt gögnum landbúnaðarráðuneytisins þar.
Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum“

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984