Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Almennir kennarar skipta með sér íþróttakennslu á Vopnafirði: „Þetta hafðist á lokametrunum“

Vopnafjörður
Vopna­fjörður Mynd: east.is

Í grunn­skólanum á Vopna­firði sjá þrír almennir kennarar um íþrótta­kennslu.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að þrátt fyrir auglýsingar eftir kennurum hafi einungist náðst að fullmanna almennar kennslu­greinar í grunn­skólanum á Vopna­firði en það náðist á allra síðustu metrunum líkt og það var orðað í fréttinni. Ekki tókst að manna íþrótta­kennslu en þrír almennir kennarar við skólann hafa tekið að sér að kenna íþróttir til skiptis.

Almennt hefur gengið þokkalega að ráða starfs­fólk í skólum Austanlands, samkvæmt svörum skóla­stjórnenda fjórðungins, við fyrir­spurnum Austur­fréttar. Að sögn Sigríðar Elvu Konráðs­dóttur, stkólastjóra grunn­skóla Vopna­fjarðar, tókst vel að manna stöður í skólanum en það hafi þó aðeins náðst rétt fyrir byrjun skóla­ársins. Kemur fram í fréttinni að fjöldi leið­beinenda án kennslu­réttinda sé hærri við skólann en eðlilegt getur talist.

„Þetta hafðist á loka­metrunum ef við getum orðað það sem svo. Þó með þeim annmörkum að við fengum engan íþrótta­kennara og okkur vantar reyndar líka sérkennara á þessari stundu. Staðan nú er góð svona miðað við allt og allt en það eru vissulega fleiri við kennslu án réttinda hjá okkur en ég hefði viljað,“ sagði Sigríður í samtali við Austur­frétt.

Ekki sála sótti um starf íþrótta­kennara við skólann á þessu skólaári en með sameiginlegu átaki tókst að leysa það, að sögn Sigríðar.

„Hún felst í því að það eru þrír almennir kennarar hjá okkur sem skipta íþrótta­kennslu á milli sín í vetur. Engin kjörstaða og sérstak­lega ekki því í íþrótta­kennslu felst sund­kennsla. En þetta var það eina sem okkur datt í hug til að halda úti kennslunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp