Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Logi Pedro kveður loksins Covid-drauginn: „Tenging inn í eitthvað séríslenskt og sterkt“

Logi Pedro gaf út plötu með Elvari
Logi Pedro gaf út plötu með Elvari Mynd: Iris Dogg Einarsdottir

Tón­list­ar­mað­ur­inn Logi Pedro Stef­áns­son hefur verið í sviðs­ljós­inu síðan hann var barn og er ekki á leið­inni úr því en hann stefnir á að gefa út sína þriðju sóló­plötu í vor. Í gær gaf Logi út lagið Englar Alheims­ins en söngv­ar­inn og rapp­ar­inn Huginn er með Loga í lag­inu. Mannlíf ræddi við Loga um lagið, fram­tíð­ina og ýmis­legt annað.

„Englar Alheims­ins er nátt­úru­lega bíó­mynd sem talar sterkt til þjóð­ar­innar og bara það að nefna Englar Alheims­ins er ein­hver teng­ing inn í eitt­hvað sér­ís­lenskt og sterkt. Það eru allir með sína upp­lifun og maður fær gæsa­húð að hugsa um þessa mynd og þessa sögu,“ sagði Logi um nýja lagið og að nafn lags­ins kæmi úr setn­ingu sem Huginn syngur í því.

„Við erum englar alheims­ins, leitum að æsku­sak­leysi
Það er rifa á sál­inni en þú, þú ert plást­ur­inn“

„Ég er búinn að þekkja Huginn lengi og hef alltaf verið ógeðs­lega hrif­inn af lög­unum hans,“ sagði Logi um hvernig sam­starfs hans Hugins kom til en Huginn hefur verið þekkt nafn í íslensku tón­list­ar­lífi í nokkur ár. „Við gáfum báðir út plötur sem voru mjög vin­sælar árið 2018 og ég er bara svo mik­ill fokk­ing hálf­viti að ég hlust­aði ekk­ert mikið á plöt­una hans Hugins það ár. Af því að ég var nýbú­inn að gefa út plötu sjálfur og var með svona laser tunnel vision fókus og var lítið að reyna hlusta á annað. En svo gaf ég mér tíma um dag­inn og hlust­aði á plöt­una hans og hún er svo ógeðs­lega góð og mér fannst hún í svona sama mengi og mín plata. Mér fannst að fólk ætti það skilið að við myndum gera lag saman. Ég heyrði fyrst í Huginn þegar Lil’ Binni í ClubDub sagði við mig „Hey, Huginn vinur minn er að gera músik og hún er fokk­ing feit“ og það var rétt.“

Líklegt er þó að aðdá­endur fyrri sólóplatna Logi muni verða hissa þegar þeir hlusta á nýja lagið en það er ólík­legt því efni sem var á fyrri plöt­unum.

„Það er kannski öðru­vísi en efnið á hinum tveimur plötum sem ég gefið út en á sama tíma þá hef ég verið að gera alls­konar músík. Allt frá því að hafa verið í Retro [Stefson] yfir að hafa verið að gera rapptón­list yfir að gera mjög straight up house og dans­tón­list undir Pedro Pilatus. Á sínum tíma var ég að fá spil­anir á BBC í þætt­inum hjá Skrem & Benga sem eru dubstep legend og þetta lag er nátt­úru­lega bara í sama hraða og það dæmi. Það var gaman að túna aðeins inn á það dót. Skoða aðeins vopna­búrið sem maður er með og sprengja þetta lið.“

„Árið 2024 hjá mér verður von­andi skemmti­legt,“ sagði Logi um vonir og drauma 2024. „Ég er að gera fullt af dóti. Fyrstu vör­urnar sem hann­aði fyrir fyr­ir­tæki eru að fara í fjölda­fram­leiðslu og verða sýndar á tísku­sýn­ing­unni í París. Það var merkið Ranra, ég teikn­aði skó fyrir þá. Ógeðs­lega skemmti­legt. Svo er ég að gefa út fullt af músík og platan kemur út fyrir sum­arið. Mér líður að maður sé loks­ins að rísa úr þessum hel­vítis Covid-draugi. Það er eitt­hvað að ger­ast, það er eitt­hvað að krauma niðri undir í sam­fé­lag­inu og mér líður eins og ég fokk­ing eigi heim­inn og geti gert hvað sem er, á jákvæðan hátt.“

En á hvaða íslensku tón­list er Logi að hlusta á sjálfur?

„Það lag sem ég er búinn að vera hlusta á und­an­farið sem virki­lega kveikti í mér er We Outside með Xiupill og það er lag sem ég hlusta á og ég var bara „Fokk. Þetta er fokk­ing sturlað. Þetta er alveg eitt­hvað geggjað nýtt,“ svo er ég er nátt­úru­lega ógeðs­lega hrif­inn af russian.girls eða Ex.girls eins og það heitir núna. Gufunes með tatjönu, Young Nazareth og Joey Christ. Það var svo geggjað lag sem kom út í fyrra. Þetta er það helsta sem ég er að hlusta á. Stað­reyndin er bara sú að ég hlusta bara mjög mikið á vini mína. Flóna, Birni, GDRN, það góða fólk“  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Seth Rogan verður meðal handritshöfunda en Culkin sjálfur kom með hugmyndina að framhaldinu.
Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027