Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Benidorm goðsögnin Sticky Vicky látin: „Hjarta mitt er brostið“

Sticky Vicky og Maria dóttir hennar
Sticky Vicky og Maria dóttir hennar

Benidorm-goð­sögnin Sticky Vicky er látin, átt­ræð að aldri.

Skemmti­kraft­ur­inn Vicky, sem hét réttu nafni Victoria María Aragüés Gadea, var goð­sögn á ferða­manna­svæðum Benedorm, sem heill­aði áhorf­endur með fram­andi dönsum sínum og furðu­legum brellum. Bretar og fleiri ferða­menn sótt­ust í að sjá atriði hennar sem voru bönnum börnum en margir þeirra hafa nú minnst hennar á sam­fé­lags­miðl­unum. Sagt er frá and­lát­inu á Mirror.

Dóttir hennar Maria skrif­aði á Facebook: „Það er með harmi sem ég segi þessi orð, móðir mín, Sticky Vicky lést í dag um klukkan sex í morgun, ég trúi því ekki. Hún er farin, umvafin fjöl­skyldu sinni, með allri okkar ást. Ég þakka Guði fyrir að hafa alltaf geta verið við hlið hennar. Hjarta mitt er brostið.“

Vicky byrj­aði ung að dansa á sýn­ingum en eftir dauð fas­ist­ans Francisco Franco og til­slökun á kyn­ferð­is­legri rit­skoðun, stóð Vicky frammi fyrir vand­ræðum því áhorf­endur kröfð­ust meiri nektar og eig­endur sýn­inga­stað­anna fóru að ráða fleiri erlenda dans­ara sem gátu fækkað fötum. Töfra­maður stakk upp á því við Vicky að hún tæki upp á því að draga ein­falda hluti út úr sköpum sínum. Byrjaði hún á að draga vasa­klúta út úr sér á sýn­ingum og sló í gegn en hún fór með sýn­ingu sína víða á Spáni og í önnur lönd. Seinna meir dró hún hluti á borð við borð­tenniskúlur, egg og rak­véla­blöð úr sköpum sínum og end­aði svo sýn­ing­una á því að opna bjór­flösku á svið­inu með sköp­unum. Smá saman varð sýn­ing hennar að ein­hvers­konar költ fyr­ir­bæri en margir ferð­uð­ust þús­unum kíló­metra til að sjá Vicky sýna hinar heims­frægu brellur. Talið er að sex millj­ónir manna hafi séð sýn­ingu hennar sem hún byrj­aði um miðjan átt­unda ára­tug­inn og þar til hún hætti árið 2016, þá 72 ára gömul.

Vicky var flutt á sjúkra­hús í júlí eftir að hafa dottið illa á hnén við það að fara út úr bíl sínum. Varði hún næstu dögum á sjúkra­hús­inu en var svo útskrifuð. Stuttu seinna var henni komið til spít­ala í flýti, eftir að hafa fundið frekar sárs­auka. Dán­ar­or­sök hafa ekki verið kunn­gjörð.

Einn af aðdá­endum hennar skrif­aði athuga­semd við til­kynn­ingu dóttur Vicky. „Guð blessi þig og þína fjöl­skyldu. Mamma þín kom Benidorm á kortið. Þegar þú sagðir Benidorm, sögðu allir Sticky Vick. Fallega kona, sannur skemmti­kraftur, hvíl í friði.“

Annar skrif­aði: „Sendi þér alla ást­ina… sá mömmu þína á 21 árs afmæli mínu, alvöru goð­sögn á hennar líf­tíma… Megi hún eiga besta rúmið í himna­ríki og hvíla í eilífum friði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027