Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Már Gunnarsson syngur í Söngvakeppninni: „Viðlagið kom til mín í kafi“

Már Gunnarsson
Már Gunn­ars­son

Systkinin Már Gunnarsson og Ísold Wilberg koma fram sem Amarosis í undan­keppni Söngva­keppni evrópskra sjónvarps­stöðva á fyrra undanúrslitakvödinu, 16. febrúar, og flytja þá lagið Don’t you know.

„Amaurosis er augn­sjúk­dómurinn minn,“ segir Már sem er blindur vegna augn­sjúkómsins Leber congenital amaurosis. „Við breyttum staf­setningunni aðeins. Amaurosis lítur ekki jafnvel út og Amarosis þannig að við ákváðum að taka „u“ út.“ Og úr varð heitið Amarosis. Nafnið Amarosis er hugmynd sem er búin að vera til í svolítið langan tíma; við Ísold höfum aldrei vitað almennilega hvað við ættum að gera við hana og okkur finnst núna vera tækifæri.“

Og ég er ótrú­lega stoltur af því að við erum að gera þetta saman sem systk­ini í söngvakeppn­inni.

Systkinin sömdu saman bæði lag og texta. „Fyrsta hugmyndin að laginu kom til mín þegar ég var í smádeitingveseni; það var smádrama í gangi. Ég var að fara á sundæfingu og hoppaði ofan í laugina og þegar ég var kominn í kaf þá kom viðlagið til mín og ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við þetta og heyrði í Ísold. Við gerðum síðan lagið að því sem það er í dag. Og ég er ótrúlega stoltur af því að við erum að gera þetta saman sem systkini í söngva­keppninni.“

Systkinin hafa áður unnið saman í tónlistinni og segir Már að það sé æðislegt að vinna með systur sinni. „Við erum systkini og það kemur alls konar upp; við erum rosalega góð saman. Ísold er æðisleg og við jöfnum hvort annað ofboðs­lega vel út. Ég held að fólk taki alveg eftir því að við erum systkini; við högum okkur stundum í samræmi við það en okkur þykir rosalega vænt um hvort annað. Styrk­leikar okkar vinna með hvor öðrum. Ísold er að mínu mati hin fullkomna söngkona. Hún getur sungið allt; allt frá rólegum lögum upp í þungarokk. Hún lifir sig 100% inn í hverja einustu setningu. Hún er meiri söngkona heldur en ég er söngvari.“

Hvernig myndi Már lýsa sér sem söngvara?

„Ég get ekki lýst því,“ segir hann og hlær. „Ég reyni bara eitthvað að opna munninni og syng eitthvað.“

Þetta er pínu popp­lag.

Már segist ennþá vera tónlistar­maður í þórun og að hann vonist til að verða það alla ævi. „Ég er að reyna að finna út hvar mínar áherslur liggja. Ég er að hluta til dálítið gamaldags. Ég er dálítið fyrir stórar og miklar laglínur; ég er dálítið fyrirferðar­mikill karakter. Síðan þykir mér gaman að prófa nýja hluti og ég er aðeins að reyna að einbeita mér að því eins og „Don’t you know“ er aðeins öðruvísi lag en ég hef samið áður. Þetta er pínu popplag. Meira popp.“

Hvað með áherslur í texta lagsins?

„Ég ætla ekki að segja að textinn sé dramatískur en hann er aðeins alvarlegri en laglínan gefur til kynna og okkur þykir það vera skemmtilegt tvist. En lagið er hresst; þetta er stuðlag og við vonum að þetta sé eitthvað sem fólk gæti hugsað sér að dilla sér við eða hafa gaman af. Við höfum allavega gaman af þessu lagi og við komumst alltaf í gír þegar við hlustum á þetta eða syngjum þetta.“

Systk­inin Már Gunn­ars­son og Ísold Wilberg sem keppa í und­ankeppni Euri­vos­ion í ár sem Amarosis.

Nýlega birtist frétt um að upplýsingum um lög íslensku keppendanna sem og um þá sjálfa  hefðu lekið á netið, nánar tiltekið á vefinn Eurovision fun.

„Það er bara leiðinlegt. Þau hjá RÚV hafa lagt mikið á sig í kringum þetta og við að skipuleggja þetta og þau eru búin að hugsa um þetta fram og til baka; það er leiðinlegt að einhver sé að eyði­leggja þetta. En annars hefur þetta engin áhrif á mig í sjálfu sér þannig séð.“

Már segir að það myndi gera helling fyrir sig og þau systkinin ef lagið kæmist áfram og þau tækju þátt í keppninni úti. „Þetta er að sjálfsögðu frábær auglýsing. Þetta er frábært tækifæri upp á til að mynda tengslanet og það yrði bara rosaleg viðurkenning ef þjóðin kysi okkur vegna þess að þetta er gríðar­lega ströng keppni.“

Við Ísold stefnum ótrauð áfram á að taka upp og gefa út músík.

Burtséð frá Eurovision; er plata fram undan? „Við Ísold stefnum ótrauð áfram á að taka upp og gefa út músík. Og við erum með fullt af hugmyndum sem okkur langar til að framkvæma. Síðan er ég líka að vinna með Ivu, vinkonu minni. Við erum líka að semja saman músík og erum að fara að gefa út efni. Þannnig að það er margt skemmtilegt að gera. Og svo er það ég sjálfur líka. Bara Már.“

Hver er draumurinn varðandi tónlistina?

„Það á bara eftir að koma í ljós en mig langar til að taka upp meira efni og núna nátt­úrlega er draumurinn að komast í Eurovision.“

Már keppti í fyrra í sundi á Ólymp­íu­leikum fatl­aðra.

Uppbyggilegt og gefandi

Már er fyrir norðan. Hann er í fyrirlestra­ferð en hann heldur reglulega fyrir­lestra og í þessari ferð heldur hann 11 fyrir­lestra á Norður­landi.

„Efir Ólympíu­leikana fóru skólar að hafa samband við mig til að fá mig til að spjalla við nemendur í bæði grunn- og framhalds­skólum og meira að segja í háskólum. Það er orðið meira að gera í því og núna akkúrat er ég í svona ferð og hitti ég örugglega um 1000 krakka samtals í þessari törn. Svo verður vonandi skemmtilegt framhald á þessu síðar,“ segir Már sem keppni í fyrra í sundi á Ólympíu­leikum fatlaðra í Tókýó.

„Ég segi á fyrir­lestrunum frá minni sögu, hvernig er að alast upp með augn­sjúkdóm og svo tala ég um tónlistina og afreks­íþróttir og síðan sýni ég myndir frá Tókýó-ferða­laginu mínu. Þetta er ótrúlega skemmtilegt.“

Ég væri til í að fara í alla skóla á land­inu; það væri algjör draumur.

Már segir að viðbrögð nemenda séu stórkostleg. „Krakkar hafa verið að senda mér prívat skilaboð eftir fyrir­lestrana varðandi þá sem og krakkar sem hafa heyrt af fyrir­lestrunum mínum og sem biðja mig um að koma í skólana til sín. Ég reyni að verða við óskum eins margra og hægt er. Ég væri til í að fara í alla skóla á landinu; það væri algjör draumur. Ég held að krakkar tengi við þetta af því að ég er ungur. Og viðbrögðin hafa verið frábær í þeim skólum sem ég hef farið í,“ segir Már sem hvetur áhugasama kennara og foreldra um að hafa samband við sig ef þeir hafa áhuga á að fá hann í heimsókn.

Már segist leggja áherslu á húmor á fyrir­lestrunum. „Ég kem með fullt af efni sem ég reyni að setja saman á skemmtilegan hátt og ég vil að það sé hlegið og haft gaman á fyrir­lestrunum mínum og síðan tek ég alltaf spjall með krökkunum eftir á og það koma alls konar skemmtilegar pælingar tengt því; eitthvað sem þeim dettur í hug.“

Hvert er markmiðið með þessum fyrir­lestrum?

„Ég vil að hver og einn taki það úr fyrir­lestrunum sem hver og einn tengir við; markmiðið er auðvitað að þetta á að vera uppbyggilegt og vonandi gefandi. Þetta er gefandi fyrir mig og vonandi er þetta gefandi fyrir þá sem mæta.“

Már er ungur og hæfileika­ríkur og á sér stóra drauma. Hann var spurður um draumana varðandi tónlistina og er svo í lokin spurður um drauminn sem hann dreymdi um nóttina.

„Ég er á þessu hóteli fyrir norðan og mig dreymdi að þetta hótel væri bæði hótel og tónlistar­skóli og það voru krakkar farnir að æfa á blokk­flautur klukkan sex um morguninn. Það var það sem mig dreymdi í nótt.“

Hvaða lag voru þeir að spila?

„Það var einhver hryllingur. Þetta var ekkert eyrna­konfekt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Á þingferli sínum vakti hún athygli fyrir að flytja ræður með annað brjóstið bert.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu