Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Samþykkisleysi verði grundvöllur nauðgunar

Öld­unga­deild Frakk­lands­þings sam­þykkti bylt­ing­ar­kennt frum­varp seint í gær.

Fagnar frumvarpinu
Fagnar frum­varp­inu Aurore Berge, jafn­rétt­is­mála­ráð­herra Frakk­lands, fagnar frum­varp­inu, en það er er við­bragð stjórn­valda eftir dóm í alræmdu nauðg­un­ar­máli Gisele Pericot. Mynd: JEAN-FRANCOIS MONIER / AFP

Öld­unga­deild franska þings­ins sam­þykkti frum­varp seint í gær, sem felur í sér að sam­þykk­is­leysi sé hluti af laga­legri skil­grein­ingu á nauðgun, sem ryður braut­ina fyrir opin­bera sam­þykkt þess á næstu mán­uðum.

Atkvæða­greiðslan kemur nokkrum mán­uðum eftir að dóm­stóll í Avignon sak­felldi franskan mann fyrir að hafa byrlað Gisèle Pélicot, eig­in­konu sinni, lyf svo hann og ókunn­ugir menn gætu nauðgað henni.

Málið vakti á ný athygli á útbreiddri tíðni nauð­gana og mik­il­vægi sam­þykkis.

Frum­varpið sem sam­þykkt var í vik­unni end­ur­skil­greinir öll kyn­ferð­is­brot, þar með talið nauðg­anir, sem „athafnir án sam­þykkis“.

Þjóð­þingið, neðri deild franska þings­ins, sam­þykkti fyrri útgáfu af frum­varp­inu í apríl.

Atkvæða­greiðslan á mið­viku­dag er þó ekki síð­asta hindr­unin í laga­ferl­inum. Gert er ráð fyrir að nefnd með full­trúum úr báðum deildum þings­ins útbúi sam­eig­in­lega útgáfu af frum­varp­inu áður en það verður end­an­lega sam­þykkt í hvorri deild fyrir sig.

„Samþykki felst ekki í því að segja nei,“ sagði jafn­rétt­is­mála­ráð­herr­ann Aurore Berge, heldur í því „að segja já, skýrt já, af frjálsum vilja, án þrýst­ings eða tví­ræðni“.

Atkvæða­greiðslan er „afger­andi skref í átt að raun­veru­legri menn­ingu sam­þykkis“, bætti hún við.

Frum­varpið sem báðar deildir þings­ins sam­þykktu skil­greinir sam­þykki sem „frjálst og upp­lýst, skýrt, fyrir fram gefið og aft­ur­kræft“ og bætir við að það „megi ekki álykta út frá þögn fórn­ar­lambs­ins eða skorti á við­brögðum einum saman“.

Núver­andi laga­skil­grein­ing á nauðgun í Frakk­landi er „hvers kyns kyn­ferð­is­leg inn­setn­ing... með ofbeldi, þvingun, hótun eða óvæntum hætti“, en með þessu frum­varpi yrði sér­stak­lega tekið fram að „ekki er sam­þykki til staðar við slíkar aðstæður“.

Þótt atkvæða­greiðslan á mið­viku­dag bendi til auk­ins sam­hljóms, hafa sumir þing­menn og aðgerða­sinnar lýst yfir áhyggjum af breyt­ing­unum.

Stuðn­ings­menn frum­varps­ins telja að með þessu verður auð­veld­ara að draga ger­endur til ábyrgðar. And­stæð­ingar ótt­ast aftur á móti að breyt­ing­arnar muni leiða til þess að rann­sak­endur ein­beiti sér óhóf­lega að hegðun fórn­ar­lamba.

Löggjöf sem byggir á sam­þykki í nauðg­un­ar­málum er þegar í gildi í nokkrum Evr­ópu­löndum, þar á meðal Þýska­landi, Hollandi, Spáni og Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé