Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Myrtu Bretar frægustu söngkonu Sýrlendinga? – Nýr hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar birtist í kvöld

Asmahan
Asmahan

Sumarið 1944 lætur söngkonan Asmahan lífið er bifreið, sem hún var farþegi í, var ekið útí Nílar­fljót í egypsku borginni Mansúra. Vinkona hennar sem einnig sat í bílnum lést sömuleiðis en ökumaðurinn lifði ósköpin af og komst þar að auki undan. Asmahan, sem er frægasta söngkona sem Sýrlendingar hafa alið, var á hátindi frægðar sinnar og tilbeðin hvarvetna sem arabíska var töluð og jafnvel víðar. Það var því ekki að undra að fjöl­miðlar, sem og almeningur, veltu því fyrir sér hverjir vildu koma henni fyrir kattarnef en minnstar líkur bentu til þess að um slys hefði verið að ræða. Sú kenning sem hæðst hefur flogið er sú að breska leyni­þjónustan hafi verið þar að verki en Asmahan var njósnari í síðari heim­styrjöldinni og átti í samstarfi við Bandamenn sem fór útum þúfur. Bendir ýmislegt til að hún hafi, meira að segja, reynt að snúa sér til andtæðinga þeirra, Nasista, þegar henni þótti ljóst að Bandamenn ætluðu að svíkja sig. 

Þannig bar til að söngkonan tilheyrði trúarhópi sem kallaður er Drús og hafði hún, í krafti frægðar sinnar og ættar­tengsla, mikil áhrif í þeim hópi. Þegar Nasistar gerðu víðreist um Miðausturlönd greip Charles de Gaulle hershöfðini Frakka á það ráð að fá Asmahan til að sannfæra landa sína um að veita ekki viðnám er Bandamenn legðu þar undir sig lönd. Á móti lofaði hann því að þegar búið yrði að stöðva framrás Þjóðverja og búa vel í haginn þar í botni Miðjarðar­hafs myndu þeir veita bæði Líbanon og Sýrlandi sjálf­stæði. En eitthvað stóð á efndum og voru landar hennar farnir að hafa orð á því að hún hefði látið plata sig. Asmahan fór þá áleiðis til Tyrklands, þar sem Þjóð­verjar voru fyrir á fleti, en var handtekin áður en hún náði á fund þeirra. Ekki er ljóst hvað henni stóð til en sumir hyggja að hún hafi haft í huga að leggjast á árar með Nasistum í hefndar­skyni en það er þó ekki víst. Hinsvegar liggur ljóst fyrir að samstafið fór á versta veg. Asmahan komst hinsvegar aftur til Kæró í Egypta­landi þar sem hún tók upp þráðinn þar sem frá var horfið á söng­ferlinum. En það stóð ekki lengi því, einsog fyrr segir, lést hún áður en Heim­styrjöldinni lauk. 

Því hefur líka verið fleygt að menn hand­gengnir stór­stjörnunni, söng­konunni egypsku Um Kúlþúm, hafi myrt hana til að losa þá egypsku við hatramma samkeppni. Um Kúlþúm er líklegast frægasti arabi sem uppi hefur verið og er stundum sagt að ágæti hennar sé það eina sem allir Arabar geti verið sammála um. Ekkert hefur verið sannað í þessum efnum fremur en öðrum.

Enn aðrir láta að því liggja að fjöl­skyldan heima á Sýrlandi hafi haft horn í síðu hennar en hún lifði gjör­samlega á skjön við þær hefðir, siði og reglur sem þar ríktu. Þótti sumum þar heima að hún hefði flekkað orðspor fjöl­skyldunnar. Til dæmis reykti hún einsog strompur og drakk sitt viskí, átti ástmenn og vafði sumum þeirra um fingur sér. Svo hafði frændi hennar, Hassan að nafni, sannfært hana eitt sinn um að láta söngferilin lönd og leið og giftast sér, koma til Sýrlands og sinna börnum og búi. Lét hún þetta eftir honum en sambúðinni lauk eftir mikið drama þar sem Asmahan reyndi að svifta sig lífi. 

Hvað sem öllum kenningum líður, má víst vera að Asmahan var einstök kona, langt á undan sinni samtíð og að lögin sem hún gerði fræg munu líklegast hljóma svo lengi sem arabíska er sungin.

Um þetta áhuga­verða mál er rætt í nýjasta hlaðvarps­þættinum Rúntað með Rucio sem hægt er að hlusta á hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.
Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri