Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Poppstjarnan Einar Ágúst vill deyja: „Ég er ekkert á sérstaklega góðum stað í lífinu“

Einar Ágúst Víðisson tónlistar­maður hefur marga fjöruna sopið. Hann hefur tekist á við þunglyndi og kvíða frá því að hann var barn og í dag er hann öryrki og hugsar reglulega um dauðann. Í viðtali við Mannlífið með Reyni Trausta­syni talar hann meðal annars um þung­lyndið, grófa framkomu sumra karla gagnvart konum, hand­tökurnar og himininn.

„Ég er með dauða­hugsanir á hverjum degi og langar bara að deyja,“ segir Einar Ágúst Víðisson sem segist hafa tekist á við þunglyndi og kvíða frá því að hann var krakki. Ótta. Hræðslu. Óöryggi. „Ég nenni þessu ekki. Ég er bara kominn með nóg. Ég er mjög brotinn og er ekki á besta stað í lífinu, en ég næ edrútímum og ég næ flugi og svo grípur kvíðinn og þung­lyndið inn í sem og verkirnir og ég fer niður brekku. Svo endar það með því að ég fæ mér Baileys í kaffið eða reyki eina jónu og svo upp á vagninn aftur. Það er þessi leiðinda­hringur í lífi mínu sem ég er orðinn svo þreyttur á. Ég er búinn að éta allan andskotann, svo sem þunglyndislyf, og ég er búinn að reyna svo margt. Ég fór á Reykja­lund; ég fór í langa endur­hæfingu og ég virðist ekki finna minn stað einhvern veginn.“

Langvar­andi sárs­auki er ofboðs­lega erf­iður

Hann er spurður hve lengi svona þunglyndis­tímabil standi yfir. „Vikur. Mánuði. Ár. Ég hef alveg tekið nokkur ár. Þetta er bara viðbjóður.

Ég er ekkert á sérstak­lega góðum stað í lífinu andlega og má við rosalega litlu. Ég veiktist svolítið alvarlega fyrir nokkrum árum. Þegar maður verður full­orðinn verða þessir veik­leikar eins og athyglis­brestur, þunglyndi og kvíði – hlutir sem maður gat hrækt úr sér í gamla daga – miklu erfiðari viðureignar, sérstak­lega athyglis­bresturinn, og maður er hættur að geta bitið á jaxlinn. Maður fattar að þetta er eins og fíknin og alkóhólisminn. Þetta eru krónískir sjúkdómar.“

Er Einar Ágúst hættur að drekka?

„Nei, ég fell. Ég hef náð einhverjum tíma og svo kemur í bakið á mér kvíðinn og þung­lyndið og svo er ég mikill verkja­sjúklingur og það er ofboðs­lega erfitt að díla við hluti eins og þunglyndi, kvíða og alla sína bresti ef maður finnur til. Lang­varandi sársauki er ofboðs­lega erfiður. Ég hef stúderað mikið þennan mannlega breysk­leika. Einhver sakaði mig um að vera narkissisti en ég finn svo ofboðs­lega til með öðrum þannig að ég krossa ekki í það box. Ég hef verið að reyna að finna sjálfan mig. Bróðir minn er sálfræðingur og hann sagði að ég væri með dass af öllu og það talsvert. Ég hef spurt sjálfan mig hvort ég sé geðveikur, sækópati, siðblindur eða narkissisti.“

Ég hef verið að reyna að finna sjálfan mig.

Hann hefur setið hjá sálfræðingi og lamið í kodda.

„Ég er búinn að prófa Dale Carnegie og allt þetta dótarí. Það eina sem hefur hjálpað mér í lífinu með mína bresti eða mína veikleika eru 12 sporin og undir­meðvitundar­fræði sem ég hef lært hjá Kára Eyþórs­syni í Ráðgjafa­skóla Íslands. Og það eru þeir hlutir sem hafa komið mér mest að gagni í lífinu.“

Ég er ekk­ert á sér­stak­lega góðum stað í líf­inu and­lega og má við rosa­lega litlu. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Mínu nafni hefur verið hent upp

Nei, lífið hefur ekki verið dans á rósum.

„Ég kynni mig oft sem Einar ógæfumann og fólki bregður við,“ segir Einar Ágúst og segir síðan að hann hafi notið gæfu í sínu lífi en að hann hafi einstakt lag á að klúðra hlutunum.

„Ég ofhugsa allt og díla við ekki nógu sterka sjálfs­mynd.“
Hann viðurkennir að hafa ekki einu sinni verið með sterka sjálfs­mynd þegar hann söng með Skíta­móral sem var ein vinsælasta hljóm­sveitin á landinu á sínum tíma.

Ég ofhugsa allt og díla við ekki nógu sterka sjálfs­mynd.

„Ég geri þetta af lífs og sálar kröftum og geri þetta af fyllstu einlægni – flyt músík, skemmti fólki og sem lög. Ég get ekki samið um myrkrið, dópið, ógæfuna og skilnaðina en ég get einhvern veginn fundið mig í því hlutverki að gleðja fólk.“

Og hann barðist við sviðs­skrekk. „Maður bara steig inn í óttann. Það er kannski þetta að geta ekki sagt „nei“ og þá var maður kominn í hlut­verkið og varð bara að láta sig hafa það.“

Og margir líta upp til söngvara. Og áheyrendur verða sumir skotnir í þeim.

„Ég segi stundum að ég sé strákur sem hafi ekki átt séns í stelpur nema af því að ég var í hljómsveit. Maður er enginn herra Ísland og maður fékk áður óséða athygli. Mér fannst gott að ég þurfti aldrei að taka ábyrgð á því; ef konur voru að horfa á mig eða karlar þá þurfti ég aldrei að akta á það. Ég gat farið baksviðs, lokað dyrunum og læst. Ég lét þar við sitja.“

Einar Ágúst er spurður hvort hann hafi aldrei verið skammaður fyrir að ganga of langt gagnvart konum.

„Jú, sérstak­lega núna nýverið hefur mínu nafni alveg verið hent upp og allt í góðu með það. Ég er ekki ofbeldis­maður eða kynferðis­afbrota­maður en í seinni tíð hef ég átt auðveldara með að grípa til ofbeldis en ég gerði áður. Ég hef aldrei kunnað að slást og ég hef alltaf verið lítill í mér.“

Jú, sér­stak­lega núna nýverið hefur mínu nafni alveg verið hent upp og allt í góðu með það.

Einar Ágúst er spurður hvort hann hafi aldrei verið skammaður fyrir að ganga of langt gagnvart konum. Hvað finnst honum um umræðuna í dag um einstaklinga sem það hafa gert?

„Án þess að maður hendi undir lestina einhverjum nöfnum þá er þessi umræða löngu tímabær, það er löngu tímabært að gera eitthvað í þessum málum og það er löngu tímabært að skera upp herör gegn þessari ógeðslegu nauðgunar­menningu sem karl­peningurinn hefur haft á kven­þjóðinni frá upphafi mannkyns­sögunnar. Þá höfum við verið níðingar. Og þegar þessi umræða fór af stað nýverið, þá sagði ég „yes, nú er þetta að gerast“. Svo fer umræðan út um allt og maður veit ekki hvar maður hefur fólk.

Ég hef sjálfur þurft að upplifa það í gegnum tíðina að hafa mikið að segja, en ég hef kannski skemmt rosalega mikið fyrir sjálfum mér með skapinu. Ég get gert fólk frávita af hræðslu með lýsingar­orðanotkun. Ef menn eru skap­miklir eins og ég og það kemur upp vandamál og maður æsir sig þá hef ég upplifað að maður sé þá búinn að taka svolítið það frá sjálfum sér að fólk taki eins mikið mark á manni. Þá er maður meira eins og vitleysingur eða bjáni. Ég held að fólk verði að passa sig svolítið á umræðunni í dag. Ég átti erfiðara með að rökræða og ræða málin í gamla daga. Ég var það lítill í mér að ef einhver kom að mér þá bara fraus ég. Svo fór ég heim og hugsaði að ég hefði átt að segja þetta eða hitt. Ég átti erfitt með að tjá mig langt fram á þrítugsaldur. Að standa fyrir mínu. Setja mörk.“

Ég held að fólk verði að passa sig svo­lítið á umræð­unni í dag.
Ég hef sjálfur þurft að upp­lifa það í gegnum tíð­ina að hafa mikið að segja en ég hef kannski skemmt rosa­lega mikið fyrir sjálfum mér með skap­inu. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Handtökur og dómur

Einar Ágúst þekkir Bakkus og svo þekkir hann líka önnur vímuefni. Hann tekur fram að honum þyki samt miklu skemmtilegra að syngja og spila þegar hann er edrú.

Hann segist einu sinni hafa fengið dóm; það var fyrir vörslu á 55 grömmum af amfetamíni.

„Ég var hand­tekinn í sambandi við dóperí 2004. Og svo árið 2005 með öll þessi skotvopn í Vogum á Vatnsleysu­strönd; 50 stolin skotvopn og ég fékk 40 löggur í heimsókn. Það hvarf byssusafn á Húsavík og félagi minn var staddur erlendis og hafði unnið í því fyrir eigandann sem hann þekkti að finna byssurnar. Það átti að senda þær úr landi og selja þær, skildist mér, og hvort að eigandinn fékk veður af því að félagi minn hefði bara stolið byssunum, og þá fékk hann lögregluna til að koma heim til okkar og ég var þarna einn að passa tvo hunda.“ Einar Ágúst segist ekkert hafa haft með þessar byssur að gera. „Hvað á ég að gera með skotvopn? Ég er reyndar mjög góð skytta. Ég fór á rjúpu og gæs. Höfum það á hreinu að eigandinn missti á endanum öll byssu­leyfin og missti safnið; það var tekið af honum. Og við vorum ekki einu sinni ákærðir.

50 stolin skot­vopn og ég fékk 40 löggur í heim­sókn.

Ég var einnig hand­tekinn árið 2004 í tengslum við hið svokallaða Dettifossmál sem var innflutningur á 11 kílóum af amfetamíni. Þeir vissu af 25 kílóum af hassi skilst mér sem þeir náðu aldrei, löggan, en ég var þá að versla eiturlyf og var hand­tekinn með þessu fólki,“ segir tónlistar­maðurinn en hann var að kaupa eiturlyf á heimili eins sakborningsins í Dettifoss­málinu þegar lögreglan gerði áhlaup og handtók alla viðstadda. „Ég var ekki einu sinni ákærður í því máli.“ Það breyttist þó margt í kjölfarið. „Ég sagði mig strax úr hljóm­sveitinni, hætti hjá útvarps­stöðinni FM þar sem ég vann og sagði upp hjá Íslenska útvarps­félaginu, þar sem ég vann einnig, og fór í langa meðferð en hef ekki notið sannmælis síðan.“

Ég sagði mig strax úr hljóm­sveit­inni, hætti hjá útvarps­stöð­inni FM þar sem ég vann og sagði upp hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu, þar sem ég vann einnig, og fór í langa með­ferð en hef ekki notið sann­mælis síðan. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Sveimhugi

Hann, sem hefur opnað svona á sál sína og veikleika, segist hafa átt góða æsku en hann ólst upp í nágrenni nátt­úrunnar í Neskaupstað.

„Ég byrjaði á því ungur að detta alls konar sniðugir hlutir í hug. Var svolítið trúðurinn. Var svolítill sveimhugi – ef kennararnir voru of lengi að tala um algebruna þá var ég kominn út í glugga að hugsa um eitthvað annað. Bara strax í barna­skóla.“

Hann byrjaði ungur að leika í leikritum í skólanum og upplifði mikinn sviðs­skrekk. Það er eitthvað sem hefur fylgt honum síðan.

„13 eða 14 ára var ég vélaður í einhverja söngvara­keppni. Þá var þar bassa­guðinn sjálfur Guðni Finnsson. Þeir voru með hljómsveit sem spilaði undir og ég man að ég tók þátt með laginu Stand by Me og vann þetta og var þá vélaður í hljómsveit með eldri frænda mínum og bekkjar­félaga hans. Við byrjuðum strax að fá að spila á 17. júní og á uppákomum fyrir austan. Það var alltaf ofboðs­lega mikið tónlistarlíf og það voru engin bílskúrs­bönd heima á Norðfirði. Bærinn reddaði húsnæði, það voru alltaf til græjur og þetta voru rosa forréttindi.“

Boltinn var byrjaður að rúlla.

Árin liðu og Einar Ágúst skemmti æ fleirum og varð frægari.

Svo var það Eurovison en Einar Ágúst og Telma Ágústs­dóttir kepptu í Eurovision fyrir Íslands hönd árið 2000 með laginu Tell Me! Hann viðurkennir að það hafi verið mikið ævintýri en þau Telma höfðu stofnað hljóm­sveitina Einar Ágúst & Telma árið 2000.

„Mig dreymdi aldrei um peninga, kerlingar eða frægð og frama. Bara að fá að skemmta fólki og vera með. Það er þráin. Ég hélt ég hefði ekki það sem þyrfti til að bera en svo gerðist það með vinnu- og eljuseminni. Alveg sama hversu lítill maður var í sér; alltaf steig maður upp aftur. Ég á tugi af lögum sem hafa floppað. Ég á tugi tækifæra sem hafa farið úrskeiðis eða ekki farið vel, en það sem hefur gengið hefur gengið þokkalega upp. Allt í einu var hljóm­sveitin orðin þetta vinsæl og allt í einu var ég kominn í Eurovision.“

Mig dreymdi aldrei um pen­inga, kerl­ingar eða frægð og frama.

Hann sem hefur gengið grýttan veg segist vera kominn til að vera. „Ég er tónlistar­maður og ég ætla að vera tónlistar­maður. Ég ætla að verða á himninum með þeim stærstu án þess að álíta mig einhvern snilling eða einhvern betri en annan. Ég ætla að vera þarna uppi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu