Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Utanríkisráðherrar ESB hafna refsiaðgerðum á hendur Ísrael

„Þessa verður minnst sem ein sví­virði­leg­asta stund í sögu Evr­ópu­sam­bands­ins“

Ursula von der Leyen
Ursula von der Leyen Fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins er vænt­an­legur í kurt­eis­is­heim­sókn til Íslands í dag. Mynd: Nicolas TUCAT / AFP)

Utan­rík­is­ráð­herrar ESB hafna tæki­færi til að setja vopna­sölu­bann eða refsi­að­gerðir gegn ísra­elskum ráð­herrum.

„Þessa verður minnst sem ein sví­virði­leg­asta stund í sögu Evr­ópu­sam­bands­ins,“ segir Agnès Callamard, fram­kvæmda­stýra Amnesty International í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Í kjöl­far ákvörð­unar ESB um að fresta ekki sam­starfs­samn­ingi ESB og Ísraels sagði Agnès Callamard, fram­kvæmda­stýra Amnesty International:

„Höfnun ESB á að fresta samn­ingnum við Ísrael er grimm og ólög­mæt svik við sjálfa grund­vall­ar­sýn Evr­ópu­sam­bands­ins sem bygg­ist á virð­ingu fyrir alþjóða­lögum og bar­áttu gegn harð­stjórn, svik við reglur sam­bands­ins sjálfs og mann­rétt­indi Palest­ínu­manna. Þessa verður minnst sem ein sví­virði­leg­asta stund í sögu Evr­ópu­sam­bands­ins. Evr­ópskir leið­togar höfðu tæki­færi til að taka sið­ferði­lega afstöðu gegn glæpum Ísraels, en í stað­inn veittu þeir grænt ljós á áfram­hald­andi þjóð­ar­morð á Gaza, ólög­mætt her­nám alls hernumda palest­ínska land­svæð­is­ins og kerf­is­bundið aðskiln­að­ar­stefnu­kerfi gegn Palest­ínu­mönnum.“

Og hún hélt áfram:

„Eigin úttekt ESB hefur skýrt sýnt fram á að Ísrael brýtur gegn mann­rétt­inda­skuld­bind­ingum sínum sam­kvæmt samn­ingnum. Samt sem áður kaus aðild­ar­ríkin að grípa ekki til aðgerða til að binda endi á brotin og forð­ast eigin sam­sekt, heldur halda í for­gangs­við­skipta­að­stöðu frekar en að upp­fylla alþjóð­legar skuld­bind­ingar sínar og vernda líf Palest­ínu­manna.“

Callamard segir ESB senda hættu­leg skila­boð til þeirra sem fremji grimmd­ar­verk.

„Þetta er meira en póli­tísk hug­leysi. Í hvert sinn sem ESB bregst við með aðgerða­leysi eykst hættan á sam­sekt í verkum Ísraels. Þetta sendir hættu­leg skila­boð til þeirra sem fremja grimmd­ar­verk: að þeir fái ekki aðeins að vera óáreittir heldur verði jafn­vel umb­unað.

Þolendur eiga skilið meira en inn­an­tómar yfir­lýs­ingar. Nú verða aðild­ar­ríki að grípa til ein­hliða aðgerða og slíta öllum formum sam­starfs við Ísrael sem kunna að stuðla að alvar­legum brotum þess á alþjóða­lögum. Þessar aðgerðir skulu fela í sér algert vopna- og eft­ir­lits­bún­að­ar­bann, sem og bann við við­skiptum og fjár­fest­ingum tengdum ólög­legum land­töku­byggðum Ísraels á hernumdu svæð­unum.“

Sam­starfs­samn­ingur ESB og Ísraels

Þann 15. júlí komu utan­rík­is­ráð­herrar ESB saman í Brussel til að ákveða hvort fresta ætti sam­starfs­samn­ingi ESB og Ísraels. Aðild­ar­ríkj­unum voru kynntar tíu mögu­legar aðgerðir, þar á meðal full frestun samn­ings­ins, tak­mörkun á við­skipta- og rann­sókn­ar­sam­starfi, vopna­sölu­bann, refsi­að­gerðir gegn ísra­elskum ráð­herrum, afnám vega­bréfs­frelsis fyrir ísra­elska rík­is­borg­ara í Evrópu eða bann við við­skiptum við land­töku­byggðir. Engin þess­ara til­lagna fékk nægi­legan stuðn­ing á fund­inum.

Nú verða aðild­ar­ríki að grípa til ein­hliða eða sam­hæfðra aðgerða til að sam­ræma fram­göngu sína við alþjóða­lög, sem ganga framar bæði reglum ESB og lands­lögum. Þau geta t.d. hegðað sér eins og samn­ing­ur­inn hafi verið settur í bið og ein­hliða stöðvað allt sam­starf við Ísrael sem kann að stuðla að alvar­legum brotum þess á alþjóða­lögum, m.a. með því að hindra við­skipta- eða fjár­fest­inga­tengsl sem við­halda ólög­mætri stöðu sem Ísrael hefur skapað á hernumda palest­ínska land­svæð­inu, eins og Alþjóða­dóm­stóll­inn kom inn á í áliti sínu árið 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé