Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Pétur er ánægður með nýja stjórn Festi: „Það var enginn skotinn og skorinn alveg“

Pétur Þorsteinsson var staddur á hluthafa­fundi Festis sem hófst í morgun, þar sem ný stjórn félagsins var kosin. Hann var á leiðinni út af fundinum þegar blaða­maður Mannlífs náði tali af honum. Hann segist ánægður með nýja stjórn.

„Ég held það, já.“ Hann vill ekki meina að um hallar­byltingu hafi verið að ræða. „Nei, ekki sérstök, voru ekki þrír af fimm sem voru inni? Þannig að það var enginn skotinn og skorinn alveg. En það er ágætt að þetta verði svona til þess að menn stoppi við og athugi sinn gang, að það verði ekki svona rosalega hratt farið eins og í þetta síðasta.“

Hluthafa­fundurinn var boðaður í kjölfar þess að Eggerti Þór Krist­óferssyni var sagt upp sem forstjóra Festis. Ólga var sögð vera meðal hluthafa í félaginu vegna ákvörðunar stjórnarinnar og var greint frá því að hlut­hafarnir hafi ekki fengið veður af uppsögninni fyrr en tilkynning um hana var send til Kaup­hallarinnar í byrjun júní. Raunar greindi stjórnin fyrst frá því að Eggert hefði sjálfur sagt starfi sínu lausu. Fljótlega kom í ljós að svo hafði ekki verið, heldur hafði stjórnin átt frumkvæði að uppsögninni.

Eggert hafði starfað hjá Festi og forvera félagsins í 11 ár. Hann er sagður afar vel liðinn, með gott orðspor í starfi.

Pétur segir ekki mikinn hita hafa verið í hluthafa­fundinum. „Nei, nei, ekki var það nú. Það var sátt um þetta.“

Pétur var sá sem lagði það til að nafni félagsins yrði breytt úr Festi í Sundrung, í ljósi undan­farinna atburða. Hann segir að fram að uppsögn Eggerts hafi verið friður um félagið.

„Þessi fundur var haldinn í kjölfar uppsagnarinnar til þess að menn gætu verið sáttari þegar uppi er staðið. Að þetta gerðist ekki aftur, þannig að það verði friður um starfið í framhaldi en ekki eins og undan­farnar umræður í fjöl­miðlum og á sundur­félags­miðlum, ekki samfélags­miðlum, eins og kom fram í ræðunni hjá mér; að það ætti að breyta nafninu í Sundrung.“

Pétur segir ekki ljóst hvort það standi til að reyna að ráða Eggert Þór aftur. „Ný stjórn tekur ákvörðun um það. Það er ekki neitt sem ég veit um.“

Pétur lagði það sjálfur til á fundinum að tillaga hans um nafna­breytingu yrði felld.

Pétur Þor­steins­son

Nýja stjórn Festis skipa:

Margrét Guðmunds­dóttir

Magnús Júlíusson – nýr meðlimur

Sigurlína Ingvars­dóttir – nýr meðlimur

Guðjón Reynisson

Hjörleifur Pálsson – nýr meðlimur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram