Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Stefán lýsir spillingu bæjarstjórans og Húsavík logar: „Beitir sér óspart í samkeppni frænda sinna“

Kristján Þór Magnússon
Kristján Þór Magn­ús­son

Hörkuátök  geisa á Húsavík vegna framgöngu Kristjáns Þórs Magnússonar, sveitar­stjóra á Húsavík, gagnvart hvala­skoðunar­fyrirtækinu Gentle Giants. Aðal­eigandi fyrir­tækisins, Stefán Guðmundsson, segir bæjar­stjórann hafa beitt sér gegn fyrir­tækinu og í þágu samkeppnis­aðila. Harðorð færsla hans á Facebook um bæjar­stjórann í fyrradag vakti gríðar­lega athygli.

„Allt stjórn­laust undir hans forystu og allt í steik. Vinir og kunningjar ráðnir á jötuna…jafnvel án auglýsinga. Beitir sér óspart í samkeppni frænda sinna og samstarfs­félaga gegn keppinautum – vanhæfur međ öllu. Óheiðarlegur,“ segir í færslu Stefáns.

Stefán Guð­munds­son, aðal­eig­andi Gentle Giants.

Óhætt er að segja að um fátt annað var rætt á Húsavík í gærdag. Fólk skiptist í tvær fylkingar í málinu. Sumir töldu Stefán hafa gengið of langt í ummælum sínum um spillinguna í bænum, en aðrir voru honum sammála. Stefán skrifaði aðra færslu í gærkvöld þar sem hann fjallaði um viðbrögðin.

„Aðeins meira um skoðun mína á bæjar­stjóranum frá í gærkvöldi. Dagurinn í kjölfarið hefur um margt verið áhugaverður. Lygilegur fjöldi skilaboða með undir­tektum og frekari upplýsingum. Svo eru nokkur skilaboð frá mannvits­brekkum sem bera sig aumlega … yfir minni skoðun á minni síðu og þá helst tíma­setningunni. Enn fremur hafa auðvitað fylgt comment frá aðilum sem skammast yfir hreinskiptninni. Sömu aðilar hafa fasta viðkomu á helstu kjafta-búllum staðarins og telja ekki eftir sér að spinna upp hálf­kveðnar vísur og dreifa öðrum með kunnug­legum endi. Jafnvel halda úti lokaðri FB kjafta­síðu um menn og málefni,“ skrifar Stefán.

Hann fékk meðal annars skammir fyrir að setja færsluna inn á sama tíma og bæjar­stjórinn væri í veikinda­leyfi um ófyrirsjáanlegan tíma. Stefán segir að tíma­setningin á sinni skoðun hafi verið algjör tilviljun. Hann hafi ekki haft minnstu hugmynd um hvernig þetta gæti mögulega verið röng tíma­setning.

En ef hann á um sárt að binda í sínu einka­lífi og veik­inda­leyfi – þá óska ég honum alls hins besta

„Enda býsna fjöl­breytt að því er virðist á hvaða forsendum starfs­menn stjórn­lauss stjórnsýslu­hússins fara í svokallað veikinda­leyfi undan­farnar vikur á fullum launum eftir því sem mér skilst best og mánuðum saman…og gjarnan tengt svokallaðri „kulnun“ í starfi. En eru um leið hoppandi og skoppandi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað. Svo er hitt. Sumir virðđast ekki geta skilið á milli pólitíkur og einkamála. Hafa ekkert endilega greind eða vilja til þess. Þá verður gjarnan til hræri­grautur skrítinna tilfinninga og skoðana­skipta. Skoðun mín á bæjar­stjóra og hans framgöngu undan­farin ár er óbreytt. Meira síðar. En ef hann á um sárt að binda í sínu einkalífi og veikinda­leyfi – þá óska ég honum alls hins besta og góðs bata. Dreg þar skýra línu,“ segir Stefán.

Ekki hefur náðst í Kristján Þór Magnússon sveitar­stjóra þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu