Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Helgi tekur Bjarkey til bæna- Kann ekki að skammast sín: „Hvers vegna faldi meirihlutinn erindi N4“

Fjölmiðla­maðurinn Helgi Seljan lætur Bjarkey Olsen Gunnars­dóttur, þingkonu VG og formann fjár­laganefndar, fá það óþvegið í pistli sem hann birtir á Facebook. Helgi segir hana ekki kunna að skammast sín eftir að hún fullyrti í Bítinu í morgun að ekki stæði til að draga til baka 100 milljón króna styrk til sjónvarpstöðvarinar N4. Helgi segir málið vera ævintýralegt fúsk en einnig felu­leikur, þar sem bréf framkvæmda­stjóra N4 til Alþingis var ekki birt, líkt og venja er.

Sjá einnig: María segist fara á hausinn ef ríkið styrki ekki N4 – Svona var bréf hennar til mágs síns

Hér fyrir neðan má lesa pistil Helga í heild sinni

-Að kunna ekki að skammast sín-

Formaður fjár­laganefndar mætti í Bítið í morgun – eftir að hafa baðað sig í eigin góðmennsku á samfélags­miðlum í gær á kostnað öryrkja – og varði þetta ævintýra­lega fúsk og feluleik varðandi erindis­rekstur hennar fyrir N4.

Bjarkey hélt því fram að það hefði nú aldeilis ekki verið hætt við að styrkja N4, margfalt á við aðra. Það væri bara sett í hendur ráðherra.

Það þyrfti bara að árétta skilning fólks á þessu öllu. Það fór nefnilega allt á hliðina, sagði hún.

Það hafi eitt vakað fyrir þeim blessuðum í meirihlutanum að bregðast við, því þau teldu og vildu auka stuðning við fjölmiðla á lands­byggðinni, einkum við fram­leiðslu þátta og sjónvarps­efnis. Því hentu þau þarna inn óvæntum hundrað millum, sem svo ráðherrann ætti bara að úthluta með áherslu á sjónvarps­efni á lands­byggðinni.

Síðan segir hún: „Það væri áhugavert ef Byggða­stofnun og fjölmiðla­nefnd myndu vinna greiningu á stöðu fjölmiðla í dreif­býlinu og koma með tillögur að því hvernig mætti gera betur þar.”

Það var og!

Þannig að sú bjarg­fasta trú þeirra meirihlutamennana, að nauðsynlegt væri að styrkja N4 byggði ekki á neinu nema þessari beiðni (því enginn annar bað um styrk eða hefði fengið hann samkvæmt upplegi nefndarinnar, þrátt fyrir full­yrðingar um annað).

Ekkert mat lág fyrir á nauðsyn þess að rjúka til og margfalda styrk til sjónvarps­markaðarins í kjördæmi Bjark­eyjar.

Bara bréf mágkonunnar frá Kaupmanna­höfn, uppfullt af rang­færslum.

(Hér er ágætt að benda á að inni á vef Fjölmiðla­nefndar blasir nú við stór frétt um úthlutun á sérstöku framlagi til lands­byggðar­miðla af fjölmiðla­styrknum, þar sem óskað er eftir umsóknum. Það er sem sagt þegar til slíkur sérstakur lands­byggðar­pottur, ofan á hinn almenna)

Skammar­hausinn beit svo Bjarkey af (í fáséðum stíl við annað) þegar hún lagði til að einn eigenda N4 tæki að sér að kanna þörf fyrir­tækisins fyrir aukið fé.

Ég gef mér reyndar að það hafi verið grín.

Eins og þegar hún reyndi að tala Stefán Vagn frá tillög­unni, sem hann sannarlega lagði fyrir þingið með meirihlutanum. Samlíkingin við bóndann og búvöru­samninginn var þar punchline, að ég held.

Eftir stendur ósvarað hvers vegna meirihlutinn faldi erindi N4 og ætlaði augljós­lega ekki að það kæmi fyrir augu okkar allra hinna.

Í proper þjóð­þingum væri það talið meiriháttar mál ef slík erindi væru ekki birt opinber­lega.

Hér er þetta hins vegar auka­atriði, enda virðist það einhverra hluta vegna vera einkamál fjöl­skyldna og kjördæma, hvernig hakkað er í pylsunar í fjár­laganefnd alþingis.

Forsvars­menn ríkis­stjórnarinnar verða að svara fyrir þessi vinnu­brögð; sem sannarlega var ekki undið ofan af nema af því að upp um þau komst.

Öryrkjar landsins geta svo þakkað Bjarkeyju góðmennskuna, og þá sérstak­lega þeir sem búa á höfuð­borgar­svæðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis