Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Sturlaðasta íbúð Íslands: 60fm á 550 þúsund: Eigandinn ætlaði að gista örsjaldan í rándýru rúmi

Fáir mótmæla því núorðið að húsnæðismál í Reykjavík eru fyrir löngu orðin galin. Aldrei virðist hægt að byggja nóg af íbúðum svo venjulegt fólk geti átt húsaskjól án þess að stofna til tug milljóna skulda eða greiða helming launa sinna til leigusala. Fjöldi íbúðahúsa hefur þó risið í miðbænum á síðustu árum, hvað með þær?

Ef marka má auglýsingu á vefnum Igloo þá standa þær auðar. Þar er 60 fermetra íbúð við Lauga­vegur 86 auglýst til leigu á 550 þúsund krónur á mánuði. Í auglýsingunni kemur fram að íbúðin hafi staði tóm í tvö ár því eigandinn hafði hugsað íbúðina sem „holiday íbúð“ fyrir sjálfan sig.

Þrátt fyrir að íbúðin yrði einungis notuð nokkra daga á ári þá var eigandinn ekki að spara þegar hann verslaði innan­stokksmuni. Til dæmis hlýtur rúmið að vera með þeim dýrustu á Íslandi. Í auglýsingu er farið yfir þetta:

„Allt innbú er sérpantað frá ítaliu og bestu mögulegu gæði sem til eru. Innbúið og breitingar kostuðu yfir 5 milljonir ISK þegar íbúðin var tekin í gegn fyrir 2 árum síðan. Rúmið og dýnan er eitt það dýrasta sem völ er á (frá Betra Bak) og kostar yfir 500 þús kr og er sérhannað fyrir bak stuðning + silki rúmföt ofl.“

Enginn hefur þó sofið í þessu dýra rúmi. „íbúðin hefur aldrei verið notuð síðan hún va tekin í gegn. (og er þannig séð glæný). Eigandi býr erlendis og hafði hugsað að nota þetta sem holiday íbúð fyrir fjöl­skylduna, en hefur ekki komið til íslands síðustu 2 árin og mun ekki komast vegna anna næstu árin þannig að íbúðin verður núna sett í leigu næstu 3-4 árin allavega,“ segir í auglýsingu.

Leigusali segir svo íbúðina einungis til leigu fyrir „100% einstakling eða par“. Enginn mun svo sjá það fólk enda íbúðin með „spegla­gler með hitafilmu var sett í all glugga þannig það sést ekkert inn um glugganan á daginn.“

Hér fyrir neðan má svo sjá myndir af dýrðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot og var fyrr á árinu dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir akstur án ökuréttar.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta