Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nýfæddur drengur bitinn af rottu í Garðinum: „Þegar ég tek hann inn sé ég storknað blóð“

Lengi hefur tíðkast hér á landi að láta ungabörn sofa úti í vagni. Upphaf­lega var ástæða útisvefns þröng húsakynni og pláss­leysi. Reynsla íslendinga er sú að yfirleytt sofi börn betur úti og hefur sú hefð haldist vel. Sumarið 1984 varð nýbökuð móðir í Garðinum fyrir óhugnalegri reynslu þegar 18 daga gamall sonur hennar var bitinn af rottu þar sem hann svaf í vagni.

„Nýbökuð móðir í Garðinum, Guðrún Sveinbjanardóttir, varð fyrir heldur ónotalegri reynslu á dögunum, nánar tiltekið á föstudaginn fyrir rúmri viku. Hún hafði lagt 18 daga gamlan son sinn til svefns í vagni fyrir utan heimili sitt er hún heyrði hann skyndi­lega orga hátt,“ sagði í frétt DV

„Ég fór út til hans en sá þá stóra rottu hlaupa af stéttinni og brá mjög. Ég tók strákinn inn og datt ekki í hug að neitt hefði gerst. Ég setti hann svo út aftur ,“ sagði móðirin. Þegar kom að því að fara með barnið aftur inn tók Guðrún eftir því að ekki væri allt með felldu.

„Þegar ég tek hann inn, sé ég storknað blóð á efri vörinni og tvö sár eftir tennur, annað dálítið djúpt. Ég varð mjög hrædd og rauk strax með strákinn á heilsugæslustöðina. Þar var sárið hreinsað upp og hann fékk svo meðal. Það var óskemmtilegt að lenda í þessu en sem betur fer varð honum ekki meint af bitinu og sárið er að gróa.”

Í fréttinni er tekið fram að barnið hafi verið klætt í góðan útigalla, það hafi komið í veg fyrir að rottan hafi náð að ráðast á barkann á barninu
Á þessum árum var ekki mikið um rottur í Garðinum en Guðrún setti sig í samband við fagaðila þar sem hún óttaðist að um væri að ræða faraldur. „Ég hafði samband við meindýraeyði og spurði hann hvort hér væri einhver rottu­faraldur en hann sagði að það hefði alls ekki verið mikið um þær í Garðinum, en meira í Keflavík og Njarðvík,” sagði Guðrún.

Eins og áður kom fram varð barninu ekki meint af þessari furðulegu og ónotalegu reynslu og var tekið fram í blaði DV að sárin greru vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim