Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Vonbrigði að ekki sé slakað á takmörkunum á landamærunum

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar Mynd: Björgvin Kolbeinsson

Samtök ferða­þjónustunnar (SAF) eru hagsmuna­samtök fyrir­tækja sem starfa í ferða­þjónustu, en þau lýsa óánægju sinni með sótt­varnar­aðgerðir á landa­mærunum í dag.

„Það eru mikil vonbrigði að ríkis­stjórnin hafi ákveðið að slaka ekki á takmörkunum á landa­mærum í dag samhliða hraðari afléttingu innanlands. Nú er komin upp sú staða að öll sóttkví hefur verið afnumin vegna smita innanlands, þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti er ekki skylt að viðhafa smitgát og þeir sem eru í sóttkví þurfa ekki að undir­gangast próf til að losna. Þessar reglur gilda án tillits til bólu­setningar­stöðu.

Samt sem áður er enn krafist neikvæðs prófs af bólu­settum ferða­mönnum á leið til landsins sem er í algerri andstöðu við fyrr­greindar reglur. Einnig er enn krafist sóttkvíar og tvöfaldrar skimunar af óbólusettum á landa­mærunum. Nú er því komið upp hrópandi ósamræmi milli sóttvarna­krafna innanlands og á landa­mærum.

SAF benda enn og aftur á að það er algerlega óásættanlegt að landamæra­hindrunum sé viðhaldið þegar gögn, rök og ákvarðanir stjórn­valda sýna að hægt sé að létta hratt á sótt­vörnum án mikillar hættu á ofálagi á heilbrigðis­kerfið.

SAF ítreka fyrri ábendingar um að Alþjóða helibrigðisstofnunin WHO hvetur nú ríki heims til að afnema landamæra­hindranir, enda nái þær ekki tilgangi sínum heldur valdi efnahags­legum og samfélags­legum skaða, sérstak­lega gagnvart ferða­þjónustu. Það er sannarlega staðan á Íslandi í dag.

#SAF2022 #ferða­þjónustan #viðspyrnan #landamæra­hindranir“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu