Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Segist fórnarlamb samsæris: „Sjálfstæðismaðurinn með fallega nafnið“ með alla þræði í höndum sér

Undan­farin ár þá hefur Bryndís Schram ávallt staðið með eigin­manni sínum Jóni Baldvini Hannibals­syni. Hún hefur frá upphafi neitað að trúa frásögnum kvenna um óeðlilega hegðun Jóns Baldvins. Bryndís fullyrðir á Facebook í dag að öll sú umræða sé runninn undan rifjum eins manns, Friðjóni Friðjóns­syni, vara­þingmanni Sjálfstæðis­flokksins.

Bryndís skrifar: „Sjálfstæðis­manninum með fallega nafnið, Friðjóni Friðjóns­syni, hafa eflaust borist margar „ljótar sögur“ um mig og manninn minn, sem hann lýsti eftir úr sorp­tunnum samfélagsins (og ég minntist á í gær).Mér finnst það liggja ljóst fyrir, að aðal­ástæða þess, að við erum útskúfuð í dag, eru þessar sögur, sem almanna­tengill Sjálfstæðis­flokksins auglýsti eftir á sínum tíma. Það þorir bara enginn að segja það upphátt.“

Hún fullyrðir enn fremur að allt sé þetta lygi. Hún nefnir sérstak­lega að hún kannist ekki við að hafa verið áberandi full, líkt og kom fram í sumum sögum. „En ég get sagt ykkur, að allar þessar ljótu sögur um okkur Jón Baldvin eru lyga­þvaður – haturs­póstur sem á sér enga stoð í raun­veru­leikanum. Ég neyddist til þess að lesa þessar sögur á sínum tíma á síðum Stundarinnar þann 11. Janúar, 2019, og mig sundlaði við þann lestur, rétt eins og mig sundlaði undir öskrum og lygum Laufeyjar Óskar á heimili mínu sumarið áður.

Og ég þekkti ekki þetta fólk, sem verið var að lýsa. Voru þetta við Jón Baldvin? Hann káfandi læri og rassa ókunnra kvenna og ég þuklandi á kynfærum ungra karla? Alltaf sífull, flissandi drusla – í einu orði sagt viðbjóðsleg? Um leið og ég las þessar lýsingar á sjálfri mér, þá vissi ég samstundis, að sögurnar um manninn voru líka lygi,“ segir Bryndís.

Hún segist að lokum vona að dómstólar trúi henni. „Allar sögurnar um okkur, sem birtust í Stundinni 2019 voru fyrndar – nema ein. Sagan frá sumrinu áður – sem er lygi frá upphafi til enda. Það skal ég sverja við nöfn foreldra minna og dóttur, sem nú ekki lengur á meðal vor. Nú sitjum við sem sakborningar frammi fyrir dómstólum og bíðum örlaga okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi