Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Britney dansar af lífi og sál – Eitthvað í vændum

Britney Spears, söngkonan ástsæla er greini­lega í góðum gír þessa dagana og í toppformi.

Hún sló í gegn síðastliðinn miðvikudag á Instagram þegar hún dansaði, í rauðum samfesting eða sundbol og háum hælum eins og henni einni er lagið. Þannig sagði hún 39,9 milljón fylgendum sínum á miðlinum að þetta væri kitla fyrir það sem koma skyldi. Undir hljómaði lagið hennar „Get naked“ af plötunni Blackout sem kom út árið 2007.

Britney hefur gengið í gegnum mikla erfið­leika síðustu ár vegna föður hennar en hún endur­heimti nýlega sjálfræði sitt, sem hann fór áður með. Þar með hefur Britney verið úrskurðuð hæf til að geta tekið ákvarðanir fyrir sjálfa sig um eigið líf. Britney er reið vegna aðgerða­leysis hinna meðlima fjöl­skyldunnar og vill fara í mál við þau.

Þegar faðir hennar fór með forræði yfir henni var Britney meðal annars neydd til þess að taka getnaðar­varnir gegn eigin vilja. Hún þurfti einnig að vinna og sitja fundi í tíu klukku­stundir á dag, alla daga vikunnar, til þess eins að mega hitta börnin sín og kærasta. Hún fékk enga frídaga að eigin sögn. Britney bætti því við að faðir hennar hafi haft gaman af því að stjórnast með hana eins og hann lysti, þótt hann vissi að margt af því væri gegn vilja hennar.

Unnusti Britney, hinn 26 ára gamli Sam Asghari, hefur staðið þétt við bakið á henni á þeim sjö árum sem þau hafa verið saman. Síðastliðinn miðvikudag talaði Sam í beinni útsendingu á Amazon um Valentínusar­gjafir og að verðið á gjöfunum endur­spegli ekki hversu heitt þú elskir makann þinn. Hann stakk líka upp á nokkrum gjafa­hugmyndum fyrir hlustendur.

Í nóvember síðastliðnum opinberuðu Britney og Sam trúlofun sína á Instagram og stefna þau á barn­eignir í komandi framtíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Á þingferli sínum vakti hún athygli fyrir að flytja ræður með annað brjóstið bert.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt