Tískuæði virðist hafa gripið fræga fólkið í útlöndum í ofurhitanum sem geysað hefur í sumar. Æðið eru nektarmyndir.
Ástæður fræga fólksins fyrir að birta myndir af sér fáklæddu í sumar, eru ærið misjafnar. Sumir gerðu það til að monta sig á stæltum líkamanum á meðan aðrir vildu með því fagna fjölbreytileikanum, sjálfsást og gefa aldursfordómum fingurinn.
Hér fyrir neðan má sjá rjómann af fákæddum stjörnum frá því í sumar (ef klikkað er á þær stækka myndirnar).
Rapparinn Bad Bunny lagði internetið á hliðina þegar hann birti þessa heitu mynd af sér í útisturtu í ágúst.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Einhverjir rasshausar kvörtuðu þegar hin glæsilega 56 ára Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry birti þessa fallegu mynd af sér í sumar. Hún svaraði á kómískan hátt, eins og henni er líkt.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Lisa Rinna úr Real Housewifes raunveruleikaþáttunum skyldi nákvæmlega ekkert eftir fyrir ímyndunaraflið.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Rumer Willis birti þessa fallegu mynd af sér þremur mánuðum eftir barnsburð. Skrifaði hún við myndina að þessi líkami hefði skapað líf frá grunni.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
John Stamos birti þessa skemmtilegu sturtumynd í tilefni af sextugsafmæli sínu í ágúst.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Jennifer Lopez birti þessa sjóðheitu ljósmynd af eiginmanni sínum Ben Affleck í tilefni af feðradeginum.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Gwyneth Paltrow baðaði sig ber að ofan í sólinni ásamt eiginmanni sínum í júní.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Leikkonan Kate Hudson birti skemmtilega sumarmynd af sér með bók í hönd.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Söngkonan Camila Cabello skellti sér í nektarsund í Puerto Rico í sumar.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Ef þú hefur ekki sturtað þig utandyra á meðan eiginmaður þinn reynir að hræða þig á fimm mínútna fresti, hefurðu ekki lifað!, skrifaði söngkonan Pink við þessa skemmtilegu ljósmynd.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Leikkonan Jenny Mollen húkkaði sér far í sumar. Einhver hlýtur að hafa stoppað.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Hin síunga leikkona Sofia Vergara sýndi bossann í hitanum.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Módelið og leikkonan Elizabeth Hurley birti þessa afslappandi sumarmynd.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Sami Sheen, dóttir Charlie Sheen og Denise Richards var ófeimin að sýna sig í fríi á Havaí
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Eric Decker fækkaði fötum til að auglýsa matreiðslubók konu sinnar, Jesse James Decker
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Fyrrum spjallþáttastjórnandinn Ricki Lake birti þessa fallegu mynd og talaði um mikilvægi sjálfsástar.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Modern Family leikarinn Nolan Gould er ekki lítill lengur
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Fyrirsætan Coco sýndi sinn lögulega rass í sumarsólinni, ekki í fyrsta skiptið og örugglega ekki í það síðasta.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Söngkonan Rosalía birti þessa sætu sumarmynd.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Súpermódelið Paulina Porizkova sannaði að aldurinn skipti akkurat engu máli þegar kemur að nektarmyndum.
Mynd: Trausti Hafsteinsson
Leik og söngvarinn sykursæti Jared Leto birti þessa glæsilegu mynd af náttúrunni. Já og sjálfum sér.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir