Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Flugbátur steyptist í sjóinn rétt eftir flugtak – Þrír farþegar sukku með flakinu

Flugbátur af sömu gerð og fórst í slysinu.
Flug­bátur af sömu gerð og fórst í slys­inu. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Flugbátur á eigu Loftleiða hófst á loft nálægt Búðardal með átta manneskjum innanborðs. Illa hafði gengið að koma flug­bátnum á loft en það tókst í þriðju tilraun. En vélin komst ekki langt því er hún var komin í um 30 metra hæð, tók hún snarpa vinstri beygju og steyptist í sjóinn á vinstri væng og nef og hvolfdi um leið og í sjóinn var komið. Fjórir létust, þrír særðust og einn komst lífs af án teljandi meiðsla. Þetta gerðist 13. mars árið 1947.

Morgun­blaðið sagði frá slysinu daginn eftir á eftir­farandi hátt:

4 FARÞEGAR LÁTA LÍFIÐ Í FLUGSLYSI

FLUGBÁTUR HRAPAR VIÐ BÚÐARDAL
Átta manns voru í flugvjelinni

Í GÆRDAG hrapaði í sjóinn vestur við Búðardal Grumman flugbátur er var að leggja af stað. Í honum voru átta manns. Af sjö farþegum fórust fjórir.- Tvær konur, önnur hjeðan úr Reykjavík, en hin frá Búðardal, og tveir karlmenn. Annar frá ísafirði en hinn frá Búðardal. Af þeim fjórum sem bjargað var slapp aðeins einn ómeiddur. Er slysið vildi til, var veður hið besta og ládauður sjór. Þeir sem fórust með flug- bátnum voru:

Frú Elísabet Guðmunds­dóttir, Búðardal, kona Magnúsar Rögnvalds­sonar, verk­stjóra í Búðardal. Hún var um fertugt.

Frú María Guðmunds­dóttir, ekkja Guðjóns heitins Gamalielssonar, húsa­meistara, frá Berg­stöðum við Berg­staðastræti, Reykjavík.

Einar Oddur Kristjánsson, gull­smiður, Ísafirði, lætur eftir sig konu og 3 uppkomin börn.

Magnús Sigurjónsson frá Hvammi í Dölum. Hann var ungur maður einhleypur.

Þeir sem björguðust: Þrem farþegum og flug­manninum var bjargað. Farþegarnir voru: Benedikt Gíslason, prentmynda­gerðamaður, Reykjavík, frú Guðrún Arna­dóttir, læknisfrú í Búðardal og Magnús Halldórsson frá Ketils­stöðum við Búðardal. Flugmaður var Jóhannes Markússon.

Á leið til Reykja­víkur


Grummanflugbátur þessi var eign h.f. Loftleiða. Ferðinni var heitið til Reykja­víkur. En bæði á Ísafirði og á Djúpuvík höfðu farþegar verið teknir. — María heitin Guðmunds­dóttir kom í flugvjelina á Djúpuvík, en Einar O. Kristjánsson á Ísafirði. Flugvjelin settist á sjóinn skamt fyrir framan kauptúnið. Voru farþegarnir 5, sem ætluðu að taka sjer far með flug,- vjelinni fluttir á bát út í vjelina. Rjeru þeir bátnum tveir: Eiður Sigurðsson, bílstjóri í Búðardal og Aðalsteinn Guðmundsson, verka­maður. Er þeir höfðu skilað farþegunum út í vjelina snúa þeir á bátnum til lands. En mótorar flugvjelarinnar voru settir af stað. Eftir litla stund rennir flugmaður vjelinni til flugs. Lyftist hún lítið eitt upp frá sjávar­fletinum. En síðan sjá menn sjer til mikillar skelfingar að flugvjelin tekur að hallast. — Hvolfist hún yfir á vinstri væng og snýst svo að það skiftir engum togum, að hún er á hvolfi í sjónum, en marar þar í kafi. Sjónar­vottar geta enga grein gert sjer fyrir því hvað hafi verið orsök þess að svo fór. En hvað flugmaður segir um orsakir slyssins vissi blaðið ekki í gærkvöldi. Felmtri sló á alla í Búðardal yfir þessu sviplega slysi, sem þama gerðist fyrir augum þeirra án þess að nokkur gæti gert sjer grein fyrir orsökum þess.

Björgunar­starfið

Mennirnir á ferju­bátnum, sem rjeru út að flugvjelinni með farþegana fylgdust með því, sem gerðist. Rjeru þeir nú lífróður út að flugvjelinni, þar sem hún lá í sjónum og maraði í kafi. Fimm af þeim, sem í vjelinni voru höfðu komist út úr henni. Flug­maðurinn, Jóhannes Markússon hafði komist upp á kjöl vjelarinnar og eins Benedikt Gíslason. Þeir höfðu náð í Maríu heitina og hjeldu henni upp úr sjónum.

En Magnús Halldórsson og eins frú Guðrún Árna­dóttir höfðu náð taki á flugvjelinni, nálægt dyrunum og hjeldu sjer þar. Er blaðið átti tal við Eið Sigurðsson í gærkvöldi til þess að spyrja hann um nánari atvik að slysinu, skýrði hann m.a. svo frá að greiðlega hefði gengið fyrir þeim tveim, sem í bátnum voru að bjarga þeim, sem komist höfðu út úr vjelinni. — Gerði hann ráð fyrir að liðið hefðu um 15—20 mínútur frá því að flugvjelin hrapaði þangað til að þeir höfðu náð fólkinu í bátinn. En að því búnu taldi hann að ekkert viðlit hefði verið að bjarga þeim, sem inni í flugvjelinni voru. Því að flugvjelin var þá fyrir löngu full af sjó og sennilega að farþegarnir hafi aldrei losað sig úr sætis­böndunum, sem spent voru um þá er flugvjelin skyldi hefja sig til flugs.

Hvernig komust þeir út?

Ekki er hægt að gera sjer grein fyrir því hvernig þeir komust út úr vjelinni, sem björguðust. Eiður sagði blaðinu, að Benedikt Gíslason hefði sagt sjeir, að hann hefði orðið þess var að flugvjelin fór að hallast ískyggilega mikið, þá sagt sjer, að er hann hefði orðið losað ólina, sem hann var bundinn með í sæti sitt. En hann hafði enga hugmynd um hvernig hann komst út úr flugvjelinni. Er Eiður og Aðalsteinn voru komnir með fólkið í land hlupu aðrir menn út í bátinn til þesg að róa út að flugvjelarflakinu og freista að ná þeim, sem þar voru eftir. En þeir voru ekkl komnir nema skamt frá landi er þeir sáu að flugvjelarflakið sökk. Óvíst var talið er í land kom hvort María heitin væri lífs eða liðin. Hóf hjeraðslæknir þegar lífgunar­tilraunir, en þær báru ekki árangur. Guðrún Ámadóttir, kona hjeraðslæknisins var handleggs­brotin. En flugmaður, talsvert særður á höfði. Benedikt var ósár. Magnús Ketilsson var lítils háttar meiddur. Skýrði læknirinn blaðinu svo frá í gærkvöldi, að þeim, sem meiddust liði bærilega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kröfuhafar fengu ekkert greitt úr fjórum búum þar sem lýstar kröfur námu samtals rúmum 34,2 milljónum króna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta