Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

V-dagurinn 20 ára: „Ofbeldi gegn konum er órjúfanlega tengt drottnunargirni manna“

„Hvorki stjórn­laus kynhvöt, sjúklegir eigin­leikar né utan­aðkomandi aðstæður fá karla til að nauðga. Nauðgun er ofbeldi sem miðar að því að lítil­lækka, niður­lægja og kúga þann sem er nauðgað. Nauðgun undirokar konur á hrotta­fullan hátt og vitundin um hættuna á nauðgun er ógn sem takmarkar og heftir frelsi allra kvenna.“

Þessi orð eru með þeim fyrstu sem blasa við í grein í Mannlífi frá febrúar­mánuði ársins 2002. Greinin var skrifuð í tilefni V-dagsins, sem var haldinn í fyrsta sinn á Valentínusar­daginn, þann 14. febrúar árið 2002, fyrir tuttugu árum síðan. Gerður Kristný skrifaði greinina.

Vegna samfélags­umræðunnar undan­farin misseri í tengslum við kynbundið ofbeldi er áhugavert að spegla umræðuna um mála­flokkinn fyrir tuttugu árum síðan, við það hvar við stöndum nú.

Skjáskot úr grein Mannlífs eftir Gerði Kristnýju.

Ekki meira ofbeldi

„Á Valentínusar­daginn 14. febrúar nk. verður í fyrsta skipti efnt til svokallaðs V-dags hér á landi en hann hefur verið haldinn víða um heim undan­farin fjögur ár í þeim tilgangi að vekja fólk til umhugsunar um kynferðis­ofbeldi gegn konum.“

Það var uppruna­lega hópur bandarískra kvenna sem kom V-deginum á fót í tengslum við leikritið „Vagina Monologues“ eða Píkusögur, eftir Eve Ensler. Leikritið var sýnt hér á landi í Borgar­leikhúsinu á sínum tíma og naut mikilla vinsælda. Fyrir tuttugu árum tók hópur fólks sig svo saman hér á landi og komu V-deginum á dagskrá. Þetta voru þau Þórey Vilhjálms­dóttir, Ingibjörg Stef­ánsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Birta Ósk Gunnars­dóttir, Logi Unnarson Jónsson og Edda Jóns­dóttir.

„Ekki er aðeins um að ræða einn dag því 14. febrúar verður stofn­dagur samtaka kenndum við V-daginn sem, líkt og bandaríski forverinn, hyggjast vinna gegn ofbeldi á konum. Er samtökunum ætlað að starfa sem einskonar þrýsti­hópur. Eitt markmið er tekið fyrir í einu og í ár urðu nauðganir fyrir valinu. Líkt og þorra þjóðarinnar finnst sexmenningunum brýnt að meðferð mála verði manneskjulegri svo ekki hvarfli annað að fórnar­lömbum nauðgana en að kæra verknaðinn. Engin fylgni er á milli fjölda kæra annars vegar og hins vegar þeirra sem leita aðstoðar Stígamóta eða Neyðar­móttöku á Land­spítalanum í Fossvogi vegna nauðgunar. Auk þess krefjast stofn­endur V-dags samtak­anna þyngri dóma yfir gerendum en þeir hafa þótt of vægir t.d. miðað við dómana sem fíkniefna­smyglarar hafa fengið undan­farin misseri. Allir þeir sem koma að skipulagningu V-dagsins gefa vinnu sína og verður fjármagn fengið frá fyrir­tækjum, opinberum aðilum og einka­aðilum.“

Aftast f.v: Eva María Jóns­dóttir, Össur Skarp­héð­ins­son og dóttir hans Ing­veldur, sr. Anna Sigríður Páls­dóttir, Andri Snær Magnason, Örn Arnarson, Elva Dögg Melsteð, Nína Björk Gunn­ars­dóttir, Hall­grímur Helgason. Miðröð: Sóley Elí­as­dóttir, Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir. Fremst f.v: Erpur Eyvind­ar­son, Guðjón Már Guð­jóns­son, Ragnar Kjart­ans­son.

Enn í sömu umræðu

Það er athyglis­vert að skoða ummæli stofn­endanna um að meðferð kynferðis­brotamála þyrfti að verða manneskjulegri, „svo ekki hvarfli annað að fórnar­lömbum nauðgana en að kæra verknaðinn.“ Nú, tuttugu árum síðar, er enn verið að ræða sömu hluti. Í síðustu viku fjallaði frétta­skýringa­þátturinn Kveikur einmitt um þau mál. Þar var talað um alltof langan máls­meðferðar­tíma, sem og ómanneskjulegt ferli mála gagnvart brota­þolum, þar sem brota­þolar eru ekki aðilar að eigin málum, heldur vitni, og fá þannig ekki aðgengi að réttar­höldunum né öllum máls­gögnum.

Sömuleiðis hefur lengi vel verið, og er enn, gagnrýnt hve hátt hlutfall kæra eru felldar niður að rannsókn lokinni og komast því aldrei alla leið fyrir dómstóla.

„V-dagurinn verður haldinn þar til ekki verður lengur til kynferðis­ofbeldi gegn konum. Við sjáum fyrir okkur samfélag þar sem konur lifa frjálsar og öruggar,“ sögðu stofn­endur samtak­anna.

Aftast f.v: Guðjón Pedersen, Björn Ingi Hilm­ars­son, sr. Pétur Matth­í­as­son, Halldóra Geir­harðs­dóttir, Didda, Einar Ágúst. Miðröð f.v: Gísli Marteinn Bald­urs­son, Þórunn Lár­us­dóttir, Andrea Róberts­dóttir, Logi Bergmann Eiðsson, Margrét Rós Gunn­ars­dóttir, Elísabet Dav­íðs­dóttir, Eva Bergþóra Guð­bergs­dóttir, Hrafn Didduson. Fremst f.v: Edda Pét­urs­dóttir, Védís Hervör Árna­dóttir.

Samantekt árið 2002

Í samantekt Eddu Jóns­dóttur, eins stofn­meðlima V-dagsins, segir eftir­farandi, ásamt því sem stendur efst í greininni:

„Árið 2000 leituðu 74 konur sér hjálpar hjá Stíga­mótum vegna 84 nauðgana. Af þeim hafði 60,7% verið nauðgað af einhverjum sem þær þekktu (vini/kunningja), 11,9% hafði verið nauðgað af maka sínum og 20,2% af ókunnugum.

Á árunum 1997-2000 var tilkynnt um nauðgun til lögreglu alls 173 sinnum. Þar af voru aðeins 67 mál send til ríkis­saksóknara og 18 kærur gefnar út en ein þeirra var aftur­kölluð. Ellefu nauðgarar voru sakfelldir, sex sýknaðir og sex málum var svo áfrýjað. Í Hæstarétti var einn nauðgari sýknaður á tíma­bilinu og þrír sakfelldir.

Nýlega var bætt inn í almenn hegningarlög ákvæði með það að markmiði að veita vitnum í sakamálum sérstaka refsivernd gegn hótunum og þvingunum. Þar að auki voru sett lög um nálgunar­bann í nóvember 2000.

Samkvæmt bráðabirgða­tölum, fengnum úr rannsókn á ákvörðun refsingar við afbrotum, komu alls 57 ákærumál vegna nauðgunar til Hæstaréttar á tíma­bilinu 1950-1998. Af þessum 57 ákærðu voru 49 sakfelldir (86%) og 8 sýknaðir (14%).“

Aftast f.v: Guðrún Eva Mínervu­dóttir, Óskar Jónsson, Þor­finnur Ómarsson. Miðröð f.v: Jakob Frímann Magn­ús­son, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Sólveig Pét­urs­dóttir. Fremst f.v: Margrét Örn­ólfs­dóttir, Dýrleif Ýr Örlygs­dóttir, Kormákur Geir­harðs­son.

Gísli Marteinn: „Mér finnst allt ofbeldi viðbjóðslegt“

Nokkrir þekktir einstaklingar sátu fyrir svörum í Mannlífi til stuðnings V-deginum, þau Elva Dögg Melsteð, sem þá var titluð sem háskóla­nemi, Gísli Marteinn Baldursson sjónvarps­maður, Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir þáverandi borgar­stjóri og Guðjón Pedersen þáverandi Borgar­leik­hússtjóri.

Þau fengu öll hinar ýmsu spurningar, en sú spurning sem tengdist viðfangs­efninu mest var:

„Hvernig heldurðu að heimurinn myndi breytast ef ofbeldi á konum fyrir­fyndist ekki?“

Elva Dögg Melsteð:

„Til batnaðar. Allt ofbeldi er slæmt og því er það alltaf til batnaðar fyrir heiminn ef því linnir. Þess væri óskandi að virðing fyrir náunganum væri meiri þannig að fólk hætti að níðast hvert á öðru, bæði andlega og líkamlega.“

Elva Dögg Melsteð

Gísli Marteinn Baldursson:

„Mér finnst allt ofbeldi viðbjóðslegt og ég held að sjaldnast sé gert of mikið úr áhrifunum sem það hefur á þann sem fyrir verður. Hvort sem um er að ræða konur eða karla þá held ég að sá sem beittur er ofbeldi lengi og reglulega missi sjálfs­traustið og sjálfs­virðinguna. Og þetta væri betri heimur ef fleiri væru með þessa þætti í lagi.“

Gísli Marteinn Bald­urs­son

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir:

„Það yrði paradís á jörðu! Ofbeldi gegn konum er órjúfanlega tengt drottnunar­girni manna sem getur eftir atvikum beinst gegn nátt­úrunni, samfélaginu eða samferða­fólki. Í sinni grófustu mynd birtist hún sem kynferðislegt ofbeldi gegn konum og börnum. Ef ofbeldi gegn konum fyrir­fyndist ekki væri ofbeldi í hvaða mynd sem er á hröðu undan­haldi.“

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir

Guðjón Pedersen:

„Hann myndi breytast til hins betra.“

Guðjón Pedersen
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu