Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Arna Ýr fékk sér lögfræðing eftir alvarlegar ásakanir: „Ég ætla að fara varlega í þetta topic“

Arna Ýr er bæði stórglæsileg og hörkudugleg. Stundar nám í hjúkrunarfræði og rekur sitt eigið fyrirtæki
Arna Ýr er bæði stór­glæsi­leg og hörku­dug­leg. Stundar nám í hjúkr­un­ar­fræði og rekur sitt eigið fyr­ir­tæki

Arna Ýr Jóns­dóttir, áhrifa­valdur,  lenti í óskemmtilegri reynslu á dögunum en sagði hún Instagram-fylgjendum sínum frá því í gær.

„Ég ætla að fara varlega í þetta topic en það er rosa alvarlegt eða sorglegur hlutur búinn  að vera í gangi hjá mér síðustu vikur,“ segir Arna Ýr. Í fram­haldinu segist hún sjaldan láta hluti stoppa sig og að hún leggi iðulega allan sinn metnað í þau verkefni sem hún taki sér fyrir hendur.

„Það er atvik sem kom upp fyrir einhverjum þremur til fjórum vikum síðan sem hefur látið mig efast um að ég nenni að halda áfram í því sem ég er að gera. Ég er komin yfir það blessunar­lega séð enda er ég með frábært fólk í kringum mig, þá er ég að tala um Noah nappies, fyrir­tækið mitt“.

Þá segir hún erlent fyrirtæki hafa sakað hana um að stela hönnun frá þeim og sendu henni að  eigin sögn mjög harðorða hótun. Fyrir­tækið lét ekki þar við kyrrt liggja heldur talaði það illa um vörumerki Örnu opinber­lega.

„Það er búið að sýna fram á að ég var alls ekki að stela neinni hönnun né herma eftir neinum,“ segir Arna og bætir við að erlenda fyrir­tækið sem um ræðir selji vörur til verslunar á Íslandi. „Málið er að þetta fyrirtæki er með vörur sem eru seldar í einni búð a Íslandi og það er bara svo ótrulega vont að vita af því að þessi búð tók tæknilega séð þátt i þessu“. Arna vill ekki nafn­greina verslunina sem um ræðir en segist mjög vonsvikin yfir því að samkeppnin á markaðinum sé svona.

„Þetta fyrirtæki erlendis var búið að brjóta a mínu fyrirtæki á marg­víslegan hátt, bæði með meiðyrðum, stolnu markaðs­efni og já, þannig að ég fékk mér lögfræðing“.

Undir lok mynd­skeiðsins segist Örnu framkoman í sinn garð ljót en sem betur fer hafi hún fengið mjög góðan stuðning. Þá benti hún á myndskeið sem hún birti á Instagram-síðu Noah nappies þar sem hún útskýrði málið einnig á ensku. Arna Ýr á von á sínu þriðja barni með Vigni Bollasyni en saman eiga þau systkinin Ástrósu og Nóa. Það eru því spennandi tímar framundan hjá fjöl­skyldunni og óskum við þeim alls hins besta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt