Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

„Maður þarf að fara í sparidressið og mála sig fyrir Melabúðina – eins og að mæta í kokteilboð“

dag er gula hurðin blá og Anna unir sér vel á Reynimelnum.
dag er gula hurðin blá og Anna unir sér vel á Reyni­melnum. Mynd: Róbert Reynisson

Anna er ein af þeim sem þekkja „alla“. „Já, það er bara þannig. Eins og ég sagði einhvern tímann við vinkonu mína: „Nú er það bara orðið þannig að maður þarf að rigga sig upp, fara í spari­dressið og mála sig þegar maður fer í Mela­búðina því það er bara eins og að mæta í kokteilboð,“segir Anna í viðtali við Hrund Þórs­dóttur, upplýsinga­fulltrúa Ráðhúss Reykja­víkur.

„Ég gleymi öllu sem ég ætla að kaupa. Ég fer bara út með blómkáls­haus eða eitthvað allt annað en ég ætlaði að kaupa því þetta er bara eins og kokteilboð. Lífið er stanslaus kokteill!“  segir Anna Kristins­dóttir.

„Það hefur aldrei hvarflað að mér að búa annars staðar. Ég hef vaknað upp með andfælum um miðja nótt eftir að hafa dreymt að ég byggi í einhverri blokk nálægt Skólavörðu­holtinu. Ég vaknaði bara kófsveitt,“ segir hún og glottir. „Ég hef alltaf haft vinnuna rétt við hliðina á mér og getað stokkið örfáa metra hér á milli húsa, það hefur bara aldrei neitt annað komið til greina. Svo eru það Vesturbæjar­sundlaugin og Melabúðin, ég get ekki farið neitt annað. Ég er orðin háð.“

Bræddu kerti á götuna og dönsuðu á gamlárskvöld

„Hugsunin hjá mér á morgnana var að klæða mig sem minnst svo ég væri nógu fljót úr og í því ég var alltaf að fara eitthvert. Ég nennti ekki að vera í of miklum fötum, það var of flókið,“ segir Anna sem ávallt hefur búið og starfað í Vestur­bænum.

Anna ólst upp í húsi á horni Vestur­vallagötu og Holtsgötu og minnist æskunnar með sérstakri hlýju. „Ég elska æskuna mína og minningarnar eru mjög sterkar. Það var ekkert sjónvarp og enginn sími, allir þekktust og mamma stóð bara á tröppunum og kallaði „Lína, Bína og Stína“ til að fá vinkonur sínar í kaffi. Þetta var bara eins og ein stór fjöl­skylda. Svo á gamlárs­kvöld bræddum við kerti á alla götuna og dönsuðum. Svona var Vestur­bærinn, þetta var geggjað,“ segir Anna.

Síðar flutti hún á Reynimel og þar á eftir Meistara­velli þar sem hún kveðst hafa staðið í stofu­glugganum og fylgst öskrandi með heima­leikjum KR. Síðar bjó hún á tveimur stöðum á Hagamel áður en hún lokaði hringnum og kom aftur á Reyni­melinn. Dren­girnir hennar tveir voru í KR og sjálf var hún virk í starfi KR-kvenna. Hverfis­andinn er sterkur en aðspurð segist hún ekki vita nákvæmlega af hverju.

„Einu sinni Vesturbæ­ingur, alltaf Vesturbæ­ingur.“

Breytti hárgreiðslustofunni í íbúð

Anna er að verða 76 ára og starfar ennþá við fag sitt, hárgreiðslu, tvo daga í viku. Anna er hárgreiðslu­meistari og hefur verið að í 61 ár, eða frá árinu 1961, allan tímann í Vestur­bænum. Hún býr á Reynimel 76, í húsnæði sem áður hýsti hárgreiðslu­stofuna Sóleyju sem Anna vann á frá árinu 1966 og keypti síðar sjálf og rak. Eftir að hún breytti hárgreiðslu­stofunni í íbúð árið 1992 vann hún um tíma í einu herbergi í húsinu en í dag er þar svefn­herbergi hennar og seinni manns hennar, Þórs Þorbjörns­sonar. Anna vinnur nú á hárgreiðslu­stofunni Grand, við Grandaveg.

Eins og gefur að skilja eru fasta­kúnnarnir margir en Anna hefur verið svo lengi í faginu að margir þeirra eru fallnir frá.

„Grand er í blokk sem er ætluð íbúum 60 ára og eldri. Margir af mínum kúnnum eru eldri konur en kúnnarnir skiptast þó á milli okkar á stofunni. Ég fæ alveg karlmenn til mín inn á milli enda tók ég rakarann líka og er með fullgilt meistara­bréf. Ég tek bara eitt ár í einu og finnst rosalega gaman í vinnunni. Ég vinn með góðu fólki, kornungu miðað við mig og ég reyni bara að vera smá pæja.“

„Ég tala við eiganda stofunnar, hann Hlyn, á hverju ári og segi að ég ætli sko ekki að vera rekin héðan, ég ætli að hætta af sjálfs­dáðum en þá spyr hann bara: „Um hvað ertu eiginlega að tala? Þú getur ekkert hætt, það er svo mikið að gera hjá þér!“

Framtíðar­plön Önnu eru að halda áfram að njóta lífsins. „Það er klisja, en ég er hrifin af frasanum „einn dagur í einu“, því maður veit aldrei,“ segir þessi lífsglaða kona að lokum.

Úr ljósmyndasafni Önnu.

Þarna er Anna, umkringd fjöl­skyldu­með­limum, að sinna starfi sínu í garði for­eldra sinna við Vest­ur­valla­götu 2. Þessi mynd birt­ist á for­síðu Morg­un­blaðs­ins á sínum tíma.
Anna, dökk­hærð, fjærst fyrir miðju, í sveins­próf­inu sínu árið 1965. „Þarna var ég að gera blaut­bylgjur í stúlku úr Vest­ur­bænum.“
Hár­greiðslu­meist­ar­inn að störfum og permanentið á sínum stað.
Hár­greiðslu­stofan Sóley við Reynimel, eins og hún leit út eftir að Anna tók hana í gegn. Í loftið setti hún báru­járns­plötur sem eru þar enn og gefa íbúð Önnu óvenju­legan og flottan blæ.
Hár­greiðslu­stofan Sóley við Reynimel, eins og hún leit út eftir að Anna tók hana í gegn. Í loftið setti hún báru­járns­plötur sem eru þar enn og gefa íbúð Önnu óvenju­legan og flottan blæ.
Eftir að Anna hafði gert breyt­ingar á hár­greiðslu­stof­unni Sóleyju bauð hún við­skipta­vinum sínum til veislu. Þarna er Anna til hægri, en með henni er Elín Sæbjörns­dóttir sem hefur í dag verið kúnni hjá Önnu í 55 ár.
Margir Vest­ur­bæ­ingar muna eflaust eftir gulu hurð­inni og glugg­unum sem mörgum börnum þótti spenn­andi að kíkja inn um.

Hægt er að lesa viðtalið heild sinni hér.

Heimild:

Ritstjórn. 2022, 9 febrúar. „Einu sinni Vesturbæ­ingur, alltaf Vesturbæ­ingur.“ Reykja­víkurborg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu