Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Prís með lægsta verðið á jólakjöti

Veru­legur munur milli versl­ana

Hangikjöt
Hangi­kjöt Prís er ódýr­ast fyrir þessi jól Mynd: Shutterstock

Prís var með lægsta kíló­verðið á bæði úrbein­uðu hangilæri og ham­borg­ar­hrygg með beini sam­kvæmt nýrri verð­könnun Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á jóla­kjöti. Könnunin var gerð í síð­ustu viku og náði til 61 algengra jóla­vara í átta versl­unum.

Lægsta kíló­verð á ham­borg­ar­hryggi með beini reynd­ist 1.698 krónur í Prís en sam­svar­andi vörur í Bónus og Krónunni voru um 100 krónum dýr­ari. Verð­munur á ham­borg­ar­hryggi reynd­ist mik­ill, allt frá 1.698 krónum upp í 2.899 krónur á kílóið, þar sem Hagkaup voru dýr­ust.

Verð­lags­eft­ir­litið bendir á að vöru­úr­val sé mis­mun­andi milli versl­ana og vin­sælar vörur ekki endi­lega fáan­legar alls staðar. Neyt­endum er því bent á að bera saman verð, meðal ann­ars með Nappinu eða vöru­leit á ver­dlags­eft­ir­lit.is.

Áframhaldandi verðmunur milli Prís og Bónus

Frá opnun Prís í ágúst í fyrra hefur Bónus verið að með­al­tali um 5% dýr­ara en Prís þegar bornar eru saman vörur sem fást í báðum versl­unum. Sá munur sést einnig í jóla­kjöt­inu. Ódýrasti ham­borg­ar­hrygg­ur­inn í Bónus var til dæmis 5,9% dýr­ari en sam­bæri­leg vara í Prís.

Verð­munur milli Bónus og Krón­unnar er hins vegar oft aðeins ein króna, líkt og verð­lags­eft­ir­litið hefur áður bent á.

Hangikjöt ódýrast í Prís

Lægsta verð á úrbein­uðu hangilæri var einnig í Prís, 4.899 krónur á kíló. Í Bónus kost­aði ódýrasta hangilærið 4.989 krónur og í Krónunni 4.999 krónur. Hangilæri með beini var almennt ódýr­ara, þar sem lægsta kíló­verðið mæld­ist 3.598 krónur í Bónus.

Léttreyktur lamba­hryggur var ódýrastur í Prís og þar gat verð­munur milli versl­ana numið allt að 19%. Hálfur léttreyktur hryggur kost­aði þar 4.875 krónur á kíló en allt að 5.799 krónur í Hag­kaupum.

Lítill munur á kalkúni

Minni verð­munur var á kalkúni. Kalkúnn frá Reykja­bú­inu var ódýrastur í Prís á 2.298 krónur á kíló og var einnig fáan­legur á undir 2.400 krónum í Bónus, Krónunni og Fjarð­ar­kaupum. Hæsta verðið fannst í Nettó og Hag­kaupum, 2.499 krónur á kíló.

Samkvæmt verð­lags­eft­ir­lit­inu hefur verð á kjöt­vöru hækkað um 6,6% milli ára að jafn­aði og lamba­kjöt um 8,6%, sam­an­borið við 4% hækkun á dag­vöru almennt. Dæmi eru um 4–6% hækkun á vin­sælum jóla­kjötsvörum og allt að 21% hækkun á sumum kalkúna­vörum.

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ áréttar að könn­unin sé ein­göngu beinn verð­sam­an­burður en ekki mat á gæðum eða þjón­ustu og bendir neyt­endum á að fylgj­ast vel með til­boðum þar sem verð­breyt­ingar eru tíðar á þessum árs­tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Peningar

Kaup­máttur jókst um 5,8 pró­sent frá upp­hafi kjara­samn­inga­lot­unnar

Atvinnuleysi fór á öðrum ársfjórðungi í fyrsta sinn frá 2010 yfir meðaltal OECD, þótt það sé enn tiltölulega lágt í alþjóðlegum samanburði.
  • Skiptum lokið á þrota­búi Talays

  • Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

  • Lands­liðs­konur í ný störf

  • Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld