Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hversu grænn er rafmagnsbíllinn í raun?

Helstu rökin fyrir raf­magns­bílum hafa hingað til verið drægni og sú stað­reynd að sé allt fram­leiðslu- og förg­un­ar­ferlið tekið með í reikn­ing­inn séu þeir í raun skað­legri umhverf­inu en spar­neytnir bens­ín­bílar. Er þetta rétt?

||
||
Rafkerfi raf­magns­bíla er not­hæft í bíla þar til virkni þess dettur niður fyrir 80 pró­sent. Bíla­fram­leið­endur vilja í fram­tíð­inni nýta notuð raf­kerfi sem aflgjafa fyrir heim­ili.

Svarið er ein­fald­lega: Nei. Þetta var ef til vill raunin í árdaga raf­magns­bíls­ins en með fram­leiðslu­að­ferðum dags­ins í dag er raf­magns­bíll­inn alltaf betri kostur ef huga á að umhverf­inu.

Reyndar er bens­ín­bíllnn umhverf­is­vænni í fram­leiðslu en raf­magns­bíll­inn og munar þar mestu um batt­er­íið sjálft. Fyrir hvern bens­ín­bíl fellur að jafn­aði til 5,6 tonn af CO2, en 8,8 tonn fyrir sam­bæri­legan raf­magns­bíl. Af þessum 8,8 tonnum verða rúm fjögur tonn til bara við fram­leiðslu bett­er­í­anna.

Þá er bíll­inn kom­inn á göt­una og byrjar að eyða raf­magni. Hérna flækj­ast málin eilítið vegna þess að það fer algjör­lega eftir því hvaðan bíll­inn fær raf­magnið hversu umhverf­is­vænn hann er. Fyrir okkur Íslend­inga, sem tróna á toppnum ásamt Paragvæ er kemur að grænni orku frá vats­föllum, er þetta aldrei spurn­ing. Raf­magns­bíll­inn skilar vel undir helm­ingi minni CO2 út í and­rúms­loftið en bens­ín­bíll­inn, jafn­vel ein­ungis einum þriðja, að með­töldu fram­leiðslu­ferl­inu.

Sé litið til landa þar sem raf­orkan kemur fyrst og fremst frá jarð­efna­elds­neyti, það er kolum, olíu og gasi, er útkoman ekki jafn­góð. En jafn­vel þá, til dæmis á Indlandi þar sem kolefn­is­fótsporið er fimm sinnum meira fyrir hverja kílóvatt stund en hér, fer raf­magns­bíll­inn ekki hærra en í 80 pró­sent af CO2-mengun á við sam­bæri­legan bens­ín­bíl.

Tækninni fleygir fram svo for­skot raf­magns­bíls­ins verður sífellt betra. Ekki bara út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum, heldur einnig þeim hag­fræði­legu.

Þá er komið að því að farga bílnum. Ekki er haldið lengur upp á batt­erí raf­magns­bíla þegar það er komið niður fyrir 80 pró­sent. Drægnin verður ein­fald­lega of lítil.

Þá þarf nýtt batt­erí og það gamla fer í förgun. Það sem fyrst og fremst letur fyr­ir­tæki að end­ur­vinna batt­er­í­iin, og verð­mæta málma innan þess eins og kóbalt, nikkel og liþ­íum, er kostn­aður. Ferlið er flókið og í dag mið­ast það fyrst og fremst við að ná í kóbaltið. Liþíumið verður eftir.

Miðað við tækni dags­ins í dag er lausnin samt sem áður í sjón­máli. Magn. Eins öfug­snúið og það hljómar þarf ein­fald­lega meira magn af bett­er­íum til þess að það borgi sig bæði umhverfis- og efna­hags­lega. Og þetta magn er á leið­inni því flestir bíla­fram­leið­endur heims eru að raf­væð­ast. Volkswagen ætlar að selja ein­ungis tvinn- eða raf­magns­bíla árið 2030 og Volvo bætir um betur og setur sér sömu mark­mið fyrir árið 2019.

Eins öfug­snúið og það hljómar verður hag­kvæmara að end­ur­vinna batt­erí raf­bíla eftir því sem fleri af þeim enda á haug­unum södd líf­daga.

En end­ur­vinnsla er ekki eina svarið. End­ur­nýt­ing batt­er­í­anna er hug­mynd sem heillar marga. Eitt af vanda­málum bíla­batt­ería er að þau þurfa að vera gríðar­öflug en mega ekki vera of stór. En ef pláss er ekki vanda­mál lengur er hægt að nýta batt­er­íið mun lengur en bara í 80 pró­sent. Tvö batt­erí í kjall­ara, geymslu eða úti í skúr, tengd við sól­ar­panel geta séð heim­ili fyrir allri þeirri orku sem það þarf. Orku­nýtn­asta sól­ar­sellan í dag nær að fanga tæp 22 pró­sent af orku sól­ar­innar og er sú tala á stöðugri upp­leið. BMW sér þetta sem sókn­ar­færi og hefur fram­leið­and­inn gefið það út að öll batt­erí notuð í þeirra bíla í fram­tíð­inni verði hönnuð sér­stak­lega með þetta í huga.

Með þessu móti leng­ist líf­tím­inn og batt­eríð þarf ekki að fara í end­ur­vinnslu fyrr en þegar það er komið í tæp 40 pró­sent.

Tækninni fleygir fram svo for­skot raf­magns­bíls­ins verður sífellt betra. Ekki bara út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum, heldur einnig þeim hag­fræði­legu.

Raf­magns­bíll­inn er fram­tíðin. Hann er meira að segja nútíðin. Sér­stak­lega fyrir okkur Íslend­inga með alla okkar grænu orku.

Aðalmynd: Okkur dreymir um að geta keyrt með góða og græna sam­visku. Hér á Íslandi eigum við raun­hæfan mögu­leika að geta það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas