Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Telur að náfrænka Bjarna verði framkvæmdastjóri SA: „Bjarni ráðherra og Anna Hrefna eru bræðrabörn“

Anna Hrefna Ingimundardóttir.
Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir.

„Hér á þessum vettvangi var nýlega velt upp þeirri spurningu hver taki við af Halldóri Benjamín Þorberg­syni, fráfar­andi framkvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífsins, en hann er að verða forstjóri Fasteigna­félagsins Regins eftir umdeildan feril innan SA. Við spurðum: „Hvað tekur svo við?“

Halldór Benjamín.

Víst er að fyrir valinu verður einhver innvígður og innmúraður flokks­maður enda hafa Samtök atvinnu­lífsins verið að þróast hin síðari ár yfir í að verða eins konar deild í Sjálfstæðis­flokknum,“ segir Ólafur Arnarson í pistli á Hringbraut.

Bætir þessu við:

Bjarni Bene­dikts­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son.

„Ef niður­staðan verður sú – sem nú er spáð – að Anna Hrefna Ingimundar­dóttir verði valin í stöðu framkvæmda­stjóra, en hún er náfrænka Bjarna Benedikts­sonar formanns Sjálfstæðis­flokksins, yrði þessi hugsun að veruleika.

Benedikt Sveins­son.

Anna er dóttir Ingimundar Sveins­sonar arkitekts sem er bróðir Benedikts föður Bjarna, sem nú orðið er einkum frægur fyrir kaup sín á hluta­bréfum í Íslands­banka í útboði ríkisins. Bjarni ráðherra og Anna Hrefna eru því bræðra­börn.“

Ólafur ljær máls á því að „Anna Hrefna starfar nú hjá Samtökum atvinnu­lífsins, en þar starfa nú 30 manns, margir vel tengdir Sjálfstæðis­flokknum. Forysta Samtaka atvinnu­lífsins hefur yfirleitt verið skipuð borgara­lega sinnuðu fólki sem hefur jafnan varast að láta spyrða sig um of við einstaka flokka. Yrði niður­staðan sú að ráða Önnu Hrefnu í stöðu framkvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífsins, yrði það brot á þeirri hugsun.

Ólafur Arnarson.

Samtökin sinna samningum við verkalýðs­hreyfinguna og hrein­ræktaðir útsendarar Sjálfstæðis­flokksins – þess aðila sem hún lítur á sem höfuð­andstæðing sinn – eru síst líklegir til að ná samkomu­lagi við hreyfinguna.“

Heldur áfram:

Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er sam­sett.

„Viðræður við Ragnar Þór og Sólveigu Önnu hafa reynst nógu erfiðar þó að ekki bætist ofan á að þurfa að eiga samtöl við náfrænku formanns Sjálfstæðis­flokksins. Það ættu allir að geta séð. Formaður Samtaka atvinnu­lífsins er nú Eyjólfur Árni Rafnsson, doktor í byggingar­verkfræði. Hann er farsæll maður sem hefur hingað til ekki gefið mikið upp um pólitíska stöðu sína enda mun hann vera óflokks­bundinn en borgara­lega sinnaður. Því verður ekki trúað að Eyjólfur láti það viðgangast hjá Samtökum atvinnu­lífsins að náfrænka formanns Sjálfstæðis­flokksins verði valin til að gegna embætti framkvæmda­stjóra samtak­anna.“

Ólafur segir að endingu:

„Slíkt yrðu örlagarík mistök sem ekki er líklegt að jafn yfir­vegaður maður, og núverandi formaður samtak­anna er, láti viðgangast. Eyjólfur Árni vill varla að Samtök atvinnu­lífsins verði endanlega deild í Sjálfstæðis­flokknum á hans vakt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim