Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Kári brjálaður út í Morgunblaðið

„Gefa í skyn að ég hafi verið í einhvers konar samskiptum við hinn látna barna­níðing“

Kári Stefánsson
Kári Stef­áns­son Var for­stjóri DeCode Mynd: Jón Gústafsson

Kári Stef­ánsson, fyrr­verandi forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, er allt annað en sáttur með skrif Morgun­blaðsins um sig. Forstjórinn fyrr­verandi segir að blaðið reyni að tengja sig við Jeffery Epstein en nafn Kára kemur fyrir í skjölunum um hann.

Nafn Kára Stef­ánssonar í Epstein-skjölunum segir í fyrirsögn Morgun­blaðsins

Við leit að nafni Kára í gagna­safni dómsmála­ráðuneytis Banda­ríkjanna komu upp tvö skjöl. Í báðum tilvikum er um að ræða tölvu­pósta. Annar pósturinn er frá árinu 2009 og fjallar um erfið­leika hjá deCODE Genetics á þeim tíma, sem og mögulegar rekstrar­breytingar til að bregðast við vanda fyrir­tækisins.

Hinn pósturinn er frá árinu 2010 og inni­heldur yfir­lýsingu frá talsmanni deCODE, sem var áframsend til Jeffrey Epstein.

Tengja við barnaníðing

„Það er engin spurning að með fyrir­sögninni er Morgun­blaðið að gefa í skyn að ég hafi verið í einhvers konar samskiptum við hinn látna barna­níðing,“ segir Kári um málið.

„Það er hins vegar ljóst við lestur fréttarinnar undir fyrir­sögninni að blaðið vissi betur. Þar af leiðandi var blaðið vísvitandi að afvega­leiða lesendur sína. Þetta er nokkurn vegin eins slæm blaða­mennska og hugsast getur. Í gær hafði ég samband við máls­metandi mann úr ristjórn Morgun­blaðsins og bað hann að taka þessa fyrirsögn niður og fékk þau svör að það væri ekki í samræmi við vinnbrögð blaðsins að fjarlægja aðdróttun sem þeir vita að sé algjör­lega út í hött. Ég vil leggja á það áherslu að með þessari framkomu er Morgun­blaðið ekki að vega að mér vegna þess að þeir sem það vilja sjá glöggt að fyrir­sögnin er út í hött. Það er hins vegar afleitt þegar lesendur sjá að blaðið hikar ekki við að afvega­leiða þá til þess að ná athygli og með því stríðala athugasemda­kerfi sitt. Eða eins og segir í gamalli íslenkri hasarbók: Þeir fuglar eru vestir sem skíta í eigið hreiður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra