Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Íslenskur leigubílsjóri furðar sig á að vera í Epstein-skjölunum

„Mér finnst þetta bara svo fárán­legt“

Leigubílar við Leifsstöð
Leigu­bílar við Leifs­stöð Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Víkingur

Kristján Jón Karlsson fyrr­ver­andi leigu­bíls­stjóri man ekki eftir að hafa keyrt barn­a­níð­ing­inn Ghislaine Maxwell frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Reykja­víkur enda um tólf ár síðan.

Nafn leigu­bíls­stjór­ans er meðal fjöl­margra nafna sem fram koma í nýj­ustu birt­ingu Epstein-skjal­anna en í þetta skiptið birti dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­ana um þrjár millj­ónir skjala og enn bíða álíka mörg skjöl eftir birt­ingu.

101 Hótel Reykja­víkMaxwell gisti fjórar nætur á hót­el­inu

Þó að fjöldi per­sóna sem fram koma í skjöl­unum hafi átt í afar vafasömum sam­skiptum við þau Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, er Kristján Jón ekki einn þeirra. Maxwell var hér á landi árið 2013 til þess að koma fram á ráð­stefnu Ólafs Ragnars Gríms­sonar, Hring­borð Norð­ur­slóða (e. Artic Circle) til að ræða um hættur sem steðja að haf­inu. Samkvæmt skjöl­unum gisti Maxwell fjórar nætur á 101 Hotel Reykja­vík.

Mannlíf heyrði í Krist­jáni hljóðið og spurði hann hvort hann muni eitt­hvað eftir skutlinu en í skjöl­unum kemur fram að Maxwell hafi greitt 16.000 krónur fyrir ferð­ina. Óhætt er að segja að hann hafi komið af fjöllum.

„Á ég að hafa keyrt hana? Ég man ekk­ert eftir því,“ svar­aði Kristinn. „Ég get ekki ímyndað mér hvernig mitt nafn hefur kom­ist þarna inn,“ bætti hann við hlæj­andi.

En hvað finnst Kristni um það að vera í skjöl­unum alræmdu?

Kristján Jón skelli­hlær og segir: „Ég er bara ekki alveg að kaupa þetta. Ég meina mér finnst þetta bara svo fárán­legt en þetta nátt­úru­lega skýrir það af hverju er talað um að þetta séu ein­hverjar margar millj­ónir skjala, því má nú aldeilis fyrr vera.“

Kristinn Jón er ekki eini Íslend­ing­ur­inn sem birt­ist í skjöl­unum en lista­mað­ur­inn Ólafur Elísson er þar líka en aðeins í tengslum við lista yfir lista­menn sem komu til greina til þess að skreyta hina alræmdu eyju Epsteins en barn­a­níð­ingnum leist ekki á list Ólafs. Þá eru for­seta­hjónin fyrr­ver­andi, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mousaieff í skjöl­unum en Dorrit og Jeffrey voru nágrannar á árum áður. Ekkert bendir til þess að Epstein hafi þekkt Ólaf Ragnar sér­stak­lega.

Loks hefur mbl.is greint frá því að Kári Stef­áns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, komi fyrir í skjöl­unum, en það er eins með hann og Kristján leigu­bíl­stjóra, að nöfn þeirra koma ein­fald­lega fram í gögnum sem send hafa verið Epstein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas