Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Systir Kate Moss flutt á sjúkrahús vegna Ozempic: „Það skelfilegasta sem hefur komið fyrir mig“

Lottie Moss
Lottie Moss

Systir Kate Moss, Lottie Moss varar fólk við að taka Ozempic-syk­ur­sýkis­lyfið sem margir taka í megr­un­ar­skyni.

Yngri systir ofur­fyr­ir­sæt­unnar Kate Moss var hrein­skilin um bar­áttu sína við syk­ur­sýkis­lyfið sem margir hafa notað til að missa kíló og kall­aði það „verstu ákvörðun“ sem hún hefði tekið í hlað­varps­þætt­inum Dream On í gær.

„Mér leið svo illa einn dag­inn að ég sagði við vin minn: „Ég get ekki haldið vatni niðri. Ég get engan mat haldið niðri, engan vökva, ekk­ert. Ég þarf að fara á spít­al­ann. Mér líður mjög illa“,“ rifj­aði Lottie upp í þætt­inum „My Ozempic Hell: I Had Seizures, A&E, Weight Loss,“ þar sem hún sagði frá því er hún var send á bráða­mót­töku þar sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur komst að skammta­stærð­inni sem Lottie hafði tekið og sagði við hana: „Ó guð minn góður, þetta er ekki það sem þú áttir að taka“.“

Hin 26 ára gamla Lottie við­ur­kenndi að þó að hún hafi fengið lyfið í gegnum lækni hafi það ekki beint verið lækn­ir­inn hennar.

„Magnið sem ég tók var fyrir fólk sem var 100 kíló og yfir og ég er 50 og eitt­hvað kíló,“ útskýrði hún. „Það eru þessir litlu hlutir sem ég vildi að ég hefði vitað áður en ég tók það.“

Þegar hún var á sjúkra­hús­inu varð Lottie fyrir slæmum áhrifum af völdum ofskömmt­un­ar­innar.

„Ég fékk bók­staf­lega floga­kast af því hversu ofþurrkuð ég var, sem satt að segja var það skelfi­leg­asta sem hefur komið fyrir mig á ævinni,“ við­ur­kenndi hún. „Vinur minn varð að halda fót­unum á mér. Þetta var svo skelfi­legt, allt ástandið. Andlit mitt herpt­ist saman, allur lík­ami minn spennt­ist upp.“

Lottie gagn­rýndi svo Ozempic-æðið og sagði að það væri skað­leg fyrir lík­ams­í­mynd­ina og vís­aði aftur til tísk­unnar sem var í gangi þegar systir hennar Kate var að öðl­ast frægð.

„Þetta heróín-lúkk sem er að koma aftur núna, sem var eitt­hvað sem gerð­ist á tíunda ára­tugnum, við ættum ekki að fara þangað aftur,“ sagði Lottie. „Hvert fór jákvæða lík­ams­vit­undin?“

En á meðan stjörnur eins og Lottie, Macy Gray, Sharon Osbourne, Rebel Wilson og fleiri hafi við­ur­kennt að hafa notað Ozempic og svipuð syk­ur­sýkis­lyf til að létt­ast, sagði full­trúi Novo Nordisk, lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins sem fram­leiðir Ozempic, áður í yfir­lýs­ingu til E! News um að lyfið sé „ekki sam­þykkt fyrir langvar­andi þyngd­ar­stjórnun“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Húsið var reist árið 1931
Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið