Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Google Maps kom upp um morð – Kúpverji hafði farið til Spánar í leit að maka sínum

Óhugnanleg mynd ef maður veit hvað hún sýnir.
Óhugn­an­leg mynd ef maður veit hvað hún sýnir. Mynd: Google-Maps

Mynd af manni halla sér í far­ang­urs­rými bíls á götu í norð­ur­hluta Spánar varð til þess að lög­reglan hand­tók tvo aðila í tengslum við manns­hvarf. Myndin var tekin af Google Maps bíl.

Á næstum mann­lausri götu á Norður-Spáni virt­ist myndin sýna mann bogra fyrir aftan  rauðan Rover-bíl, og hlaða var­lega fyr­ir­ferð­ar­miklum hvítum poka í far­ang­urs­rýmið.

Mynda­véla­bíll frá Google Maps, sem keyrði um göt­una náði fyrir algjörri til­viljun mynd af hinu grun­sam­lega augna­bliki en bíll­inn var þá á ferð í þorp­inu Tajueco í októ­ber. Tveimur mán­uðum síðar hefur lög­reglan not­ast við mynd­ina, sem enn má finna á Google-kortum, og aðrar myndir sem mynda­vél­ar­bíll­inn tók, sem vís­bend­ingar en þær leiddu til hand­töku tveggja manna vegna hvarfs karl­manns á síð­asta ári.

Málið á rætur að rekja til nóv­em­ber 2023, þegar fjöl­skylda kúbversks rík­is­borg­ara, búsettan á Spáni, til­kynnti hvarf hans, að sögn dag­blaðs­ins El País. Maðurinn hafði búið í sveit­ar­fé­lag­inu Soria í norð­ur­hluta Spánar, þar sem hann hafði mætt í von um að hafa uppi á konu sem talin er vera maki hans.

Ættingi kúbverska manns­ins sagði lög­reglu að hann hefði farið að gruna eitt­hvað mis­jafnt eftir að hafa fengið röð texta­skila­boða úr síma manns­ins, þar sem hann sagði ætt­ingj­anum að hann hefði hitt aðra konu, væri á förum frá Spáni og myndi losa sig við sím­ann, sagði lög­reglan í yfir­lýs­ingu. „Þetta vakti grun hjá ætt­ingj­anum um að sá horfni hefði ekki sent skila­boðin og varð til þess að hann til­kynnti það til lög­reglu.

Rann­sóknin sner­ist fljót­lega um fyrr­ver­andi maka kúbverska manns­ins og annan mann sem talið var að hún tengd­ist róm­an­tískum böndum. Í síð­asta mán­uði hand­tók lög­reglan parið, grunuð um aðild þeirra að dauða og hvarfi Kúbverj­ans. Vikum síðar fannst búkur sem tal­inn er vera lík­ams­leifar hins týnda manns, í kirkju­garði nær­liggj­andi þorps.

Lög­reglan neit­aði að veita frek­ari upp­lýs­ingar og sagði aðeins að rann­sókn­inni væri haldið áfram.

Hún vor þó fljót að und­ir­strika hlut­verk Google Maps við að ná hinum hroll­vekj­andi myndum sem virt­ust tengdar morð­inu. „Ein af vís­bend­ing­unum sem rann­sak­endur not­uðu til að leysa glæp­inn, þó ekki óyggj­andi, voru mynd­irnar sem fund­ust við rann­sókn á kort­lagn­ing­ar­for­riti,“ sagði lög­reglan og sagði að þessar myndir hefðu hjálpað til við að „greina öku­tæki sem gæti hafa verið notað við glæp­inn“.

Á mið­viku­dag­inn skoð­aði El País nágranna Tajueco, sem hefur 56 íbúa, þar sem nokkrir sögð­ust hafa séð mynd­irnar teknar með Google Maps, en gefið þeim lítið vægi.

„Við hefðum aldrei ímyndað okkur að hann væri að gera neitt og hug­usuðum ekk­ert út í það,“ sagði einn íbúi, en annar tók fram að „við héldum ekki að á mynd­inni sæist lík í skott­inu.“

The Guardian fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Heimur

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Charles Paxton segir fjölda tilkynninga sveiflast milli ára. Dýr, bátsöldur, vindur og gróður geti skýrt það sem fólk telur sig sjá.
Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum