Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Feminískar stúdínur knýja fram ókeypis tíðavörur fyrir stúlkur

Þrjár tíundu bekkjar stúd­ínur sem saman stofn­uðu Femínista­fé­lag Grunn­skól­ans í Hvera­gerði og hrundu af stað styrkja­leit fyrir dömu­bindum og tíða­vörum síð­ast­liðið haust hafa sann­fært bæj­ar­stjórn um nauð­syn þess að bjóða ókeypis tíða­vörur í skól­anum og félags­mið­stöð­inni frá og með næsta hausti.

Rannveig Arna Sig­ur­jóns­dóttir, sem lauk tíunda bekk nú í vor segir í við­tali við Frétta­blaðið að stelpur eigi ekki að þurfa að fela dömu­bindin í vas­anum á leið inn á kló­sett. „Síðan eru til stelpur sem hafa ein­fald­lega ekki efni á góðum dömu­bindum,“ bendir hin unga bar­áttu­kona rétti­lega á og segir tíða­vörur eiga að vera sjálf­sagðar. „Fyrir stelpur er þeta jafn mik­il­vægt og kló­sett­pappír.“

Femínista­fé­lag Grunn­skóla Hvera­gerð­ist var stofnað árið 2017 og er ætlað að styðja við jafn­rétti í skól­anum. Stofn­fé­lagar ákváðu að safna tíða­vörum til að hafa ókeypis í skól­anum og fékk félagið að sögn styrk til verk­efn­ins, en skemmst er að minn­ast þess þegar breyt­inga­til­laga Andrésar Inga Jóns­sonar við fjár­lög var felld í des­em­ber, en Píratinn Andrés lagði til að tíða­vörur í skólum og fyrir tekju­lága yrðu ókeypis.

Tíða­vörur eru þó ókeypis í skólum og félags­mið­stöðvum í Reykja­vík, á Ísafirði og á Skaga­strönd en til­laga Sigrúnar Árna­dóttur, kenn­ara við grunn­skól­ann og bæj­ar­full­trúi, sem bar upp til­lögu Femínista­fé­lags­ins upp á bæj­ar­stjórn­ar­fundi, hlaut ein­róma sam­þykkt bæj­ar­ráðs nú á fimmtu­dag. Þá mun bær­inn greiða fyrir tíða­vörur stúlkna og segir Sigrún aðgengi að góðum tíða­vörum hafa gíf­ur­lega mikla þýð­ingu. Í við­tali sagði Sigrún hina ungu femínista hafa safnað og fengið gef­ins stór bindi, sem þó henti ekki endi­lega fyrir ungar stúlkur. „Strax í haust mun skól­inn panta inn vörur sem henta, í sam­ráði við Femínista­fé­lagið.“

Þá seg­ist Rannveig einnig vera him­in­lif­andi með ákvörðun bæj­ar­stjórnar. „Mér finnst þetta geggjað,“ klykkir hún út með. „Ef dömu­bindi verða ekki í boði þar læt ég í mér heyra,“ segir unga stúd­ínan og vísar þar til aðstæðna í mennta­skólum lands­ins en hún mun sjálf hefja fram­halds­nám að loknum grunn­skóla nú í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas