Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Flugmaðurinn segir „sannleikann“ um nauðlendinguna á Blönduósi

„Takið ekki mark á öllu sem þið lesið“

Magnús Ólafsson
Magnús Ólafsson Flug­mað­ur­inn vill að hitt rétta komi fram Mynd: Facebook

Flug­maður sem lenti í óhappi á Blöndu­ósi á sunnu­dag hefur birt ítar­lega frá­sögn á Facebook þar sem hann vill leið­rétta rang­færslur sem fóru á flug í kjöl­far atviks­ins. „Mistök mín að áætla að lend­ing á Blöndu­ósi á sunnu­dag­inn var þyrfti að vera kl. 16.30 urðu til þess að mörg ykkar héldu og halda jafn­vel enn að ég og vinir mínir sem voru með í flug­vél­inni liggjum meira og minna slas­aðir á sjúkra­húsi,“ skrifar hann í færslu sem birt­ist í gær, sem hann seg­ist hafa skrifað svo fólk vissi „sann­leika máls­ins fyrir óhapp­inu á Blöndu­ós­flug­velli.“

Flug­mað­ur­inn, Magnús Ólafsson segir að vélin hafi verið í 3.500 feta hæð „fáeina kíló­metra frá flug­vell­inum á Blöndu­ósi“ þegar mót­or­inn stöðv­að­ist. Hann hafi þá beint vél­inni að vell­inum „eins og hver önnur sviffluga, mót­or­laus.“ Flug­mað­ur­inn reyndi tvisvar að koma vél­inni í gang, án árang­urs, en sá fljótt að hann kæm­ist á völl­inn án mót­ors.

„Kom inn yfir flug­völl­inn á kjör­hraða í hæfi­legri hæð og ekk­ert var annað eftir en lenda mjúk­lega,“ segir hann. Þá hafi nokkuð óvænt gerst

„Bens­ín­lausa vélin hrökk í gang þar sem mér hafði láðst að skrúfa fyrir allt bensín.“ Þar sem bens­ín­gjöfin var opin „rauk vélin eins og hestur sem fælist“ og flug­vélin hækk­aði skyndi­lega.

Þá hafi hann séð fram á að ekki næði að stoppa á braut­inni. „Óvíst er að ég væri heill heilsu að skrifa þessi orð ef svo hefði farið,“ skrifar hann. Flug­mað­ur­inn ákvað að nauð­lenda utan brautar. „Á ein­hvern óskilj­an­legan hátt tókst þessi nauð­lend­ing ótrú­lega vel. Allir gengum við sjálfir frá borði.“

Enginn í vél­inni þurfti sjúkra­hús­vist en læknir og sjúkra­flutn­inga­menn á vett­vangi tóku af hverjum og einum lof­orð um að láta vita ef ein­kenni kæmu síðar. „Við gáfum allir skýrslu hjá lög­reglu hver í sínu lagi og síðan gátu allir farið til sín heima,“ segir flug­mað­ur­inn.

Hann gagn­rýnir að í fyrstu fréttum hafi verið talað um brot­lend­ingu, þrátt fyrir að lög­regla hafi sjálf séð áhöfn­ina ganga frá borði um hálf­tíma fyrr.

„Það hefði verið huggu­legt fyrir alla þá sem á fréttir útvarps hlýddu ef þar hefði komið setn­ing í þá veru að flug­maður og far­þegar væru á gangi kringum vél­ina,“ skrifar hann og segir rangar fregnir um alvar­leg meiðsli hafa valdið óþarfa áhyggjum.

Magnús endar færsl­una á að þakka þeim sem sýndu hlý­hug og sendu góðar kveðjur: „Öllum sem hugs­uðu fal­lega til mín og sendu góða strauma til okkar félag­anna þakka ég af alhug… Takið ekki mark á öllu sem þið lesið. Ást og friður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas