Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Truflandi hvað áhugi á Evrópumóti kvenna er lítill hér á landi

Hafliði Breið­fjörð er óánægður með það hversu litla athygli íslenska kvenna­lands­liðið fær og segir aft­ur­för í þeim málum hafa átt sér stað hjá fjöl­miðlum hér á landi sem fjalla mikið um íþróttir

Hafliði Breiðfjörð (til hægri)
Hafliði Breið­fjörð (til hægri) Vill veg kvenna­lands­liðs­ins sem mestan Mynd: KSÍ

Hafliði Breið­fjörð hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í þróun og vexti Fótbolti.net frá því þeim tíma er hann stofn­aði vef­inn árið 2002.

Hafliði átti 95 pró­senta hlut í vefnum á móti knatt­spyrnu­þjálf­ar­anum Magnúsi Má Ein­ars­syni, en þeir hafa báðir selt sinn hlut.

Þótt Hafliði hafi selt Fótbolta.net fylgist hann enn með íþrótta­líf­inu hér á landi af miklum áhuga og eld­móð.

Hann er ekki sáttur við hversu litla umfjöllun og hvatn­ingu íslenska kvenna­lands­liðið fær hér heima á Íslandi og seg­ist sorg­mæddur yfir stöð­unni eins og hún blasi við honum í dag:

„Þau sem mig þekkja vita að ég hef alltaf lagt mikið uppúr að auka umfjöllun um kvenna­fót­bolta og tel mig hafa verið mik­inn braut­ryðj­anda í því. Þess vegna truflar mig hvað áhugi á að gera kom­andi Evr­ópu­móti kvenna hátt undir höfði er lít­ill.“

Hann segir að liðið hafi farið utan í morgun, spilar æfinga­leik í Serbíu og fer svo á mótið stóra:

„Áður hefur KSÍ boðið fjöl­miðlum að vera við­staddir í Leifs­stöð þegar liðið kveður í mótið. Núna hefur eng­inn fjöl­mið­ill, né KSÍ sagt frá því. Bara leik­menn sjálfir á sam­fé­lags­miðlum.“

Hafliði segir að hlut­irnir hafi ekki alltaf verið slæmir:

„Ég man að fyrir fyrsta EM var Siggi Raggi [Sigurður Ragnar Eyj­ólfs­son, inn­skot blm] þjálf­ari liðs­ins í stöð­ugu sam­bandi við mig, hvað getum við gert til að auka umfjöllun um mótið og hvað getur hann gert til að auð­velda okkur það. Núna er liðið að fara á mót þar sem mögu­leiki á að kom­ast áfram er veru­legur en samt virð­ist áhug­inn á mót­inu vera í sögu­legu lág­marki. Liðið leikur loka­leik fyrir mót í Serbíu og tekur und­ir­bún­ing þar.“

Hafliði segir að end­ingu að „minn gamli fjöl­mið­ill, Fótbolti.net, er eini fjöl­mið­ill­inn sem ætlar að mæta þangað. Ég er eins og flest vita búinn að selja vef­inn svo þetta verður fyrsta stór­mótið í langan tíma sem ég mæti ekki á. Á EM 2022 voru fimm ljós­mynd­arar af íslenskum fjöl­miðlum. Á EM 2025 verður einn, það er leið­in­leg þróun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas