Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Þessi fámenni, fúllyndi hópur öskrar hærra en venjulegt fullorðið fólk“

Gauti B. Egg­erts­son segir andúð á múslimum byggða á van­þekk­ingu.

Stefán E. Stefánsson
Stefán E. Stef­áns­son Stefán Einar Stef­áns­son er á mynd­inni sem Gauti B. Egg­erts­son birti við Facebook-færslu sína. Gauti tekur fram að myndin teng­ist ekki efni færsl­unnar. Mynd: BHJ

Gauti B. Egg­erts­son, hag­fræði­pró­fessor við Brown-háskóla í Banda­ríkj­unum, gagn­rýnir harð­lega þá umræðu að múslimar geti ekki lifað í sátt og sam­lyndi við kristið fólk. Hann segir slíkar full­yrð­ingar bera vott um „djúp­stæða van­þekk­ingu á menn­ingu okkar og sögu mann­kyns­ins“.

Gauti B. Egg­erts­son hag­fræði­pró­fessor skrifar um sam­búð múslima og krist­inna í færslu á Facebook þar sem hann bendir á að múslimar hafi nýverið náð kjöri í mik­il­væg emb­ætti í Banda­ríkj­unum.

Hann nefnir meðal ann­ars að í New York-borg séu um fjögur pró­sent kjós­enda múslimar en meiri­hluti kjós­enda hafi kosið múslima sem borg­ar­stjóra. Í Michigan séu um tvö pró­sent íbúa múslimar og þar hafi Abdul El-Sayed nýverið verið kjör­inn full­trúi í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings.

„Almennt er bara fín stemmn­ing í Michigan og New York,“ skrifar Gauti.

Hann bendir jafn­framt á að um 26 pró­sent mann­kyns séu múslimar og 29 pró­sent kristnir. Bæði trú­ar­brögðin séu abra­hamísk og eigi sam­eig­in­legar rætur í trú­ar­hefð sem einnig nái til gyð­ing­dóms.

„Þessi tvö trú­ar­brögð ná því til meira en helm­ings mann­kyns. Að halda því fram að fólk sem aðhyllist íslam geti ekki lifað í sátt og sam­lyndi við fólk sem aðhyllist kristni lýsir djúp­stæðri van­þekk­ingu á menn­ingu okkar og sögu mann­kyns­ins,“ skrifar hann.

Segir öfga­fólk öskra hærra en aðrir

Gauti segir að fólk með vafa­samar hvatir og sið­ferð­is­lega ann­marka sé að finna innan allra trú­ar­hópa.

„Enginn trú­ar­hópur hefur einka­rétt á slíku fólki,“ segir hann.

Hann telur að sið­laus og öfga­full umræða, gegn­sýrð af mann­fyr­ir­litn­ingu, hafi færst í auk­ana meðal öfga­fólks innan beggja trú­ar­hópa á und­an­förnum árum.

Hann segir þó að um sé að ræða mjög þröngan hóp sem hafi ekki sama fylgi meðal almenn­ings og hávær umræða hans gefi til kynna.

„En þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk,“ skrifar Gauti.

Við færsl­una birtir Gauti mynd af Stefáni Einari Stef­áns­syni, sið­fræð­ingi og fjöl­miðla­manni á Morg­un­blað­inu. Hann tekur þó sér­stak­lega fram í færsl­unni að mynd­birt­ingin teng­ist efni hennar ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas