Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Íslendingur knésetti easyJet

Svika­mylla afhjúpuð á Gatwick

Flug­félagið easyJet hefur viðurkennt mistök, endur­greitt aukagjald og fjarlægt stál­plötur úr farangurs­grindum á Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Þetta er niður­staðan eftir margra mánaða baráttu Aðalsteins Svan Hjelm sem neitaði að sætta sig við ósann­gjarna innheimtu.

Málið hófst í maí síðastliðnum þegar Aðalsteinn var á leið í frí til Grikk­lands gegnum Gatwick-flugvöll. Við hliðið var hann stöðvaður af starfs­fólki easyJet og beðin um að setja hand­farangurs­töskur sínar í málmgrind sem notuð er til að staðfesta lögmæt mál farangurs.

Aðalsteinn var með Samsonite-tösku sem er sérstak­lega merkt sem „easyJet Verified“ og hefur nýst í fjölda ferða um allan heim án athugasemda. Í þetta skiptið passaði taskan hins vegar ekki í grindina. Þrátt fyrir mótmæli farþega var svarið einfalt: „Ef hún passar ekki, þá borgarðu.“ Lyktaði málinu svo að parið þurfti að greiða um 16.000 íslenskar krónur (tæplega 100 bresk pund) í aukagjald fyrir tvær töskur.

Kerfið brást neytendum

Aðalsteinn tók myndir af atvikinu og hóf þegar daginn eftir formlegt kæruferli. Eftir að easyJet og Gatwick-flug­völlur höfnuðu kröfum hans, var málinu skotið til Aviation ADR, sem á að heita óháður úrskurðar­aðili í flugmálum í Bretlandi.

Á öllum stigum málsins var kröfu Aðalsteins hafnað og á engum tíma­punkti var gripið til þess úrræðis að mæla umrædda málmgrind með óháðum hætti. Aviation ADR kvað upp loka­úrskurð þar sem tekið var undir orð easyJet og málinu lokað.

Augljós fjárhagslegur hvati

Aðalsteinn hóf þá eigin rannsókn á málinu og komst að því að fjölmargir farþegar höfðu lýst nákvæmlega sömu reynslu á vettvangi bresku neytenda­samtakanna Which?.

Í ljós kom að easyJet hefur útvistað þessari hliðar­þjónustu til verktaka. Samkvæmt breskum miðlum fær verktakinn hlutdeild í hverri innheimtu, sem nemur um 2,50 pundum af hverjum 48 pundum sem innheimt eru. Slíkt fyrir­komulag skapar augljósan fjárhags­legan hvata fyrir starfs­fólk til að finna sem flestar töskur sem „passa ekki“.

Aukagjöld vegna hand­farangurs og annarrar hliðar­þjónustu eru gríðar­lega mikilvæg tekjulind fyrir flug­félagið, en á síðasta fjárhagsári námu þessar tekjur um 2,46 milljörðum breskra punda, sem nemur um 30% af heildar­tekjum easyJet.

Fullnaðarsigur og viðurkenning á mistökum

Í stað þess að gefast upp eftir neikvæðan úrskurð Aviation ADR, ákvað Aðalsteinn að senda loka­erindi beint á persónuleg netföng æðstu stjórn­enda easyJet þar sem hann reifaði málið og sönnunar­gögnin.

Aðeins nokkrum klukku­stundum síðar barst svar frá flug­félaginu þar sem liðsinni hans var þakkað. Í ljós kom að easyJet hafði hrundið af stað innan­húsrannsókn sem leiddi til þess að ákveðið var að fjarlægja allar stál­plötur úr farangurs­grindunum á Gatwick-flugvelli. Flug­félagið baðst afsökunar og lofaði fullri endur­greiðslu.

Málinu er þó ekki alveg lokið þar sem Aðalsteinn hefur þegar sent fyrir­spurn til baka um hvað standi til að gera varðandi þá þúsundir annarra farþega sem kunna að hafa greitt ólögmæt gjöld á meðan stál­plöturnar voru í notkun. Þá verða gögn málsins send áfram til breskra neytenda­samtaka og stærri fjölmiðla ytra til að tryggja að málið fái verð­skuldaða athygli.

Aðalsteinn lýsir raunum sínum í opinberri færslu sem lesa má í heild sinni hér:

„Smá FYI næst þegar þið fljúgið með easyJet eða öðru flug­félagi og svika­myllu sem virðist fá þar að dafna og gott er fyrir ykkur að hafa í huga.

Við Inga fórum í dásamlega ferð til fjöl­skyldunnar okkar í Grikk­landi í maí síðastliðnum. Alltaf jafn yndislegt að koma þangað. Við easyJet hliðið í Gatwick lentum við hins vegar í heldur leiðinlegri reynslu þegar við vorum stöðvuð og beðin um að setja hand­farangurs­töskurnar okkar í málmgrind sem á að staðfesta hvort þær uppfylli 45 cm regluna hjá easyJet. Ekkert óeðlilegt við það í sjálfu sér.

Ég var með Samsonite hand­farangurs­tösku sem er merkt „easyJet Verified“ og hef ferðast með hana vítt og breitt um heiminn án vandræða. Einhverra hluta vegna passaði taskan allt í einu ekki í grindina. Ég benti starfs­fólkinu kurteis­lega á að eitthvað hlyti að vera athuga­vert þar sem ég hefði aldrei áður lent í þessu með sömu tösku. Svarið var frekar einfalt:

„If it does not fit, you pay!“

Þrátt fyrir mótmæli og tuð af minni hálfu og fleiri farþega sem urðu vitni að þessu, endaði málið með því að við þurftum að greiða um 16.000 krónur í aukagjald fyrir tvær hand­farangurs­töskur.

Mér fannst eitthvað ekki stemma þarna. Ég hef ferðast með þessa tösku í fjölda ferða án athugasemda og fannst framkoma starfs­fólksins óvenju ákveðin. Ég tók því myndir af öllu og hóf daginn eftir formlegt kæruferli hjá easyJet.

Þegar það skilaði engu sneri ég mér að Gatwick-flugvelli sem gat eða vildi ekkert aðhafast. Að lokum fór málið til Aviation ADR, sem á að heita óháður úrskurðar­aðili í svona málum. Á öllum stigum var kröfunni minni hafnað um sann­gjarna meðferð og á engum tíma­punkti var gripið til þess einfalda úrræðis að mæla málm­grindina með óháðum hætti. Mér fannst það vægast sagt undarlegt og var ekki tilbúinn að kyngja þessu og fór því að skoða málið betur. Þar kemur í ljós að fjölmargir hafa lýst nákvæmlega sömu reynslu. Hér eru nokkrar greinar um málið:

https://www.which.co.uk/.../what-to-do-if-an-airline...

https://www.which.co.uk/.../why-easyjet-passengers-should...

Samkvæmt þessum heimildum hefur easyJet útvistað þessari þjónustu til verktaka. Þar kemur jafnframt fram að farþegar greiði 48 GBP (um 8.100 kr.) fyrir hverja tösku sem er talin of stór. Af þeirri upphæð fær verktakinn samkvæmt sömu heimildum 2,50 GBP (um 420 kr.) fyrir hverja innheimtu. Ef þessar upplýsingar eru réttar skapast augljós fjárhags­legur hvati til að finna sem flestar töskur sem „passa ekki“.

Til að setja þetta í samhengi skulum við taka einfalt dæmi. EasyJet flýgur fjórum sinnum á dag frá Gatwick til Aþenu. Ef við gefum okkur að að meðaltali 30 farþegar í hverju flugi greiði 8.100 kr. í aukagjald vegna hand­farangurs, gætu tekjurnar numið um 972.000 krónum á dag, eða rúmlega 355 milljónum króna á ári – frá þessari einu flugleið. Af þeirri upphæð myndu um 18,4 milljónir króna renna til verktakans samkvæmt framan­greindum upplýsingum.

Til saman­burðar rekur easyJet um 1.600 flug á dag um Evrópu. Ef sambærileg framkvæmd á sér stað á fleiri flug­völlum og hliðum er ljóst að um mjög háar fjárhæðir gæti verið að ræða. Þessir útreikningar eru að sjálfsögðu aðeins dæmi sem sýna hversu miklar tekjur geta orðið til ef slíkar innheimtur eru algengar.

Það sem gerir þetta enn athyglis­verðara er að samkvæmt ársreikningi easyJet námu tekjur félagsins af auka­gjöldum – svo sem hand­farangri, sætavali, forgangs­þjónustu og annarri viðbótar­þjónustu – um 2,46 milljörðum breskra punda á síðasta fjárhagsári, eða um 413 milljörðum íslenskra króna. Það jafn­gildir um 30% af tekjum flug­rekstrar félagsins. Það er því ljóst að aukagjöld eru ekki smávægilegur hluti af rekstrinum heldur afar mikilvæg tekjulind sem kemur meðal annars til vegna svona vinnu­bragða.

Í morgun fékk ég semsagt loka­úrskurð frá Aviation ADR. Þau sjá enga ástæðu til að taka málið til frekari skoðunar og treysta einfald­lega á orð easyJet um að allt sé í þarna í himnalagi.

Næsta skref væri því að fara með málið fyrir dómstóla og jafnvel í fjölmiðla. Ég nenni hreinlega ekki að eyða meiri tíma í þetta en langaði að deila þessari reynslu okkur öllum víti til varnaðar.

Þannig að, kæru vinir, næst þegar þið ferðist með hand­farangur, takið með ykkur málband. Eftir þessa reynslu get maður því miður ekki lengur treyst easyJet aftur né jafnvel öðrum flug­félögum - að tekið sé á svona málum af sanngirni og heiðar­leika. Kannski er það bara svona sem þessi lággjalda­flugfélög ná að halda verðinu á flug­miðanum niðri og ná svo inn aurunum með klækja­brögðum líkt og við Inga okkar lentum hér því miður í.

Rétt til að bæta því við þá þurfa sem dæmi öll tæki sem við fram­leiðum og seljum hjá Marel og notuð eru til viðskipta eftir vigt, að vera löggilt og reglulega vottuð af hinu opinbera til að tryggja sann­gjarna verð­lagningu. Sambærilegar kröfur virðast hins vegar ekki gilda um mælibúnað flug­félaga sem þýðir í raun að flugfélög geta hagað sér þarna sem þeim sýnist og halað inn milljónunum á dag án nokkurra afskipta frá eftirlits­stofnunum. Það finnst mér, að minnsta kosti, umhugsunar­efni.

Ást og friður!

UPPFÆRT: Fullnaðar­sigur!! Sjáið í kommentinu mínu hér fyrir neðan

UPPFÆRT: Fullnaðar­sigur!!

Vill svo ótrúlega til að eftir að dómurinn hjá Aviation ADR var kveðinn upp í morgun og ég gerði í kjölfarið eina loka­tilraun með því að senda tölvupóst á nokkra af helstu stjórn­endum easyJet, með netföng sem ég hafði komist yfir, var haft samband við mig núna seinni­partinn.

Þar viðurkennir easyJet að eftir rannsókn sem flug­félagið segist hafa hrint af stað – væntanlega í kjölfar kærunnar frá mér – hafi verið ákveðið að fjarlægja allar stál­plötur úr umræddum farangurs­grindum á Gatwick. Ég mun fá gjaldið að fullu endur­greitt og beðist hefur verið afsökunar á því sem gerðist.

Núna í kjölfarið sendi ég svo easyJet þakkar­póst fyrir að hafa loksins brugðist við og leiðrétt það sem ég tel augljós mistök, eftir marga mánuði af samskiptum og kæru­ferlum af ýmsum toga. Ég sendi jafnframt allar nauðsynlegar banka­upplýsingar vegna endur­greiðslunnar.

Um leið lét ég þá spurningu fylgja með hvað stæði til að gera varðandi alla hina farþegana sem kunna að hafa greitt sambærileg gjöld á meðan þessar stál­plötur voru enn í notkun undan­farna mánuði. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig easyJet bregst við þeirri spurningu, nú þegar flug­félagið hefur viðurkennt mistök og gripið til úrbóta.

Þetta er því klár sigur fyrir mig. Málinu er þó ekki lokið að mínu mati. Ég mun senda öll gögn áfram til neytenda­samtaka í Bretlandi og nokkurra vel valinna fjölmiðla þar í landi, enda tel ég mikilvægt að upplýsa hvort fleiri farþegar hafi orðið fyrir sambærilegri meðferð. Þar verður eitthvað fjaðra­fokið skal ég segja ykkur ef ég þekki Englendingana rétt!

Réttlætið sigrar semsagt alltaf að lokum, kæru vinir!!

Hér er umrætt svar frá easyJet, sem er í raun kostulegt í ljósi alls þess sem á undan er gengið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Peningar

Kröfu­hafar Skagans 3X boðaðir á fund

Félagið var úrskurðað gjaldþrota í júlí 2024. Kröfuhafar geta nú kynnt sér tillögu að úthlutun úr þrotabúinu.
  • Kaup­máttur jókst um 5,8 prósent frá upphafi kjara­samninga­lotunnar

  • Skiptum lokið á þrotabúi Talays

  • Elís segist hafa tapað 100 milljónum í viðskiptum við fjárfesta

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyrirtæki með fyrrum lands­liðsmanni

  • Landsliðs­konur í ný störf