Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Össur rífur Brynjar í sig: „Sjálfstæðisflokkurinn skelfur á beinunum af ótta við Kristrúnu“

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra.
Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

„Úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu er Brynjar Níelsson helsta gjall­ar­horn og hunda­blístra skrímsla­deild­ar­innar og greini­legt að and­spænis sterkum og óvana­lega efni­legum stjórn­mála­manni er eina ráð þessa myrkasta afkima flokks­ins að tala Kristrúnu niður,“ skrifað Össur Skarp­héð­ins­son á Facebook í dag. Í færslu sinni talar hinn gamli Sam­fylk­inga­ráð­herra um hræðslu Sjálf­stæð­is­flokks­ins við Kristrúnu Frosta­dóttur.

Í færsl­unni segir Össur að Brynjari Níels­syni, aðstoða­manni dóms­mála­ráð­herra, haldi að fólk sé „fífl“ en er hann sjálfur á önd­verðu meiði hvað það varðar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn segir Össu að sé „skít­hræddur“ við Kristrúnu en fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur hækkað um 18 pró­sentu­stig síðan hún tók við for­mennsku í flokknum.

Færslan er í heild sinni hér:

„Þau eru skít­hrædd við Kristrúnu

Er fólk fífl? Brynjar Níelsson virð­ist þeirrar skoð­unar. Eftir að hafa lesið helg­ar­við­tal við Kristrúnu Frosta­dóttur í Mogganum seg­ist hann efast um að hún njóti alþýðu­hylli, sér ekk­ert nema froðu í við­tal­inu og segir að hún hafi engin áherslu­mál. Hvernig ætlar þá hinn eit­ur­snjalli stjórn­mála­skýr­andi að útskýra að fylgi flokks okkar Kristrúnar hefur auk­ist um ríf­lega 18% eftir að hún tók við for­mennsku? Gæti það stafað af því að fólki líki ein­fald­lega við þær áherslur sem hún hefur lagt fram? Kann að vera að Íslend­ingum þyki hún skel­eggur leið­togi sem sé lík­legur til að ná betri árangri fyrir þjóð­ina en núver­andi leið­togar hennar? Vita­skuld. Fólk er nefni­lega ekki fífl. Það sést best á því að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur hrunið síð­ustu ár af því fólk dæmir hann af verkum sínum. Stað­reyndin er sú, að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skelfur á bein­unum af ótta við Kristrúnu. Úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu er Brynjar Níelsson helsta gjall­ar­horn og hunda­blístra skrímsla­deild­ar­innar og greini­legt að and­spænis sterkum og óvana­lega efni­legum stjórn­mála­manni er eina ráð þessa myrkasta afkima flokks­ins að tala Kristrúnu niður. Línan í umtali og hvísl­her­ferðum á að vera að hún hafi ekk­ert að segja, enga stefnu og tali tóma froðu. Við, sem höfum glímt við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þekkjum þessar aðferðir. En við vitum líka að fólk er ekki fífl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas