Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

KSÍ vill ekki segja hvort milljarðahöllin í Garðabæ fái vallarleyfi – Benda hvert á annað

Knattspyrnuvöllurinn í Miðgarði
Knatt­spyrnu­völl­ur­inn í Miðgarði Mynd: Verkís

Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar frá Knattspyrnu­sambandi Íslands varðandi ákvörðun stjórnarinnar um nýju íþrótta­höll Garða­bæjar, Miðgarð. Ákvörðun var tekin í fyrradag en stjórnin gefur sér viku til að birta hana.

Stjórn KSÍ fer undan í flæmingi þegar Mannlíf hefur reynt að fá upplýsingar um stöðu milljarða­hallarinnar í Garða­bæjar, Miðgarðs. Samskipta­stjóri bæjarins fullyrti í svari til Mannlífs fyrir nokkrum vikum, að KSÍ hefði ákveðið að gefa knattspyrnu­vellinum í Miðgarði undanþágu með því að leyfa knattspyrnu­leiki þar í efstu deildum beggja kynja. Unnar Stefán Sigurðsson formaður Mannvirkja­nefndar KSÍ hafði svarað Mannlífi og sagt að málið yrði tekið fyrir hjá nefndinni mánudaginn 20. mars. Þá yrði fundar­gerðin lögð fyrir stjórn KSÍ og birt þar í fram­haldinu. Þegar Mannlíf spurði Unnar eftir fundinn 20. mars, hvaða ákvörðun hafi verið tekin varðandi Miðgarð var svarið á þá leið að stjórn KSÍ tæki málið fyrir á fundi þann 29. mars.

Degi eftir þann fund spurði Mannlíf Unnar út í niður­stöðuna í málinu. „Stjórnar­fundur í gær þar sem þetta var eitt af umræðu­efnunum. Stjórnin hefur núna viku til að birta fundar­gerðina og á meðan þeim tíma stendur vil ég ekki tjá mig um þetta mál.

Vorum einnig sammála í gær, á stjórnar­fundinum, að allar umræður um málefni sem snúa að KSí skulu framvegis fara í gegnum formann KSí. Ég vil því vísa þér á að hafa samband við Vöndu.“

Mannlíf sendi samdægurs fyrir­spurn á Vöndu Sigurðar­dóttur, formaður KSÍ um vallar­leyfið en ekkert svar barst frá henni en Unnar Stefán svaraði: „Eftir spjall þá var ákveðið að öllum fyrir­spurnum um mannvirkjamál skal beina til Fannars Helga, sem er starfs­maður KSí í mannvirkja­málum.“

Fannar Helgi fékk sömu fyrir­spurn frá Mannlífi en svaraði á þessa leið: „Vitna í svar Unnars formanns Mannvirkja­nefndar KSÍ til þín núna í morgun.

“Stjórnar­fundur í gær þar sem þetta var eitt af umræðu­efnunum. Stjórnin hefur núna viku til að birta fundar­gerðina og á meðan þeim tíma stendur vil ég ekki tjá mig um þetta mál.„

Við getum svarað þér frekar varðandi þetta mál fyrir lok miðvikudagsins í næstu viku.“

Það er því ljóst að stjórn KSÍ vilji gefa sér góðan tíma til að gefa upplýsingar um það hvort milljarða­höllin í Garðabæ fái undanþágu sem keppnis­völlur fyrir efstu deildir knatt­spyrnunnar eða ekki. Undanþáguna þarf höllin vegna loft­hæðarinnar en hún er 14 metrar en lágmarkshæð á löglegum velli eru 20 metrar. Þá sjá áhorf­endur ekki nema 80 til 85 prósent af vellinum því stúkan er byggð of nálægt vellinum en enga undanþágu þarf þó fyrir slíkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim