Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vorið á fjórum hjólum

Mini Countryman í tvinn­bíla­út­gáfu er ein­stak­lega skemmti­legur bíll sem er fyrst og fremst gaman að keyra.

||||||
||||||

Hvern ein­asta morgun þegar ég vakna og lít út um glugg­ann verð ég að hug­hreysta sjálfan mig og end­ur­taka í sífellu: Jú, sum­arið kemur víst að lokum. Það kemur víst. Vertu þol­in­móður.

Ég get vel ímyndað mér að flestir landa minna séu í sömu sporum, við höfum öll fengið okkur full­södd af grámygl­unni og vot­veðr­inu. En við höfum ekk­ert val, við verðum bara að setja haus­inn undir okkur og vaða upp í vind­inn.

Nú, eða setj­ast inn í sum­ar­leg­asta bíl sem fram­leiddur hefur verið. Bíl sem nær ómögu­legt er að vera í vondu skapi í.
Austin Mini hefur alltaf verið í ákveðnu upp­á­haldi hjá mér. Hann er svo ung­æð­is­legur og bjart­sýnn, ef hægt er að segja það um bíl. Hann er tákn bresku nýbylgj­unnar, æsk­unnar og draums­ins að slaka bara á og njóta lífs­ins.

Mini stækkar og styrk­ist
Þegar ég fékk bíl­inn í hend­urnar, en ég keyrði Mini Countryman í tvinn­bíla­út­gáfu, var það fyrsta sem ég hugs­aði: Vá. Mini er búinn að hanga aðeins of mikið í rækt­inni og fá einum og margar ster­a­sprautur í aft­ur­end­ann.

Hann er ein­hvern veg­inn meiri um sig og stærri. Sem þarf ekki að vera verra, vegna þess að hann er ögn rúmbetri en fyr­ir­renn­arar sínir.

Mæla­borðið er eins og smekk­legur glymskratti, marg­lit ljós og sér­stæð hönnun mæla­borðs­ins og stýr­is­ins kemur vel út. Hönnunin er greini­lega inn­blásin af hönnun gam­alla stjórn­klefa í flug­vélum og kannski hef ég horft á of margar James Bond-myndir en þetta gengur full­kom­lega upp.

Lipur sem aldrei fyrr
Ég var strax kom­inn í gott skap og hélt af stað út fyrir borg­ar­mörkin í leit að smá­vegis vorglætu. Hlustaði í bítnikktón­list og leyfði borg­inni að hverfa í bak­sýn­is­speg­il­inn.

Það er gott að keyra Mini Cooper og Countryman. Þeir eru svo liprir og verða fljót­lega eins og fram­leng­ing á huga manns. Ég átti ekki í vand­ræðum með að taka fram úr hæg­fara ferða­mönnum sem negldu niður í hvert sinn sem sást glitta í hesta í gerði við þjóð­veg­inn. Sú stað­reynd að Countryman er fjór­hjóla­drif­inn gerði akst­ur­inn enn áhuga­verð­ari.

Rafmagn og bensín í bland
Countryman er tvinn­bíll sem hægt er að stinga í sam­band fyrir hleðslu. Tvinn­vélin gerir bílnum lít­inn greiða í langakstri. Raf­hlöður eru þungar og út á þjóð­veg­inum kostar tvinn­hlut­inn ein­ungis meiri eyðslu. Árinni kennir, og allt það, en ég var alla­vega langt fyrir ofan gefna eyðslu á bílnum strax á Vest­ur­lands­veg­inum.

Tvinn­vélin kemur sér án efa mun betur í inn­an­bæj­ar­snatt­inu þar sem vega­lengdir eru styttri og mögu­leiki gefst að setja bíl­inn í sam­band.

Ég ákvað að keyra að Búðum á Snæ­fells­nesi og kíkja þar í kaffi. Það var eins og við mann­inn mælt að um leið og komið var upp úr göng­unum reif nesið af sér og sólin heils­aði upp á okkur. Fyrir framan okkur var þungur rign­ing­ar­bakki, og gott ef ekki snjó­koma bak við okkur. En svona var þetta alla leið­ina. Ekkert nema sól á Mini-inn.

Þetta er helsti kostur Mini Cooper og Countryman. Þeir eru ein­stak­lega skemmti­legir bílar sem er fyrst og fremst gaman að keyra. Það eru án efa praktísk­ari kostir í stöð­unni, en þegar þung­lyndið yfir vor­leys­inu hellist yfir mann þá fýkur praktík út í veður og vind og þessi hreina og fölsvalausa gleði sem felst í að keyra Mini verður öllu öðru yfir­sterk­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas