Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Bendir á eitt atriði varðandi Smiðju, sem truflar hann: „Ansi hrokafull nálgun hjá arkitektum“

Tölvumynd af Smiðju.
Tölvu­mynd af Smiðju. Mynd: Studio Grandi

Smiðja, nýtt skrif­stofu­hús Alþingis var opnað almenn­ingi á dög­unum en fjöl­margir nýttu sér opn­un­ina og kíktu í heim­sókn. Sitt sýn­ist hverjum um ágæti bygg­ing­ar­innar en Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur er nokkuð ánægður, fyrir utan eitt ákveðið atriði.

Stefán segir að fólk kepp­ist við að hafa skoðun á hinu nýja skrif­stofu­húsi Alþingis en hann sé nokkuð sáttur:

„Ég hef aðeins fengið að skoða Smiðju, nýja skrif­stofu­hús Alþingis, sem fólk kepp­ist við að hafa skoðun á. Ég er frekar sáttur. Mér finnst margt í hönn­unni flott, þótt það sé kannski mis­jafn­lega praktískt miðað við starf­sem­ina.“ Þetta skrif­aði Stefán í gær á Facebook en bendir síðan á eitt atriði varð­andi bygg­ing­una sem truflar hann.

„Það truflar mig hins vegar að hönn­unin er með þeim hætti að mjög erfitt er að koma nokk­urri mynd­list fyrir á veggjum. Hug­myndin virð­ist vera sú að einu lista­verkin sem eigi að fá að standa í bygg­ing­unni séu þau sem gert var ráð fyrir í upp­hafi.“

Í loka orðum sínum sakar Stefán arki­tekta um hroka:

„Þetta finnst mér vera ansi hroka­full nálgun hjá arki­tektum og ekki sér­stak­lega íþrótta­manns­leg gagn­vart annarri stétt lista­manna, sem eru mynd­list­ar­menn­irnir. Hið opin­bera er stærsti og mik­il­væg­asti kaup­andi lista­verka í sam­fé­lag­inu. Þegar arki­tektar hanna bygg­ingar þannig að þær gefa ekki auð­veld­lega kost á að koma fyrir mynd­list grafa þeir undan kol­legum sínum. Jafn­framt svipta þeir not­endur hús­anna um ókomna tíð mögu­leik­anum á að end­ur­skapa umhverfið eftir eigin höfði með vali á mynd­list. Þetta er helsta umkvört­un­ar­efni mitt varð­andi ann­ars ágætt mann­virki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið