Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Karl Ágúst glímir við eftirköst vegna heilaæxlisins: „Get ómögulega munað hvað hann eða hún heitir“

Karl Ágúst Úlfsson.
Karl Ágúst Úlfsson.

Karl Ágúst Úlfsson, leik­ari og rit­höf­undur, glímir við eft­ir­köst þess að hafa fengið heila­æxli á stærð við golf­kúlu. Hann, sem er þekkt­astur sem einn lyk­il­manna Spaug­stof­unnar, lýsir afleið­ing­unum af ein­lægni í hlað­varp­inu Kalda pott­inum.

Karl fór í aðgerð fyrir tveimur árum þar sem æxlið var fjar­lægt. Hann segir orða­forða sinn hafa minnkað um 75 pró­sent og hann eigi í dag erfitt með að muna nöfn.  „Þegar ég var að tala vant­aði mig bara orð yfir það sem ég ætl­aði að tala um. Ég bara fann þau ekki. Iðulega not­aði ég vit­laus orð og fatt­aði það sjálfur strax en fann ekki réttu orðin,“ segir Karl Ágúst.

Hann fór í þjálfun hjá minnis­þjálf­ara þar sem stað­fest var að minni leik­ar­ans var mjög skert. Þjálf­ar­inn bað Karl að skrifa niður nöfn á 10 bif­reiða­teg­undum.

„Ég skrif­aði efst á blaðið Benz og svo mundi ég ekki meira. Sjálfur átti ég samt þrjá bíla, Land Rover, Toyota og Chevrolet en ég mundi ekk­ert af þessu.“

Karl Ágúst lýsir því að hann hafi náð góðum fram­förum eftir veik­indin. Eftir situr þó að hann á erfitt með að muna rétt orð. Karl nefnir sem dæmi að eitt sinn hafi hann ætlað að segja frá því að móðir hans glímdi við mígreni. Hann mundi ekki orðið heldur lýsti því sem ástandi þar sem fólk fær hræði­legan höf­uð­verk. Við­mæl­andi hans spurði þá hvort hann meinti mígreni og Karl stað­festi það en örskömmu síðar hafði hann aftur gleymt orð­inu. Nú man hann orðið með því að hugsa sér móður sína, sem heldur á greni og úr því flýgur mý.

Karl man hvað börn hans og vinir heita, en eftir því sem tengslin eru fjar­lægar þá verður erf­ið­ara að rifja upp nöfnin.

„Ég man kannski and­litið og cirka hvernig ég á að þekkja þessa mann­eskju en get ómögu­lega munað hvað hann eða hún heitir,“ segir leik­ar­inn góð­kunni.

DV var með umfjöllun um þessi mein­legu örlög leik­ar­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Líkir yfir­stjórn lög­regl­unnar við „frekan krakka í dóta­búð“

„Þetta er ríkisstjórninni til háborinnar skammar“
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Heimur

Vís­inda­menn þróa raf­magns­kamb sem gæti end­ur­vakið hár­vöxt

Pólitík

Ragna og Nanna vilja skoða skyldu mæðra til að taka orlof strax eftir fæð­ingu

Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið