Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Júlía – Lifðu til fulls: „Nýjar uppskriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferðast“

Matgæðingur Mannlífs þessa vikuna er Júlía Magnúsdóttir, hjá Lifðu til fulls – heilsu­markþjálfun.

Lifðu til fulls hjálpar konum að öðlast breyttan lífsstíl og finna hvað líkaminn getur verið  orku­mikill þegar hann er laus við óþarfa sykurþörf allan sólar­hringinn. Þér á að líða vel í eigin skinni og er útkoman fyrir marga þyngdartap, en það er alls ekki alltaf aðal­markmiðið.

Góðar aðferðir til að ná huganum um borð
Júlía segir okkur að aðal­markmið með þessari heilsu­markþjálfun sé einfald­lega að hjálpa öðrum að lifa lífinu til fulls. „Við gerum það með því að setja saman matarplan fyrir hvern og einn og svo höldum við utan um planið í gegnum netnámskeið. Heildar­planið er svo sannreynt með matseðlum, innkaupa­listum og aðferðum til að ná huganum um borð í þessa sykur­lausa vegferð. Mikilvægt er að skapa venjur sem þú tekur með þér áfram til þess að ná varanlegum breytingum.“

Uppáhalds­réttur Júlíu er svokallað Vetrar­salat með graskeri, linsu­baunum og grænkáli – sjúklega gott, einfalt og fljótlegt.

„Vikulega elda ég indverskan mat og einu sinni í viku baka ég æðislega pítsu með möndlu­mjöli, graskeri, möndlu ricotta-osti, basil, ólífum, kúrbít og tómötum …ohh, hvað hún er góð!“

Júlía hefur menntað sig í hráfæði og fær mikinn innblástur til matar­gerðar á ferða­lögum sínum. „Nýjar uppskriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferðast og fer á nýjar slóðir og kynnist nýjum matar­heimi. Ég borða líka reglulega hráfæði og finnst gott að borða súrkál, kombucha, gerjaða kókos­jógúrt, hrákökur og granóla, svo einhver dæmi séu nefnd. Og til þess að hámarka næringar­upptökuna legg ég hneturnar og fræin í bleyti.“

Júlía segist leggja mikið upp úr góðu matar­skipulagi og þær konur sem sækja námskeiðin hjá henni þekkja það vel. Með því að skipuleggja sig vel er hægt að ná fram hollum rétti á núll einni. „Að halda úti matar­skipulagi er líka svo mikið atriði til að halda okkur við breytt mataræði og svo við „dettum ekki í það“ þegar við komum heim eftir langan vinnudag og endum á því að panta okkur pítsu.

Það er hægt að nálgast uppskrifta­bókina mína hér og skoða námskeiðin hér.

Ég legg mikið upp úr því að uppskriftirnar bragðist vel, séu barnvænar, henti fjölskyldu­fólki og fólki sem er vant því að borða skyndi­bita. Uppskriftirnar eru einfaldar, krefjast ekki mikils umstangs og innihalda ekki óþarfa hráefni. Þær eiga að veita líkamanum aukna orku, ljóma og hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfum sér og lifa til fulls.“

Vetrarsalat með graskeri, linsubaunum og grænkáli

1 skammtur, þú getur auðveldlega tvöfaldað uppskriftina og borið fram fyrir tvo

Grænmeti:

½ eða minna af miðlungs­stóru graskeri

3-4 miðlungs­stórar gulrætur

½ rauð paprika (valfrjálst)

1 skalottlaukur (eða annars konar laukur, en skalottlaukur gefur góða sætu)

Ólífuolía eftir smekk

Krydd að eigin vali: Ég hef notað 1 tsk. grænmetis­kryddblöndu og ½ tsk. reykta papriku frá Krydd­húsinu. Einnig má nota ½ tsk. rósmarín, ½ tsk. papriku, svartan pipar, himalajasalt, og rautt chili-krydd.

Linsu­baunir:

1 bolli soðnar brúnar linsu­baunir (um það bil 1/4 bolli þurrkaðar linsu­baunir, soðnar í vatni eða notið í kringum 1/3 linsu­baunir sem eru forsoðnar í dós)

Salatbotn:

3-5 grænkáls­blöð, fjarlægðu stilkinn (ef grænkál fæst illa, notið spínat eða kletta­salat)

⅓ af gúrku (í kringum 100 g, það er ráðlagt magn, en ekki hika við að bæta við það)

1 tómatur (ráðlagt magn, ekki hika við að bæta við það)

Dressing:

1-2 msk. af majónesi (vertu viss um að það sé ekki viðbættur sykur. Ég nota gjarnan avókadó-majónes sem fæst í Costco)

1-2 msk. kreistur sítrónu­safi (notið meira fyrir þynnri dressingu)

Svartur pipar eftir smekk (ég set nóg af svörtum pipar)

Ofan á, skreytingin er það sem gerir þetta salat fullkomið:

50 g ristaðar, ósaltaðar pistasíu­hnetur (ekki hika við að setja meira ef þú vilt)

30 g geita­ostur (ég hef bæði notað rifinn geitaost og íslenskan geita feta-ost frá Jóhönnu sem fæst m.a. í versluninni Gott og blessað í Hafnar­firði)

Fersk mynta eða steinselja

Aðferð:

1. Linsu­baunir: Til að elda linsu­baunir settu 1/4 bolla þurrkaðar, ósoðnar linsu­baunir í pott. Bættu a.m.k.  þrisvar sinnum meira vatni en linsum (1:3) eða 3/4-1 bolla af vatni í pottinn. Láttu sjóða og lækkaðu hitann í lága suðu. Bættu meira vatni út í ef þörf er á, horfðu bara á pottinn af og til til að sjá hvort linsu­baunirnar þurfa meira vatn. Láttu malla í u.þ.b. 15-20 mínútur eða þar til þú getur auðveldlega kreist eina linsu! Ef þú ert að nota forsoðnar linsu­baunir í dós þarftu ekki að elda þær, hitaðu þær aðeins ef þú vilt.

2. Grænmeti eldað: Skerðu graskerið og gulræturnar í ca 2 sentí­metra bita. Ef þú vilt elda í bökunar­ofni, settu á bökunar­pappír, kryddið og setju olíu yfir og eldaðu í ofni á 180-200 °C í u.þ.b. 25-30 mínútur, hrærðu í öðru hverju svo grænmetið eldist jafnt.
Ef þú vilt grilla grænmetið á útigrilli mæli ég með að grænmetið sé soðið í vatni fyrst. Fylltu þá pott upp að 3/4 af vatni og láttu sjóða, settu grænmetið í pottinn í u.þ.b. 10 mínútur eða þar til þú nærð að stinga gafflinum auðveldlega í gegn. Taktu grænmetið úr vatninu og settu í skál. Kryddaðu og settu olíu yfir. Settu grænmeti á grill­bakka og grillaðu í ca 15 mínútur eða þar til það fer að verða stökkt og ristað.

3. Salatið: Rífðu grænkáls­blöðin, kreistu 1/2 sítrónu yfir, skerðu gúrku, tómata og settu ofan á grænkálið. Setja til hliðar.

4. Dressing: Blandaðu mæjónesið og sítrónu­safa saman og settu til hliðar.

5. Borið fram: Núna ættu linsu­baunirnar að vera tilbúnar! Kryddaðu með salti og pipar eftir smekk og settu linsu­baunirnar og því næst grænmetið yfir salatið. Skreyttu með pistasíu­hnetum, steinselju og geitaosti. Njóttu!

Hér er hægt að sjá heima­síðuna.

Facebook 

Instagram

Smelltu hér til að lesa brakandi feskt helgar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

„Lífið er svo miklu betra með þér“

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul