Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Dýraverndarsamband Íslands gagnrýnir blóðtöku úr hryssum og vill stöðva hvalveiðar

Skora einnig á að tak­marka inn­flutn­ing og sölu á frost­legi með inni­heldur etý­leng­lýkól

Blóðmerahald
Blóð­mera­hald Lagst er gegn blóð­mera­haldi í ályktun fund­ar­ins Mynd: © Animal Welfare Foundation.

Á aðal­fundi Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands sem fram fór 20. maí voru sam­þykktar nokkrar álykt­anir þar sem meðal ann­ars er gagn­rýnt leyfi fyrir blóð­töku úr fyl­fullum hryssum, fyr­ir­hug­aðar hval­veiðar og eitrun dýra með frost­legi.

Í einni ályktun fund­ar­ins er harð­lega gagn­rýnt að Mat­væla­stofnun hafi veitt Ísteka skil­yrt tveggja ára starfs­leyfi fyrir blóð­töku úr fyl­fullum hryssum til fram­leiðslu á PMSG-horm­óni.

Dýra­vernd­ar­sam­bandið segir starf­sem­ina ekki sam­ræm­ast Evr­óputil­skipun um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni og bendir á að aðrar aðferðir og lyf séu til staðar sem geti þjónað sama til­gangi.

Í álykt­un­inni segir einnig að ávinn­ingur starf­sem­innar sé fyrst og fremst fjár­hags­legur en ekki sam­fé­lags­legur eða til hags­bóta fyrir dýra­vel­ferð.

Þá vekur sam­bandið athygli á því að Fagráð um vel­ferð dýra hafi veitt umsókn­inni nei­kvæða umsögn.

Sam­bandið skorar á stjórn­völd að aft­ur­kalla leyfið og tryggja að fram­kvæmd leyf­is­veit­inga sam­ræm­ist skuld­bind­ingum Íslands sam­kvæmt Evr­óputil­skipun 2010/63/ESB.

Í annarri ályktun hvetur Dýra­vernd­ar­sam­bandið stjórn­völd til að koma í veg fyrir að hval­veiðar hefj­ist á ný í sumar.

Tilefnið eru fyr­ir­ætl­anir Hvalur hf. um lang­reyða­veiðar og áform NORA Seafood á Ísafirði um að hefja hrefnu­veiðar í Ísa­fjarð­ar­djúp eftir níu ára hlé.

Dýra­vernd­ar­sam­bandið telur veiði­að­ferð­irnar „ein­stak­lega harð­neskju­legar og ómann­úð­legar“ og segir ekki hægt að rétt­læta veiðar á hvölum með gildum rökum.

Samtökin kalla einnig eftir því að núgild­andi lög um hval­veiðar verði felld úr gildi eða ný lög sett sem komi alfarið í veg fyrir slíkar veiðar í fram­tíð­inni.

Í þriðju álykt­un­inni er varað við síend­ur­teknum eitr­unum dýra með frost­legi víða um land.

Samtökin segja frost­lög sem inni­halda etý­leng­lýkól sér­stak­lega hættu­legan þar sem efnið hafi sætt bragð sem laði dýr að sér og geti valdið alvar­legum nýrnaskaða og kvala­fullum dauð­daga. Í álykt­un­inni kemur fram að slíkt eitur sé vilj­andi settur í mat til að gefa dýrum.

Vísað er til nýlegra dauðs­falla gælu­dýra í Kjós og Sand­gerði vegna slíkrar eitr­unar.

Dýra­vernd­ar­sam­bandið, ásamt Villi­kettir og Dýrfinna, skorar á stjórn­völd að draga úr inn­flutn­ingi og sölu á frost­legi sem inni­heldur etý­leng­lýkól og setja skýr­ari reglur um öryggi slíkra vara.

Hér fyrir neðan má sjá álykt­anir aðal­fund­ar­ins í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas