Björn Birgisson samfélagsrýnir með meiru kallar tjóna- og eyðileggingarskrá sem þjóðarleiðtogar Evrópu skifuðu undir í morgun, „samkvæmsleik fína fólksins“.
Í nýrri færslu á Facebook veltir Björn fyrir sér tjóna- og eyðileggingarskránni sem skrifað var undir í Hörpu í morgun en hann telur það fyrirséð að Rússar muni hlæja að skráningunni.
„Tjóna- og eyðileggingarskrá stríðs.
Nýjum samkvæmisleik fína fólksins í valdastöðum hleypt af stokkunum.**********Athugið vel að engum dettur í hug að hafa þann leik afturvirkan.Þá þyrftu sumir að borga skaða sem þeir telja best gleymdan og eru líklega búnir að gleyma!**********Dettur einhverjum í hug að Rússar geri annað en að hlæja að þessari væntanlegu skráningu?Þeir segjast vera í stríði sem þeir voru þvingaðir í vegna framferðis vestrænna þjóða og þeir munu glottandi segja þeim þjóðum að borga skaðann af þeirra völdum!
Er þetta ekki algjörlega fyrirséð?“
Bjarni nokkur svaraði Birni í athugasemd: „Þessi skrá er forsenda stríðsskaðabóta og upptöku falins fjár í vestrænum bönkum. Trúðu mér, Björn, þeir vita hvað þeir eru að gera. Ella hefðu þeir leitað álits virkra í FB færslum.“
Þessu er Björn sammála: „Sjálfsagt satt og rétt, en mestu máli skiptir auðvitað hvað „greiðandinn“ telur sér skylt að gera.“
Því svaraði Eðvarð nokkur með spurningum: „Voru ekki milli 300 og 400 milljarðar dollarar í eigu rússneska ríkisins frystir í vestrænum bönkum? Er ekki verið að skapa einhvern lagalegan grundvöll til þess að geta gert þessa fjármuni upptæka?“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir