Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ráðherrann Lilja féll í stafi við Grænavatn – Toppurinn á Trölladyngju og vötnin þrjú

Lilja Alfreðsdóttir við Grænavatn.
Lilja Alfreðs­dóttir við Græna­vatn. Mynd: Reynir Traustason.

Eitt magnaðasta útivistar­svæði landsins er að finna í bakgarði höfuð­borgarinnar, á Keilis­svæðinu og í kringum Sogin. Þar er að finna öll helstu og fegurstu tilbrigði íslenskrar náttúru. Hin undur­fögru Sog svíkja engan. Þar er háhita­svæði og lita­dýrðin líkist helst því sem sést í grennd við Landmanna­laugar.

Hin und­ur­fögru Sog.

Hópar Ferða­félags Íslands hafa lengi ferðast um svæðið og notið alls þess fjöl­breytileika sem þar er að finna. Þannig hafa Skrefin undan­farin átta ár gengið um flesta þá markverðu staði sem þar er að finna. Og það er af nógu að taka.

Hið augljósa er að ganga á Keili, fjallið sem flestir útlendingar veita eftirtekt þegar komið er akandi frá Kefla­víkur­flugvelli til Reykja­víkur. Keilir er einkar form­fagurt fjall, strýtu­laga og fólk þarf að hafa fyrir því að brölta upp malar­skriðurnar til að ná toppnum. Einhverjir kunna að halda að Keilir sé hæsta fjall á Suðurnesjum en það er ekki svo. Hann er 379 metrar að hæð. Græna­dyngja (398 m.y.s.) er hæsta fjall Suðurnesja. Hún og Fagradals­fjall (390 m.y.s.) skáka bæði þessum ókrýnda konungi Suður­nesjafjalla. Trölla­dyngja er jafnhá Keili. Í þessu samhengi má minna á orð Napóleons Bónaparte um að eitt er að vera hár en annað að vera stór.

Vegurinn frá Reykja­nesbraut á Keilis­svæðið er torfarinn og alls ekki fyrir kviðsíða bíla. Til að komast þangað er beygt af Reykja­nesbraut þar sem vegvísir bendir á Keili. Aka þarf rúmlega 10 kílómetra leið um grófan malarveg sem á köflum er á mörkum þess að vera fær bílum.

Keilir

Gangan á Keili hefst á Höskuldar­völlum. Bílastæði er við enda Oddafells þaðan sem haldið er í gönguna sem er alls 7 kíló­metrar fram og til baka. Þeir sem ætla að ganga á Keili þurfa að reikna með 4-5 klukku­stundum í verkefnið. Fyrsta kastið er gengið með fram Oddafelli en síðan er þverbeygt og haldið inn í Höskuldar­valla­hraun og gengið um hlykkjóttan stíg í gegnum hraun­breiðuna. Í fjarlægð blasir fyrir­heitna fjallið við.

Gangan er létt, en nauðsynlegt er að varast hraun­nibbur á göngunni. Eftir að hafa stiklað um hraun og móa sleppir hraun­breiðunni og við tekur slétta, alla leiðina að Keili. Við hlið fjallsins kúra hólar sem nefnast Keilis­börn. Eftir að hafa gengið allt að þremur kíló­metrum um jafn­sléttu er komið því að ganga á sjálft fjallið. Glöggur stígur sker bratta hlíðina. Þetta er á fótinn og erfitt þeim sem ekki eru í góðu formi. Á efsta hluta leiðarinnar er nokkuð bratt og þeir loft­hræddustu hika við og þurfa jafnvel hand­leiðslu. Á toppnum blasir við frábært útsýni um Reykja­neskaga og höfuð­borgar­svæðið. Þar uppsker göngu­fólkið verðlaun sín eftir erfiðið. Þeir metnaðar­fyllstu geta útfært gönguna þannig að þeir fara áfram suðvestur eftir og skoða Litla-Hrút, Kistufell og sjálfan Stóra-Hrút. En það er að sjálfsögðu löng ganga sem kallar á skipulagningu varðandi heimferð.

Sogin og Spákonuvatn

Annar áfanga­staður á Keilis­svæðinu er háhita­svæðið Sogin og vötnin þar í kring. Til að komast á uppgöngu­staðinn er ekið um Keilisveg áfram eftir malarvegi sem sker Höskuldar­velli. Beygt er til hægri undir hlíðum Trölla­dyngju og haldið áfram þar til komið er að plani þar sem er að finna borholu. Með fram veginum rennur Sogslækur, eina vatns­fallið á Reykjanesi. Göngu­maður getur ákveðið að halda upp í skarðið um Sogin. Sú ganga getur á köflum verið slarksöm, en eflaust þess virði þegar litbrigði háhita­svæðisins blasa við. Þegar kemur upp í skarðið blasir Djúpavatn við í allri sinni dýrð. Handan þess eru Vigdísar­vellir og síðan kemur að Sveiflu­hálsi.

Djúpa­vatn.

Þeir sem vilja komast í návígi við vatnið klöngrast niður hlíðina og halda svo með fram vatninu að sumarhúsi sem þar stendur. Þaðan liggur leiðin aftur upp á Grænavatnseggjar. Gengið er upp skarð og þar blasir við sjálft Grænavatn sem ber nafn með rentu. Göngufólk Ferða­félagsins heldur með fram vatninu og nýtur allrar þeirrar fegurðar sem er í boði. Með í för er Lilja Alfreðs­dóttir, ferðamála­ráðherra og vara­formaður Framsóknar­flokksins. Hún slær á létta strengi og er þess viss að nafn vatnsins vísi til einkennis­litar Framsóknar­flokksins.

Þegar kemur að vatninu er gengið norður, með fram því. Ekki er laust við að ferðafólk taki andköf af hrifningu vegna umhverfisins, áfram er haldið og gengið upp skarð, þaðan sem Spákonu­vatn blasir við. Eftir að hafa gengið með fram vatninu kemur að því að loka hringnum með því að ganga með fram Sogunum og að bílunum fyrir neðan. Stórkostleg ferð að baki og fyrirheit um endurkomu heyrast.

Lambafellsklofi og Trölladyngja

Trölla­dyngja kúrir rétt norðan við Grænu­dyngju. Til að ganga á fjallið er sniðugt að aka sem leið liggur að Keili, fram hjá Oddafelli og yfir Höskuldar­velli. Beygja skal til vinstri á gatna­mótum undir Trölla­dyngju. Við Eldborg er sæmilegt bílastæði. Þar hefst gangan. Haldið er beint upp hlíðina, með fram gili sem göngu­maður hefur á hægri hönd. Þegar komið er upp á brún er stefnt á strýtu­laga Trölla­dyngju. Gengið er upp brattan hrygg. Gangan er talsvert á fótinn. Á hæsta tindi skilar puðið sér. Á sólbjörtum degi blasir Reykjanes og höfuð­borgar­svæðið við. Gott útsýni er yfir gossvæðið undir Fagradals­fjalli.

Trölla­dyngja. Mynd Guðrún Gunn­steins­dóttir.

Á baka­leiðinni er stefnt á Lamba­fellsklofa, einstak­lega fallegt náttúru­fyrirbrigði sem sumpart minnir á gjána sem klýfur fjallið Þorbjörn. Rúmlega tveir kíló­metrar eru af toppi Trölla­dyngju og norður fyrir Lambafell. Þegar komið er norður fyrir fellið blasir við opin gjáin sem klýfur fjallið bókstaf­lega. Þegar fólk fikrar sig inn í gjána gengur það bókstaf­lega í björg. Það er yfir­þyrmandi að standa í þröngri gjánni, undir allt að 50 metra háum hamra­veggjum. Skrefa­hópar Ferða­félags Íslands hafa haft þann sið að syngja í gjánni. Hljóm­burðurinn er einstakur. 

Lamba­fells­gjá.


Leiðin um gjána liggur í suður í gegnum fjallið. Hún grynnist hratt og það er á brattann að sækja. Göngu­maðurinn stendur fyrr en varir á toppi Lamba­fells. Eftir dulúðina í fjallinu blasir við blár himinn og frábært útsýni. Þeir sem hafa til þess úthald og vilja, geta svo gengið á Eldborg á baka­leiðinni áður en haldið er heim­leiðis eftir ferð sem hefur yfir sér sann­kallaðan ævintýrablæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim