Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kanye West sagður hóta nýjum kærasta Kim Kardashian ofbeldi

Kanye West
Kanye West

Hinn marg­brotni tónlistar­maður Kanye West hefur verið iðinn við að koma sér í
fréttirnar fyrir hina ýmsu hluti í gegnum árin. Núna hinsvegar snúast fréttirnar um
bitran skilnað þeirra Kanye og Kim Kardashian en eins og margir vita þá hefur sú
síðarnefnda byrjað að hitta nýjan strák, ef svo mætti að orði komast. Sá heitir Pete
Davidson og er þekktur uppi­standari og leikari í hinum þekktu sjónvarps­þáttum
Saturday Night Live eða SNL.

Þeir eru eins ólíkir og hægt er að vera og því þótti það mikið frétta­efni þegar Pete og
Kim fóru að slá sér upp saman. Reyndar virðist allt frétta­efni þegar það kemur að
Kim Kardashian en þessar fréttir virðast þó hafa farið illa í rapparann Kanye West
sem nýlega breytt nafni sínu í „Ye“.

Í nýju lagi frá Ye, sem skartar engri annarri en dívunni Aliciu Keys og rapp­aranum
Fivio Foreign, kemur ansi áhugaverð setning sem bandarískir fjöl­miðlar hafa reynt
að kafa ofan í og greina. Á ensku er setningin: „This afternoon, a hundred goons
pullin' up to SNL,“ sem myndi svo hljóma einhvern veginn svona á íslensku: „Núna
síðar í dag munu hundrað ofbeldis­menn stoppa við hjá SNL.“ Bandarískir fjöl­miðlar
vilja meina að þarna sé um að ræða hreina og klára hótun um ofbeldi og barsmíðar –
hótanir frá Ye sem beint er til Pete, sem er ein af stjörnum þáttanna.

Það er alþekkt að skilnaðir enda ekki alltaf vel og oftar en ekki situr annar aðilinn eftir
með sárara enni en hinn. Í þessu tilfelli er það augljóst að Ye á svo sannarlega erfitt
með að sætta sig við sambands­slit hans og Kim Kardashian en hvort þessar hótanir
um ofbeldi raun­gerist eður ei kemur tíminn aðeins til með að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt